Dagblaðið - 31.03.1976, Page 15
Smágert tómstundagaman
DAC’iBLAÐH). MIÐVIKUDACUK 31. MARZ 197K.
Listamaðurinn á myndinni
ludiir Wenzc'l Jabukowski er
brasiliskur að ætterni en hann
býr i Dortmund i V-Þýzkalandi.
Hann hefur frekar sjaldgæft
tómstundagaman en hann gerir
alls kyns listaverk á tituprjóns-
hausa. Hann byrjar á því að
setja límkennt efni á hausinn,
og notar siðan saumnál til þess
að búa til listaverk sem geta
verið allt frá landslagsmynd
eða brjóstmynd. Listaverkið
málar hann síðan með manns
augnahári. Það tekur hann frá
tveim vikum upp í mánuð að
fullgera verkið.
Ágóðann af sölu títuprjóns
hausalistaverkanna lætur
Jabukowski renna til góð-
gerðarstarfsemi.
LOFH) ÞREYTTUM
AÐSOFA
Þeir eru svo sannarlega þreyttir þessir félagar sem búsettir eru í
Englandi. Drengurinn virðist ekki hafa neitt á móti því að hvíla
með hundinn sem kodda.
Smótt...
Kyrrum Urikkjaköngur og
Anna María F'riðriksdóttir
standa þessa dagana í flutning-
urn. Allt frá flótta þeirra
frá Grikklandi árið 1967 hafa
þau búið í hinum ýmsu villum
annaðhvort í Róm eða
Lundúnum. En nú eru þau flutt
' í rólegan útbæ Lundúna
Hamsted Gardens. Nýju húsa-
kynnin munu vera með fjölda
herbergja að sögn brezka
blaðsins Daily Mirror og hæfa
kóngsa mun betur en þar sem
hann býr nú í Chobham.
Frank Sinatra hélt upp á
sextugsafmælið með þriggja
daga veizlu. Nancy dóttir hans
var gestgjafinn í fyrstu veizl-
unni í Beverlyhæðum á laugar-
degi en á sunnudaginn og
mánudaginn ætlaði þessi þunn-
hærði söngvari að halda uppi á
afmæli í Washington og Palm
Springs.
Elvis Presley á enn í erfið-
leikum með að einbeita sér að
einni stúlku í einu. Nýlega
bauð hann Sheilu Ryan fyrrum
fegurðardrottningu og Lindu
Thomson á hljómleika sína r
Las Vegas. Stúlkurnar sátu
hvor á sínum bekknum.
Rétt áður en Richard Burton
kvæntist Elísabetu Taylor í
annað sinn datt hann út úr bíl
sínum með talsverðum látum
enda þambaði hann þriggja
pela flösku af vodka daglega.
Talsverða athygli vakti að
Elísabet sem hafði heitið því að
yfirgefa hann við fyrstu
afmeyjun (flösku) kom og
skálaði við eiginmann sinn.
David Niven hlaut slæmar
skrámur er einkabílstjóri hans
veiktist skyndilega undir stýri,
bifreiðin snerist tvisvar á göt-
unni og varð næstum fyrir
stærðar vörubifreið en hafnaði
svo úti í skurði. Bifreiðin var
dregin upp úr og Davíð keyrði
bílstjóra sinn til sjúkrahússins.
Tignasti aðdáandi Petulu
Clark er vafalaus Feisal prins í
Sádi Arabíu. Hann flaug 6
þúsund mílur til þess eins að
sjá hana á Waldorf Astoría
hótelinu í New York þar sem
hún var að byrja nýtt
prógramm. „Ég færi hvert sem
er til þess eins að sjá eftirlætið
mitt,” var haft eftir prinsinum.
Ölympíunefnd Bretlands bað
almenning ásjár til styrktar liði
þvi er þeir hyggjast senda á
Ölympíuleikana í Montreal í
sumar. Poppstjarnan Elton
John brást vel við þessari
beiðni og hyggst halda tvenna
tónleika í maímánuði til
styrktar Ólympíuförunum. Er
vonazt til að gróðinn af þessum
tónleikum muni nema
um þrem og hálfri milljón
króna. Áhugi Eltons á þessu
máli stafar af einlægum áhuga
hans á íþróttum því á yngri
árum átti hann sér þann draum
að verða atvinnumaður í knatt-
spyrnu, nú leikur hann aðeins
tennis. Einnig hyggst Elton
taka upp nýju breiðskífuna
sína í Kanada í sambandi við
Ólympíuleikana
BORGARHÚSGÖGN
RUBIN HORN
SALON
Úrval af áklœðum
■»
Lítið inn, það borgar sig
BORGARHÚSGÖGN
Grensásvegi IflB Sími 8-59-44
SAFIR
VIKTORIA