Dagblaðið - 20.04.1976, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. APRlL 1976.
Brezka snobbið er
of kostnaðarsamt
— segir verkalýðsleiðtoginn Jack Jones
Í kjölfar kosningabaráttunnar á vesturbakka Jórdanár, í Galileu og i Austur-Jerúsalem brutust út
mikiar óeirðir, enda þótt ljóst sé, áð þjóðernishreyfingar hafi unnið sigur í þeim kosningum. Hér sést
kona ein reyna að stilla til friðar í óeirðum sem brutust út í Nasaret um kosningarnar.
,,Allur heimurinn veltist um
af hlátri af stéttaskiptu snobb-
þjóðfélagi Breta,” sagði verka-
lýðsleiðtoginn Jack Jones í
ræðu í Skotlandi í gær.
A fundi með fulltrúum
verkalýðsfélaga sagði hann, að
það væri engin furða, að fólk
væri farið að krefjast þess, að
stofnanir eins og lávarðadeild
þingsins yrðu lagðar niður.
Jack Jonos, hínn
áhrifamikli vorka-
lyðsleiötogi, vill aö
'brezkar snobbstóttir
lœri aö leika sór á
róttan hótt.
,,Geta þægindastéttirnar í
þjóðfélagi okkar ekki lært að
leika sér án þess að til þurfi að
koma fáránlegar samkotnur
eins og Ascot," spurði hann.
Þar átti hann við veðreiðarnar
frægu, sem draga ti! sin rjóm-
ann af öllum snobbfólki Bret-
lands.
„Bretar eru hnípin þjóð i
vanda, og'nú þurfum við á and-
rúmslofti því að halda, er ríkti
við atburðina í Dunkirk hér um
árið,” sagði verkalýðsleiðtoginn
ennfremur.
Jones, sem hefur verið einn
af höfundum launaáætlunar-
innar undanfarið ár, sagði, að
verkalýðshreyfingin hefði átt
stórar. þátt í því að halda þjóð-
íelaginu a floti i gegnum erfiða
tíma.
Varaði hann viö ósamlyndi
innan hreyfingarinnar og
innan verkalýðsflokksins, sem
hann sagði, að stofna kynni öllu
því, sem nú væri verð að b.vggja
upp, í verulega hættu.
Kastró hótar uppsögn
flugránssamningsins
Forsætisráðherra Kúbu,
Fidel Kastró, hefur hótað því
að slíta samkomulagi því, er
gert var við Bandaríkin árið
1973 og koma átti í veg fyrir
flugvélaránin tíðu, er þá höfðu
orðið.
Segir hann þetta verða gert
til þess að mótmæla árásum
kúbanskra flóttamanna, sem
búsettir eru í Bandaríkjunum,
á fiskimenn frá eynni.
í framhaldi af þessu kallaði
hann Ford Bandaríkjaforseta
„hrokafullan lygara” vegna
ummæla forsetans um þátt
Kúbúmanna í frelsun Angóla.
Einn fiskimaður frá Kúbu lét
lífið í vélbyssuskothríð á
miðunum undan Miami nú
fyrir skömmu. Hafa kúbönsk
flóttamannasamtök lýst allri
ábyrgð á hendur sér.
Áhrif Kúbumanna á gang
heimsmála hafa farið stórvax-
andi á undanförnum árum og
sjást þau bezt á þætti þeirra í
frelsun Angóla. Nú hefur
Kastró hótað að rjúfa sam-
komuiagið við Bandaríkja-
menn um gagnkvæma hindrun
flugvéiarána.
Ástralía:
Boltaleikur
endaði
með
skotsárum
Móðir lítils drengs, sem
sparkaði bolta sínum inn í garð
nágrannans, og maður sem
neitaði að skila boltanum, eru
bæði á sjúkrahúsi í Sydney í
Astralíu, hættulega særð af
völdum skotsára.
Að sögn lögreglunnar hófst
rifrildið, er foreldrar drengs-
ins fóru yfir til nágrannans til
þess að sækja boltann. Kom til
átaka og hlaut maðurinn mikið
skotsár á brjóstið. Konan
særðisi á fótum.
24 ára gamall maður mun
verða sóttur til saka fyrir
verknað þennan, en ákærur
verða einnig lagðar fram á
hendur fleiri mönnum, sent
viðriðnir eru atburðinn.
Inn áfðk á vesturbakka
Jórdanár:
Arabi féll
fyrir kólum
ísraelskra
hermanna
— þrír aðrír sœrðust
Til nýrra átaka kom í gær á
hernámssvæði ísraelsmanna á
vesturbakka Jórdanár. í átökun-
um, sem voru á milli ísraelskra
hermanna og arabískra andmæl-
enda, lét einn Arabi lífið og þrír
særðust hættulega.
Til átakanna kom þegar tugir
þúsunda öfgafullra ísraelskra
þjóðernissinna luku tveggja daga
göngu um hernámssvæðið til að
leggja áherzlu á kröfur sínar um
frekara landnám ísraelsmanna á
vesturbakkanum.
Fórnarlamb átakanna í gær, 55
ára gamall maður, var grafinn
síðar í gærdag. Tugþúsundir
manna voru við útförina og öllum
verzlunum var lokað á meðan.
Ganga þjóðernissinnanna var
tíðindalaus þar til kom að enda-
stöð í útjaðri Jeríkó-borgar. Þar
kom til þeirra átaka, er leiddu til
dauða og meiðsla Arabanna fjög-
urra.'
Stórmerkilegt mál fyrir
Hœstarétti Bandaríkjanna:
Er réttur
fjölmiðla meiri
en hins ákœrða?
Ákæruvald bandaríska ríkisins
í Washington lagði í gær fram það
álit við Hæstarétt Bandaríkjanna,
að þótt af og til væri sett bann á
fréttaflutning fjölmiðla frá meiri-
háttar réttarhöldum, þá væri það
ekki nema hæfilegt gjald fyrir
vernd einstaklingsins.
Lögfræðingar ákæruvaldsins
fóru þess á leit við Hæstarétt, að í
engu yrði hvikað frá ákvörðun
um það, sem kallað hefur verið
„múlbindiskipanir,” í réttarhöld-
unum yfir landbúnaðarverka-
manninum Erwin Simants. Hann
hefur verið dæmdur til dauða
fyrir að myrða sex manna fjöl-
skyldu í Nebraska.
Lögfræðingar fjölmiðla sögðu
tilskipun réttarins um bann við
fréttaflutningi hafa verið ónauð-
synlega, en hún hafi orðið til þess,
að dómarar í öðrum málum hafi
sett á svipuð bönn.
Fjórir réttarúrskurðir komu í
veg fyrir fullan fréttaflutning frá
Simants-réttarhöldunum í ellefu
vikur á meðan hinir ýmsu
dómarar reyndu að koma sér
saman um hve langt þessar tak-
markanir ættu að ganga. Allir
höfðu fyrst og fremst í huga að
vernda rétt hins ákærða án þess
að takmarka fréttaflutning um of.
Þetta er eitt érfiðasta málið,
sem Hæstiréttur verður að taka
afstöðu til áður en sumarleyfi
hef jast í júní.
Rétturinn verður að úrskurða,
hvort sá réttur, sem fjölmiðlum er
tryggður í stjórnarskránni til að
finna og birta fréttir, verði á
stundum að víkja fyrir stjórnar-
skrárlegum réttindum ákærðra til
réttarhalda frammi fyrir hlut-
lausum kviðdómi.
Indverjar og Pakistanir
rœða stjórnmálasamband
Pakistanir hafa þegið boð Ind-
verja um að senda fulltrúanefnd
til Islamaband til að ræða endur-
upptöku stjórnmálasambandsins,
sem slitið var 1971, að því er hin
opinbera fréttastofa i Pakistan
skýrði frá í gær.
Tilboð lndverja kont frarn- í
bréfi, sem Indira Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands, skrifaði
Ali Bhutto, forsætisráðherra
Pakistan, 11. apríl. Bhutto
skrifaði um hæl og sagðist reiðu-
búinn að taka á móti sendinefnd-
inni. Hann tók frarn í bréfi sínu,
að einnig væri rétt að ræða endur-
upptöku samgangna á milli land-
anna. bæði í lofti og á láði.
Bhutto skrifaði frú Gandhi
fyrst í rnarz og bauðst þá til að
láta niður falla kæru Pakistana á
hendur Indverjum til Alþjóða
flugmálastofnunarinnar (ICAO)
þess efnis. að bann Indverjá við
flugi pakistanskra flugvéla vfir
indversku landi væri ólöglegt.
Indverjar litu á það frumkvæði
Bhuttos sem ntikinn sigur fvrir
sig.