Dagblaðið - 20.04.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. APRlL 1976.
Erlendar
fréttir
REUTER
Verkfall járnbrau tars tarfsmanna í Japan:
40 MILLJÓNIR MANNA
í UMF&ÐARÖNGÞVím
7
Sendiherrann
varð óður
og hóf
skothríð
Sendiherra Líbýu í Egypta-
landi, Milod El-Sedik, dró upp
vélbyssu, skjálfandi af reiði og
hrópandi: „Ég er byltingin
. . .Eg drep ykkur öll!”, og hóf
skothríð á stúdenta, sem héldu
uppi mótmælaaðgerðum á
sendiráðslóðinni í Kairo i gær,
að sögn sjónarvotta.
Þeir skýröu frá því, að
sendiherrann hefði skotið sex
hryðjum að 40—50 stúdentum,
sem lögðu sendiráðslóðina
undir sig í mótmælaskyni við
meintar pynting.ar háskóla-
stúdenta i Líbýu.
Enginn varð fyrir skotum,
að því er bezt verður séð af
fréttum.
Skírnarathöfnin
endaði með
skelfíngu:
Snákur
drap
þrjá
itienn
Prestur og tveir safnaðar-
meðlimir létu líf-ið, er eins
metra langur snákur réðist inn
í skírnarathöfn baptista i á
einni við þorpið Soweto í
Suður-Afriku.
Presturinn, Sydney Kuene,
stóð úti í ánni og bjó sig undir
að skíra konu eina með
idýfingu, er snákurinn réðist á
þau og hurfu þau bæði undir
yfirborðið, að sögn sjónarotta.
Er reynt var að koma þeim
til hjálpar, renndi snákurinn
sér upp á árbakkann og drap
enn einn safnaðarmeðlim,
áður en hann komst í burtu.
Einkabifreiðir, sem nánast
námu hver við aðra, mynduðu
15 kílómetra langar raðir á
áðalvegunum inn til Tokyo í
Japan, er fjögurra daga verk-
fall verkamanna í öllum deild-
um flutninga hófst í gær.
Nær allar járnbrautarferðir
lágu niðri, sem þýðir, að um 40
milljónir manna, eða um þriðj-
ungur þjóðarinnar verður að
koma sér til vinnu á annan hátt.
Aðeins sárafáar innansveitar-
járnbrautir voru í gangi.
Verkfallið, sem hófst á
miðnætti, var gert að beiðni
hins öfluga félags járnbrautar-
starfsmanna ríkisins, sem
þannig urðu fyrstir til þess að
leggja fram kaupkröfur verka-
manna í Japan fyrir vorið.
Skömmu síðar ákváðu starfs-
menn við ellefu af stærstu járn-
brautarfyrirtækjum í einka-
eign að leggja niður vinnu.
Borgarstarfsmenn sem vinna
við fólksflutninga í 39 stærstu
borgum Japans lögðu niður
vinnu við strætisvagnaakstur
og við akstur neðanjarðarlesta í
nokkra tíma, eða til kl. átta í
niorgun að þeirra tima. Um tíu
þúsund lögreglumenn voru til
kvaddir til að halda uppi lögum
og reglu á biðstöðvum vagna og
lesta og eins að koma í veg
fyrir, að öfgasinnar til beggja
hliða í stjórnmálum notfærðu
sér ringulreiðina til uppþota.
Ekki hafa borizt neinar
fréttir af óeirðum þegar hér er
komið sögu.
Félög járnbrautarstarfs-
manna krefjast 15.200 yena
kauphækkunar á mánuði, eða
um 9000 króna, en hafa áður
hafnað tilboði vinnuveitenda
um 6000 króna kauphækkun á
mánuði.
Eins og áður sagði, mun verk-
fallið hafa áhrif á líf milljóna
manna, sem sækja vinnu sína
til Tokyo. Þó mátti sjá menn
búa sig undir að sofa á skrif-
stofum og í verksmiðjum.
Mættu menn með birgðir af
hreinum sokkum, skyrtum og
handklæðum og ætla að láta
fyrirberast á vinnustað þar til
verkfallinu lýkur.
Þeir, sem á annað borð fóru
heim, lentu í miklum vandræð-
um með að komast til baka
a.m.k. í öllum stærri borgum I
Japan. Þar eru öll hótel yfirfull
og langar bióraðir hafa
myndazt við þá staði er selja
morgunverð.
Líbanon:
Aftökur á almannafœrí
— vanvirði menn vopnahléð
Leiðtogar líbanskra vinstri-
manna.og palestínsku skæru-
liðanna hétu því snepima í
morgun að sýna enga miskunn
beim, er lítilsvirtu óstöðugt
vopnahléð i landinu. Skipti þá
engu máli hver ætti í hlut.
1 sameiginlegri yfirlýsingu.
sem gefin var út um leið og
fjöldi sprenginga glumdi við í
Beirút, sagði að hver sá, sem
fremdi morð eða annan alvar-
legan glæp, yrði tekinn af lífi á
almannafæri.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar
fundar, sem haldinn var í gær
þar sem ákveðið var hvernig
eftirliti með vopnahlénu yrði
hagaó. Fundinn sátu háttsettir
herforingjar. Þeir munu halda
áfram fundahöldum í dag.
Nefndin var kölluð saman að
frumkvæði Sýrlendinga og
Palestínuskæruliðanna.
Suleiman Franjieh, forseti
Líbanon.
Sigur kommónista í kosningunum á Ítalíu fyrirsiáanlegur
Cnn þrengir að Ródesíu
— eftir að skœruliðar sprengdu upp járnbrautina til S-Afríku
Efnahagslegri afkomu minni-
hlutastjórnar hvítra manna í
Ródesíu hefur enn verið ógnað
með árásum blakkra þjóðernis-
sinna. Aðgerðir blökkumann-
anna hafa m.a. leitt til þess,
að vega- og járnbrautasamband
Ródesíu við Suður-Afríku
hefur verið rofið.
Um tuttugu manna skæru-
liðahópur sprengdi í gær upp
aðaljárnbrautarleiðina á milli
landanna og felldi þrjá suður-
afriska ferðamenn i nágrenn-
inu, að sögn lögreglunnar.
Þetta var fyrsta meiriháttar
árás skæruliða í suðaustur-
hluta Ródesíu. Talið er að um
tvö hundruð skæruliðar séu nú
á því svæði og að þeir hafi
komið frá Mósambik eftir leið,
sem nú hefur verið lokað.
Um járnbrautarleiðina fara
um 60% af öllum viðskiptavör-
um Ródesíu. Vörurnar fara í
gegnum Suður-Afriku í trássi
við viðskiptabann Sameinuðu
þjóðanna.
• Eina út- og aðflutningsleið
Ródesíu á landi síðan Mósam-
bík lokaði landamærunum 3.
marz er járnbrautarleið til S-
Afríku í gegnum Botswana, en
sú leið getur engan veginn
borið nægilega mikið og
miklum erfiðleikum er bundið
að auka á afkastagetuna.
Eftir að skæruliðar sprengdu í sundur járnbrautarlínu og vegi til S-Afríku er eína leíð Ródesiumanna
til sjávar um Botzvana. Sú flutningaleið ber hins vegar ekki mikla umferð. A siðustu mánuðum hefur
hervæðing í Ródesiu stóraukizt og hefur Ian Smith verið það mikið í mun að sýna, að i hernum séu
bæði svartir menn og hvítir, þótt óvinurinn sé —.. svartur. Myndin er frá heræfingum í Rodesíuher.
Kristilegir demókratar berja nestið
Stjórnmálaöngþveitið á Italíu
getur tekið á sig nýja mynd, er
kristilegir demókratar hefja við-
ræður við aðra stjórnmálaflokka
til að koma í veg fyrir almennar
kosningar.
Flestir spámenn í ítölskum
stjórnmálum fá ekki séð, að
viðræður formanns Kristilega
demókrataflokksins, Zaccagini,
við aðra stjórnmálaleiðtoga, eigi
eftir að verða árangursríkar.
Ef til kosninga kemur í júní nk.
er það álit flestra, að kommúnist-
ar nái miklum meirihluta, enda
stærsti flokkurinn. Munu þeir þá
binda enda á yfir 30 ára valdatíð
kristilegra demókrata.
Sósíalistar, en stuðningur
þeirra er nauðsynlegur til þess að
stjórn kristílegra demókrata fái
haldið velli, hafa fyrirfram
hafnað tillögum Zaccaginis, um
efnahagslegar neyðarráðstafanir.
Kommúnistar hafa látið í ljós
áhuga á að hæra þær tillögur, en
eru efins í að þær leysi einhvern
vanda.
Mótmælaaðgerðir við margar af
helztu verksmiðjum á Italíu, aug-
ljóslega af stjórnmálalegum toga
spunnar, hafa aukizt mjög undan-
farna tíu daga og margir stjórn-
málamenn óttast, að ríkisstjórnin
segi af sér innan skamms og að
þing verði leyst upp, sem þýðir
nýjar kosningar, eins fljótt og
auðið verður. Eins og áður segir
er talið fullvíst. að kommúnistar
nái miklunt meirihluta. Kissinger,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefur látið svo ummælt, að
riki Vestur-Evrópu geti ekki
vænzt þess að Bandaríkin verji
þau árásum úr austri, ef til
kemur, séu kommúnistar þar við
stjórn. Hafa ummæli þessi að
vonum vakið mikla eftirtekt og
verið harðlega mótmælt víða um
heim.