Dagblaðið - 20.04.1976, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1976.
Hvað segja stjðrnurnar?
Spáin fíildir fyrir miðvikudaginn 21. apríl
Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.):
Akvörðun, sem tekin var í flýti, þarfnast
nú nánari umhugsunar vegna breyttra
aðstæðna. Hugsaðu vandlega um öll smá-
atriði og allt mun veitast þér auðveldara.
Fiskarnir (20. febr.—20. marz): Einhver
sem kemur títt i fyrirtæki þitt í viðskipta-
erindum sýnir á sér aðra hlið, e.t.v. þá
rómantísku. Ungt fólk kann að krefjast
meiri tíma af þér en áður hefur verið og
ekki er víst að þú hafir þann tíma aflögu.
llrúturinn (21. marz—20. apríl): Féiagi
þinn virðist vera að fá þig til að gera
eitthvað, sem þú kærir þig ekki um. Vertu
staðfastur og neitaðu það reynist þér
betur þegar til lengdar lætur. Einhver
nákominn gerir þig mjög hamingjusaman.
Nautið (21. apríl—21. maí): Þú munt fá
tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á ein-
hvern mjög merkilegan af hinu kyninu.
Láttu það ekki á þig fá þó allir hafi ekki
áhuga á tómstundagamni .þínu.
Tvíburarnir (22. maí—21. júní): Þú
verður e.t.v. beðinn um að taka að þér að
stjórna mannfagnaði eða fundi. Vertu
óragur því stjörnurnar eru allar þér í hag.
Láttu eiga sig að trúa nokkrum fyrir
rómantísku leyndarmáli þínu.
Krabbinn (22. júní—23. júlí): Peninga-
málin virðast skapa svolitla erfiðleika.
Geturðu nú ekki skorið niður útgjöld á þvi
sem er ekki alveg það brýnasta? Ágætur
dagur fyrir ferðalög og skipulagningu á
sumarferðum.
Ljónið (24. júlí—23. ágúst): Tillögur
þínar virðast falla í góðan jarðveg. Fólk í
þínu merki hefur oft skemmtilegt hug-
myndaflug og geta jafnvel gert drepleiðin-
leg málefni spennandi. Þess vegna eru
ljónsmerkingar oft frábærir kennarar.
Meyjan (24. ágúst—23. sept.): Þú verður
að inna af hendi greiðslu í dag og það án
tafar. Þegar það mál er frá, mun það létta
þungum áhyggjum af þér. Þú gerir rétt í
því að biðja um ráð varðandi vandamál
sem þú átt við að stríða.
Vogin (24. sept.—23. okt.): Láttu gagn-
rýni á nýja hugmynd þína engin áhrif
hafa en haltu striki þínu. Þú átt skemmti-
legan endurfund með gömlum félögum.
Eitthvað er að gerast í einkalífi þínu sem
mun hafa langvarandi áhrif á líf þitt.
Sporðdrekinn (24. okt,—22. nóv.): Virðist
vera skemmtilegur dagur enda þótt fátt
gerist eins og ætlazt var til. Reyndu að
orða álit þitt á yngri manneskju eins var-
lega og þér er unnt því aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Eitt-
hvað virðist bjáta á á félagsmálasviðinu
hjá þér. Fjölskyldulífið býður upp á margt
og þú mundir njóta þess betur að slappa
af með þínu heimafólki í kvöld.
Steingeitin (21. des,—20. jan.): Einhver
óvænt heppni er með í spilinu. Þú þarft að
vera vel upplagður þegar þú svarar bréfi.
Vinur þinn mun trúlega biðja þig að
hjálpa sér.
Afmælisbarn dagsins: Framfarir þetta
árið eru undir þvi komnar að þú sýnir iðni
og að þú sért tilbúinn að fórna nokkru af
frístundum þínum. Ástæarævintýri mun
afar líklega verða þér að hjartasári. En
þegar því sambandi lýkur loksins muntu
draga andann léttar. Gott sumarfrí er
framundan en þú þarft að gæta hófs í
útgjöldunum.
Þclta lal um crfiða samninga gcngur ckki
lcngur. Vcrklállið cr l'yrir liingu Iniið. Lalli sæll.
,,Það er bara svona — kertaljós og kampavín. Þetta er
eins og í gamla daga — ég er bara strax allur farinn að
lifna við.”
Reykjavík: Lögreglan sími 11166. slökkvilið
og sjúkrabifreiðsími 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið sími 51100
Keflavík: Lögreglan sími 3333. Sjúkrabifreið
1110. Slökkvistöðin 2222.
Akureyri: Lögreglan sími 23222. Slökkvi- og
sjúkrabifreið sími 22222.
Vestmannaeyjar: Lögreglan sfmi 3333. Sjúkra-
bifreið 1110. Slökkvistööin 2222.
Bilanir
Rafmagn: í Reykjavík og Kópavogi, simi
18230. í Hafnarfirði í síma 51336.
Hitaveitubilanir: Simi 25524.
Vatnsveitubilanir: Sími 85477.
Símabilanir: Simi 05.
Bilanavakt
borgarstofnana
Sími 27311.
Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til
kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan
sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitu-
kerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum,
sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð
borgarstofnana.
Reykjavík — Kópavogur
Dagvakt: Kl. 8—17. Mánudaga, föstudaga, ef
ekki næst í heimilislækni, sími 11510. Kvöld-
og næturvakt: Kl. 17—08 mánudaga —
fimmtudaga, simi 21230.
Á laugardögum og helgidögum eru lækna-
stofur lokaðar, en læknir er til viðtals á
göngudeild Landspítalans, sími 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjón-
ustu eru gefnar í símsvara 18888.
Orðagóta 18
Clátan líkist venjulegum krossgátum. Lausnir
koma í láréttu reitina, en um leið kemur fram
orð í gráu reitunum. Skýring þess er:>
HKIMSÁLFA
1. Ilugmyndaauðuga 2. Minnstur 3. Hljóð 4.
Vagninn (þf) 5. Granda 6. Til viðbótar 7.
Laskaða.
Lausn á orðagátu 17: 1. Neikvæð 2. Fillinn 3.
Daglega 4. íslenzk 5. Fegurri 6. Hundtik 7.
Kreppta. Orðiðí gráu reitunum: NÍCiEljlA.
Sjúkrabitreið: Reykjavfk og Kópavogur, simi
11100. Hafnarfjörður, sími 51100.
Tannlœknavakt: er í Heilsuverndarstöðinni
við Barónsstíg alla laugardaga og sunnudaga
kl. 17—18. Sfmi 22411.
Apötek
Kvöld-, nætur- og nelgidagavarzla vikuna
16.-22. apríl er varzlan í
Háaleitisapóteki og Vesturbæjarapóteki.
Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt
vörzluna á sunnudögum, helgidögum og al-
mennum frídögum, einnig næturvörzlu frá
kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virka daga,
en til kl. 10 á sunnudögum, helgidögum og
almennum frídögum.
Hafnarfjörður — Garðabær
nætur- og helgidagavarzla,
upplýsingar a siökkvistöðinni í síma 51100.
Á laugardögum og helgidögum eru lækna-
stofur lokaðar en læknir er til viðtals á
göngudeild Landspítalans, sfmi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu
eru gefnar f símsvara 18888.
borgarspítalinn: Mánud. — föstud. kl. 18.30 —.
19.30. Laugard. — sunnud. kl. 13.30 — 14.30
og 18.30—19.
Heilsuvemdarstöðin: Kl. 15—16 og kl.
18.30— 19.30.
Fæðingardeild: Kl. 15—16 og 19.30—20.
Fæðingarheimili Roykjavíkur: Alla daga kl.
15.30— 16.30,
Kleppspítalinn: Alla daga kl. 15 — 16 og
18.30— 19.30.
Flókadeild: Alla daga kl. 15.30—16.30.
Landakot: Kl. 18.30 — 19.30 mánud. —
föstud., laugard. og sunnud. kl. 15—16.
Barnadeild alla daga kl. 15—16.
Grensásdeild: Kl. 18.30—19.30 alla daga og kl.
13—17 á laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Mánud. — föstud. kl. 19.—19.30.
laugard. og sunnud. á sama tfma og kl.
15—16.
Kópavogshælið: Eftir umtali og ki. 15—17 á.
helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.—laugard. kl.
15—16 og kl. 19.30—20. Sunnudaga og aðra
helgidaga kl. 15—16.30.
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 — 16 og 19 —
19.30.
Bamaspítali Hringsins: Kl. 15 — 16 alla daga.
ffí Bridge
f>
Á stóru alþjóðamótunum er
skrifað um spil mótsins — spil
ársins — og hér er spil, sem
belgíski meistarinn Raemakers
fékk mikið lof fyrir. Hann spilaði
fjögur hjörtu dobluð á spil suðurs
og vestur spilaði úr laufa-
drottningu.
Norður
A G108532
Á754
0 ÁD7
4 ekkert
Vestur
AD864
^ekkert
010862
*DG874
Austur
♦ A
G963
0 KG5
* ÁK1032
Í5UÐUR
*K7
KD1082
0 943
* 965
Sagnir gengu þannig:
Austur
1 lauf
4 lauf
dobl.
Suður Vestur
1 hj. 2 lauf
pass pass
pass. pass
Norður
2 sp.
4 hj.
pass.
Raemakers trompaði í blindum
og spilaði spaðatvisti. Austur
drap á ás og eftir talsverða um-
hugsun lét Belginn kónginn!!.
Greinilegt að hann þurfti að gera
spaðann góðan og innkomur á spil
blinds ekki of margar.
Austur spilaði laufakóng, sem
var trompaður í blindum. Þá kom
hjartaás — siðan tlunni svínað
þegar legan kom í ljós og trompin
tekin af austri. Tígulsjöi og
drottningu kastað úr blindum. Þá
spilaði Raemakers spaða og allt og
sumt sem vestur gat gert var að
taka á spaðadrottningu og slðan
laufslag. Unnið spil — tveir
tapslagir á spaða og einn á lauf.
Sf Skák
Svartur leikur og vinnur.
1. — Dxg2+!! 2. Dxg2 — Rg3+!
3. hxg3 — Hh8 mát.
.. .eeer. . .hæætttt aaað skkjááálfffa?
Ég var nefnilega að horfa á Jarðskjálftann
Laugarásbíói!