Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.04.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 20.04.1976, Qupperneq 8
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 20. APRÍL 1976. Lögreglufréttir Tveir hestar drepast í um- ferðar- slysi Lögreglunni í Árbæ barst tilkynning um það á 7. tímanum á skírdag, að alvar- legur árekstur hefði orðið milli bíls og hesta á mótum Gufunes- vegar og Vesturlandsvegar. Lögreglumenn kölluðu til sjúkralið og héldu á vettvang vopnaðir byssu. Er á vettvang var komið kom í ljós að menn sem í bifreiðinni voru höfðu slasazt og voru þeir fluttir í slysadeild. Annar hestanna hafði drepizt samstundis við áreksturinn, en hinum var að blæða út. Var hann aflífaður á staðnum. Eigandi hestanna var ölvaður Harður órekstur i Svinahrauni Allharður árekstur varð skömmu eftir hádegið á páskadag í nánd við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni. Var þar á austurleið Vauxhall bifreið úr Reykjavík og telur öku- maður hennar sig hafa misst stjórn á bifreiðinni og því farið út á vinstri kant vegarins og lent þar á annarri bifreið. Bifreiðin sem hann lenti á var af Toyota gerð, úr Reykjavík, á leió þangað. Varð áreksturinn allharður, og skullu bifreiðarnar saman næsta beint framan á hvor aðra. Fjórir farþegar úr Vauxhall bifreiðinni voru fluttir í slysadeild, kona og þrjú börn, og fengu tvö þeirra að fara heim skömmu seinna en hinir farþegarnir tveir voru í rannsókn öllu lengur. Hálka og erfiðar aðstæður til aksturs voru þarna á veginum. Þeir sem óku í Toyota bílnum notuðu bílbelti og munu geta þakkað þeim að ekki fór verr. —BH — DB-mynd Sv.Þ. Bifreið þessi er óökufær eftir að hafa verið ekið á ljósastaur í Blesugróf um hálfsexleytið á skírdag. Ljósastaur þessi hefur það fram yfir aðra ljósastaura að háspennulina er tengd við hann svo þarna hefði getað farið illa. Ökumaður bifreiðarinnar flúði af staðnum og leikur gruniir á að um ölvun hafi verið að ræða. Ekki er enn vitað iívort lögreglati hefur haft Itendur í hári hi.ns biræfna iikumanns. -BII. TÍMABÆRT AÐ LÁTA STOPPA UPP ÞORSK TIL AÐ STILLA UPP í STOFU Það yrði góð minning um stofninn, sagði Halldór ó Freyju GK Ætli það sé ekki tímabært fyrir ntann að láta stoppa upp eins og einn þorsk til að stilla upp stofunni sem minningu um stofninn,” sagði Halldór Þórðar- son skipstjóri á Freyju GK þegar Dagblaðsmenn hittu hann um borð í Gunnari Hámundarsyni og inntu hann og Þorvald Halldórsson eftir aflabrögðum og horfum. „Það ætti að vera mun ódýrara en að kaupa hann uppstoppaðan á uppboði erlendis seinna meir,” bætti Þor- valdur við. Af svari þeirra mátti ráða að þeir voru fremur svartsýnir á framtíðina í fiskveiðimalum okkar Islendinga, að óbreyttum aðstæðum, en báðir hafa þeir langa reynslu að baki á þorsk- veiðum, Þorvaldur þó öllu lengri, yfir þrjá áratugi, en Halldór hátt í tvo. Miðin í nánd við Suðvestur- landið þekkja þeir því betur en vasana sína. „Við öfluðum sæmilega á línuna framan af ver- tíðinni, en síðan við skiptum yfir á netin, hefur varla fengizt bein úr sjó. I dag erum við á Gunnari Hám. með 145 fiska, — varla í soðið,” sagði Þorvaldur. „Ég hef ekki oft verið á netum, en vegha sívaxandi kostnaðar við línuútgerð ne.vddumst við á Freyjunni að géra út á net, en það skiptir víst ekki miklu máli hvorar veiðarnar eru stundaðar þegar fiskinn vantar í sjóinn,” sagði Halldór. Þorvaldur t.jáði okkur að vart hefði orðið fiskigengdar í Faxa- flóa, í svonefndum Forum, og vestur á Breiðafirði, en aðeins í skamman tíma. „Það er eins og þorskurinn sé ekki ánægður með skilyrðin i sjónum, nema hann sé eins og mannl'ólkið orðinn kröfuharðari og leiti á aðrar slóðir.” Báðir sögðust þeir lifa i voninni um að aflinn glæddist, kannski um eða eftir ))áskana, — það gæti alveg bjargaö vertíðinni og út- gerðarmanninum. Ekki sakaði að laka þ.jóöarbúið allt i dæmið, „stendur ekki fiest og fellitr með þorskinum,” var þeirra sameigin- legaálit. -emm Jón L. Arnalds um stöðuna ó hafréttarráð- stefnunni: „I stöðugri varnarbaráttu — „en vonandi tekst okkur að bœgja þessu frá að mestu" „Við erum í stöðugri varn- arbaráttu á hafréttarráð- stefnunni en vonir standa til að okkur takist að bægja þessu frá að mestu,” sagði Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, 1 viðtali við Dagblaðið. Jón kom fyrir helgina heim frá ráðstefnunni. ,,Ég vil leggja áherzlu á að þessi mál eru öll í deiglunni en það er mikið atriði að við erum búnir að mynda okkur stöðu,” sagði Jón. Hann lýsti því hvernig sótt væri að þessari stöðu úr öllum áttum. Jón sagði að tillögur hefðu komið fram um rétt landluktra ríkja, sem ekki hafa aðgang að sjó, sem mundu til dæmis veita slíkum ríkjum í Evrópu að- gang að miðum við Island. Hins vegar hefðu Chile, Perú og Kamerún borið fram gagntil- lögu, sem gæfi slíkum land- luktum ríkjum aðeins aðgang að þeim hluta veiðanna, sem strandríkió nýtti ekki. Hann taldi að gagntillagan hefði fylgi og mundi hún líklega verða ofan á. Þvi mundum við senni- lega halda okkar í þessu efni. Mest á huldu um gerðardóminn Þá hefðu komið fram tillögur um, að svokölluð „land- fræðilega afskipt” ríki fengju aðgang að miðum, þar sem þau hefðu áður veitt. Þetta mundi til dæmis liklega þýða að Bretar og Þjóðverjar og fleiri ríki gætu veitt áfram á tslands- miðum. Engin gagntillaga hefði komið fram við þessu, en til- lögurnar virtust ekki hafa nægilegt fylgi til að ná fram að ganga. „Það verður að vona að þessum hugmyndum verði hafnað,” sagði Jón L. Arnalds. „Ef til vill kunna þessi land- fræðilega afskiptu ríki þó að ná fram einhverjum breytingum.” Þá sagði Jón, að frarn hefðu komið margar tillögur til að draga úr rétti strandríkja til að ákvarða hámarksafla á miðum við landið og þess háttar. Til dæmis væri reynt að koma inn breytingum, sem gæfu alþjóða- stofnunum rétt til ihlutunar, ákvæði um umþóttunartíma og fleira. „Eg býst við að þessu verði öllu hafnað,” sagði Jón, þannig að íslendingar haldi sínu. „Það er ekki gott að spá hvað verður ofan á um gerðardóm,” sagði Jón, „en ég vona að útkoman þar verði þokkaleg fyrir okkur. Það er mest á huldu um gerðardóminn. Verið getur að leggja þurfi einhver mál undir gerðardöm en líklega ekki það, sem skiptir okkur mestu, svo sem efnislega ákvörðun um hámarksafla á miðunum, getu og ákvörðun um, hvað aðrir eigi að fá. Hins vegar gæti gerðardómur orðið um framkvæmdaatriði, til dæmis um hugsanlega valdníðslu.”. -HH. Halldór Þórðarson skipstjóri á Freyju og Þorvaldur Halldórsson á Gunnari Hámundarsyni spjalla saman í fiskleysinu. DB-mynd emm. OLVAÐUR MAÐUR 0K A STAUR Ölvaður maður á Isafirði vttnn það afrek á föstudaginn langa að stela bíl og aka honum á staur með þeim afleiðingúm að bíllinn er svo til ónýtur. Maðurinn slapp með marbletti og nokkrar skrámur en hundur, sem var farþegi i biln- utn, hryggbrotnaöi og varð að lóga honum skömmu siðar. Tildrög þessa atburðar voru þau, að maður.inn hafði veriö í samkvæmi aðfaranótt föstu- dagsins. Um ellefuleytið uní morguninn brá hann sér út og kom þá að kyrrstæðum bíl, sem hafði verið skilinn eftir í gangi. Hann snaraðist úpp í bílinn og — „farþega" í bílnum varð að lóga ók af stað á ofsaferö. Okuferð- inni lauk i Hafnarstræfi, þar . sem billinn hafnaði á staur með fyrTgreindum afleiðingúm. Mikil iilvun he.fur verið á ísa- firði utn bænadaganá. Að sögn lögreglunnar hefur verið nóg að gera, þó að engir stærri atburðir hal'i átt sérstað. —AT

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.