Dagblaðið - 20.04.1976, Page 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1976 — 86. TBL.
RITSTJÓRN SjÐUMULA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Vilja Bretar nú draga úr átökum?
— lokuðu Vestfjarðasvœðinu í gœr, halda austur aftur
Það er helzt hald manna hjá
Landhelgisgæzlunni, að brezka
stjórnin hafi óttazt, að átök
yrðu mikil, ef brezki flotinn
færi til veiða fyrir sunnan land.
Því hafi stjórnin viljað hafa
togaraflotann fyrir austan.
Stjórnin er talin hafa álitið,
að átök yrðu meiri en hún telur
æskileg, ef Bretarnir færu til
veiða innan um íslenzka
flotann fyrir sunnan.
Veiðisvæði brezku togaranna
fyrir vestan var lokað klukkan
hálfeitt í gær. Þeir munu nú
ætla til veiða á svipuðum
slóðum og fyrr, sennilega eitt-
hvað suður af Langanesi.
Brezku togararnir eru um
þrjátíu, og hefur þeim fjölgað
síðustu daga. Með þeim eru 9-10
aðstoðarskip.
Lítill fiskur er talinn vera á
miðunum fyrir austan.
-HH.
'
Hrakningarnir ó
Holtavörðuheiðinni:
Vonim
sjötíma
aðkomast
300 m leið
— fólksbílum vor ýtt út of
veginum og þeir yfirgefnir
— sjú einnig frétt á bls. 18
◄ Þessa mynd tók Guðmundur
Gunnarsson á Holtavörðu-
heiðinni í gærdag, er hann
var á suðurleið með Hregg-
viði Jónssyni. Þá var veðrið
gengið niður og færðin ólíkt
léttari, þótt snjógöngin vitni
um ófærðina er veðrið var
sem verst.
Astandið var þannig á Holta-
vörðuheiðinni á skírdag, að það
tók okkur sjö klukkutíma að
komast aðeins 300 metra
vegalengd og megnið af þeim
spotta komumst við á fyrsta
klukkutímanum, hinn tímann
stóðum við kyrrir, sagði Hregg-
viður Jónsson í viðtali við UU í
gær, er hann var staddur í
Staðarskála í Hrútafirði.
Hann lagði á heiðina frá
Hreðavatnsskála kl. 15 á skir-
dag á vel búnum jeppa ásamt
tveim félögum sínum. Gekk
ferðin velupp á háheiðina eða
upp að sæluhúsi, en um leið og
tók að halla norðuraf, byrjuðu
erfiðleikarnir.
Snjóruðningarnir beggja
vegna vegarins voru hálfur
annar til tveir metrar á hæð og
skóf viðstöðulaust fram af þeim
ofan í djúpan ruðninginn, sem
bílarnir voru í.
Að sögn Hreggviðs voru það
illa búnir fólksbílar, sem fyrst
stöðvuðust, en betur búnir
bílar á eftir þeim komust ekki
framúr vegna þrengsla í
ruðningunum. Sagði hann að
fólk í mörgum bílunum hafi
verið illa búið og alls ekki
undir hrakninga búið. Korna-
börn voru í sumum bílunum og
voru þau orðin mjög óróleg.
Fólk var flutt úr kaldari
bílum yfir í þá heitari og betur
búnu, og þegar snjóruðnings-
tæki komu bílalestinni til
hjálpar, var ekki annað ráð
takandi en að koma sjö
smábílum út fyrir veginn svo
þeir yrðu ekki til frekari vand-
ræða. Fólkið úr þeim fór yfir í
aðra bíla lestarinnar sem hélt i
kjölfar ruðningstækjanna og
var komið í Staðarskála talsvert
eftií miðnætti.
Hreggviði er ekki kunnugt
um að neinum hefði orðið
meint af þessum hrakningum,
an mörgum hafði kólnað illa.
-G.S.
Byggingarmenn segja:
STEFNT AÐ VERULEGUM SAMDRÆTTI"
u
Fimmtungur múrara og málara hefur gengið atvinnulaus
„Það er greinilega stefnt að
verulegum samdrætti í
byggingariðnaði. Það er fyrst
og fremst sú peningapólitík,
sem rekin er. Þessi grein er
alveg svelt.”
Þetta sagði Benedikt Daviðs-
son, formaður Sambands
byggingamanna, í morgun um
ástandið i l>.vggingariðnaðinum.
„Það eru ekki aðeins
múrarar, sem hafa gengið at-
vinnulausir.” sagði Benedikt.
„Um tuttugu prósent málara
hafa einnig verið atvinnulausir
meginhluta vetrar.”
Um tuttugu prösent af
félögum í Múrarafélagi Reykja-
vik gengu atvinnulausir meiri
hluta vetrar.
Aðalfundur Múrarafélagsins
l'ordtemdi nýlega þá „miklu
samdráttarstefnu i byggingar-
iðnaði sem f.vlgt hefur verið frá
árinu 1974.”
i skýrslu formanns á
aðalfundi Félags pípulagninga-
meistara, sem haldinn var fyrir
skömmu, kom fram, að
uggvænlega horfir i byggingar-
iðnaðinum, „ef ekki rætist úr
með úthlutun lóða.”
í ál.vktun múrara segir:
„Astand þetta varir enn og er
algerlega óþolandi og veróur að
teljast svo vanhugsuð og ósvífin
árás, ekki aðeins á byggingár-
iðnaðarmenn heldur einnig á
húsbyggjendur, að furðu
sætir.”
Uthlutun lóða í Re.vkjavík var
19(a komin niður í 281 tbúð eða
aðeins 41,36 prósent af
úthlutun ársins 1973.
HH.