Dagblaðið - 31.03.1976, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1976.
íþréttir
Heimsmeti
fagnað!
Bandarikjamaðurinn Dwight Stones
bætti heimsmet sitt innanhúss í
hástökki i 2.29 m í Madison Square
Garden í New York 20. febrúar um
einn sentimetra. Hann á einnig heims-
metið utanhúss. A myndinni að ofan
sést Stones eftir metstökkið. Hann
sveif fallega yfir rána þegar í fyrstu
tilraun. Það var metaregn á mótinu —
Dan Ripley setti heimsmet í stangar-
stökki. Stökk 5.58 metra og bætti
heimsmet Pólverjans Kozakiewicz um
sentimetra. Sá keppti einnig á mótinu
og reyndi við sömu hæð, 5.58 metra, en
tókst ekki.
Valur og KR í
undanúrslit?
Tveir síðustu leikir í 8-liða úrslitum
bikarkeppni HSÍ fara fram í Laugar-
dalshöllinni í kvöld. Kl. 20.15 leika
Valsmenn við Fylki og strax á eftir KR
við ÍR. Líklega verður að telja KR-inga
sigurstranglegri í leik 2. deildarlið-
anna, — unnu ÍR um siðustu helgi.
Valsmenn teljast öruggir í undanúrslit
og Víkingur og FH hafa þegar tryggt
sér rétt í undanúrslitin, þá bætist við
Valur og sennilega KR.
TBR-liðin eru
sterkust!
Siglfirðingar léku við Reykjavíkur-
liðin í liðakeppninni i badminton 27.
marz — en fengu ekki marga punkta
úr þeim leikjum. Úrslit urðu þessi:
Efri flokkur:
KRa-TBSa 13:0
TBRa —TBSa 12:1
TBRb—TBSa 10:3
Staðan að þessum leikjum loknum:
TBR b 4 leikir 4 stig 36:16
TBR a 4 leikir 3 stig 30:22
KR a 4 leikir 1 stig 30:22
TBS a 4 leikir 0 stig 8:44
Gefið er eitt stig fyrir unninn leik —
en ekki er möguleiki á jafntcflisleikj-
um. Lið Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur eru greinilega í sérflokki.
^þjóó^
Iþróttir fþróttir íþróttir
Erfiður róður — en við
stefnum að sigri ó NM!
— Norðurlandamótið í handknattleik pilta hefst i Laugardalshöll ó föstudag.
Lið fró íslandi, Danmörku, Finnlandi, Sviþjóð og Noregi leika ó mótinu
Það er mikill hugur í
strákunum. Þeir hafa æft vel og
unglingalandsliðið er skipað
jöfnum og leikandi strákum, sem
hafa sett markið hátt — stefna að
sigri á Norðurlandamótinu í
handknattleik, sem verður háð í
Reykjavík 2.-4. apríl í Laugar-
dalshöll, sagði Viðar Símonar-
son, Iandsliðsþjálfari. En
auðvitað verður róðurinn erfiður.
Allar Norðurlandaþjóðirnar
nema Færeyingar senda þátt-
tökulið á mótið — tsland, Dan-
mörk, Finnland, Noregur og Sví-
þjóð. ísland hefur tekið þátt í
Norðurlandamótinu frá 1962 og
einu sinni orðið sigurvegari. Það
var í Turku i Finnlandi 1970.
Einu sinni áður hefur mótið verið
haldið hér á landi — 1971.
Mótið verður sett föstudaginn
2. apríl kl. 20.00 og flytur Gisli
Halldórsson, forseti ÍSt,
setningarræðuna. Þátttöku-
þjóðirnar munu fylkja liði á
vellinum undir þjóðfánum og
þjóðsöngvar landanna verða
leiknir. Síðan hefst fyrsti
leikur mótsinssem er á milli
tslands og Noregs. Á eftir leika
Danmörk og Svíþjóð. Á laugardag
leikur íslenzka liðið tvo leiki —
um morguninn við Svíþjóð, en
eftir hádegíi -eða klukkan
rúmlega fjögur við Finnland.
Lokaleikirnir verða á sunnudag
— og síðasti leikur mótsins milli
íslands og Danmerkur. Erlendu
þátttakendurnir koma allir með
sömu flugvél frá Flugleiðum á
fimmtudagskvöld.
íslenzka liðið á mótinu er
skipað þessum piltum. Kristján
Sigmundsson, Þrótti, Egill Stein-
þórsson, Ármanni — markverðir
— og aðrir leikmenn Ólafur Guð-
jónsson, FH, Pétur Ingólfsson,
Friðrik Jóhannsson og Jón
Viðar Sigurðsson, Ármanni, Jón
Hauksson, Haukum, Gústav
Björnsson og Jón Árni Rúnars-
son, fyrirliði, Fram, Kristinn
Ingason, KR, Bjarni Guðmunds-
son og Óskar Ásgeirsson, Val,
Andrés Kristjánsson, FH, og
Theódór Guðfinnsson, Breiðablik.
Eins og venja er á Norðurlanda-
mótum pilta, verður skipuð
sérstök dómefnd til að dæma um
það hver er bezti sóknarleik-
maður mótsins, bezti varnarleik-
maður og bezti markvörður.
Niðurstaða nefndarinnar verður
tilkynnt í mótslok og fá þeir leik-
menn sem hnossið hreppa sérstök
verðlaun.
Miðaverði er mjög stillt í hóf á
mótinu. Kostar miðinn á
hverja umferð (2 leikir) 500
krónur fyrir fullorðna og 100
krónur fyrir börn. Ennfremur er
hægt að kaupa kort, sem gilda
fyrir alla leiki keppninnar og
kostar það aðeins 1500 krónur.
Mótsstjóri Norðurlandamótsins
verður Axel Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri HSl, en dómarar
Björn Kristjánsson og Óli
Ólsen frá Islandi, Palle Thomas
sen og Niels Knudsen frá Dan-
mörku og Kai Huseby og Arna
Kristiansen frá Noregi.
Norðmaðurinn
gafst upp
Heimsmeistarinn í léttþunga-
vigt í hnefaleikum, Argentínu-
maðurinn Victor Galindez fór Iétt
með Norðmanninn Harald Skog i
titiileiknum i Osló á sunnudaginn
— Norðmaðurinn gafst upp í
þriðju lotu. Skog, sem lenti i
bílslysi — hljóp fyrir bíl — i
síðustu viku, þegar hann var að
elta ljósmyndara, sem hafði verið
að „skjóta” á hann og Argentinu-
manninn, hafði ekkert að segja i
Galindez.
í þriðju lotu rétti hann upp
hendurnar og gafst upp. Galindez
hafði tvívegis slegið hann niður í
2. iotu og í þeirri 3ju sendi hann
Skog enn í gólfið. Þá gafst Norð-
maðurinn upp sjálfur —
aðstoðarmenn hans stöðvuðu ekki
leikinn. Keppni þeirra átti að
vera sl. föstudag, en var frestað
um tvo daga vegna meiðsla sem
Skog hiaut í bilslysinu.
Undanfarið hefur firmakeppni
KKÍ farið fram — einn leikmaður
leikur gegn einum og sá vinnur
sem fyrr skorar 15 stig.
1 hálfleik leiddu tveir beztu
körfuknattleiksmenn landsins
saman hesta sína, þeir Jón
Sigurðsson, Ármanni og Þórir
Magnússon, Val. t stuttu máli —
um hörkukeppni var að
ræða þeirra á milli. Þórir hafði
sigur en naumur var hann, 16-14.
Aldrei jaf n erfitt
að spá um úrslitin
á íslandsmótinu i badminton, sem verður á Akranesi um helgina
Þetta verður í fyrsta skipti, sem
íslandsmótið í badminton er háð
á Akranesi — í hinu nýja íþrótta-
húsi Akurnesinga — og þátttaka
er mjög mikil. Um eða yfir eitt
hundrað, þar af 50 í A-flokki,
sagði Rafn Viggósson, stjórnar-
maður í badmintonsambandinu,
þegar Dagblaðið ieitaði hjá
lionum frétta af íslandsmótinu,
sem háð verður 3. og 4. apríl.
Allir beztu badmintonleikarar
landsins verða meðal þátttakenda
og má því búast við, að hart verði
barizt í hverjum leik og þá ekki
sízt í úrslitaleikjunum í einliða-
og tvíliðaleik karla. Hefur sjaldan
eða aldrei verið jafn erfitt að spá
um úrslit og nú, sagði Rafn enn-
fremur. Haraldur Kornelíusson,
sem varð þrefaldur . íslands-
meistari á síðasta landsmóti,
hefur í vetur ekki haft sömu yfir-
burði og undanfarin ár. Þar
kemur Reykjavíkurmeistarinn
Sigurður Haraldsson inn í
myndina sem sterkur badminton-
maður.
Mótið hefst laugardaginn 3.
apríl kl. 10.00 og verður leikið
fram í undanúrslit. Keppnin hefst
á sama tíma á sunnudagsmorgun
með undanúrslitum og tvíliðaleik
i „old boys” flokki. Urslitaleikir
mótsins hefjast kl. tvö. Þátttak-
endur eru frá átta félögum, TBR,
KR, Víking, Val, BH. TBS, FA og
Völsungum. Alls verða leikir á
mótinu 130.
Ef við litum á keppni í einstök-
um flokkum, sagði Rafn Viggós-
son, má búast við því, að áhugi
fólks á Akranesi beinist einkum
að tvíliðaleik karla. Þó íslands-
meistararnir Haraldur Kornelíus-
son og Steinar Petersen séu
ákveðnir í að halda meistaratitl-
inum verða mörg ljón í veginum
— og þá ekki sízt Akurnesing-
arnir Hörður Ragnarsson og
Jóhannes Guðjónsson, knatt-
spyrnukappinn kunni, en þeir
hafa verið mjög sigursælir á
mótum í vetur. Einnig gætu
Óskar Guðmundsson og
Friðleifur Stefánsson, KR, sett
strik i reikninginn.
Hjá konum er ekki búizt við
miklum sveiflum, en vonandi fara
ungu stúlkurnar að veita þeim
Lovísu Sigurðardóttur og Hönnu
Láru Pálsdóttur verðuga keppni.
1 A-flokknum verður hins vegar
barizt um hvern punkt og þar eru
margir ungir og efnilegir kepp-
endur. Má þar fyrstan telja Sig-
urð Kolbeinsson, TBR, sem varð
sigurvegari í þremur greinum á
Reykjavíkurmótinu. Eftir keppn-
ina gengst íþróttabandalag Akra-
ness fyrir hófi að Hótel Akranesi
og þar verða verðlaun veitt, sagði
Rafn Viggósson að lokum.
SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK W
Binclinniii iiiiicni lcslar |)annii{ a< táör\i»i»ió^ ur á inióju skícMnu, c‘ii þaó crolt mcrkt.
á skíAuinnn. lá inic\jan cr ckki incrkt cr luci't aó finna hana út cins og scst á
mynclinni lcntíst til vinstri. Il;ci»t cr aú alluiu[ii livort hinclingiirnar cru rcttar á
skícáuinun, mcú |>ví að lci»i»j;t |)au sainan cins cn» st‘st nccVst á vinstri inyncl. Þá cigit
lác'uyt'uin aú ncma livort vió annaó cins ot» scst á inyncliiuú. hcssa aúfcrú cr ckki
lucgt aú not;i |>cuar hindingar cru fcstar \ iú harnaskíúi. Skipta á sncrtiflctiiHiin í
tvcnnt, cins ot» scst á inynd í hicgrii horni 01» fcsta hindingar þannig aú iniðjan koini
á iniðjan skíðaskóinn. Ilala hcr í lun»a \ ió val á hariíaskíómn að bcirnin gcti haft
i»ott vald á þcim.