Dagblaðið - 20.04.1976, Page 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1970.
i
Útvarp
27
I
Sjónvarp
HVERNIG Á HEIM-
URINN AÐ VERA?
„Þessi mynd er sterkur baráttu-
boðskapur fyrir friði i heimin-
um,” sagði Ingi Karl Jóhannesson
þýðandi myndarinnar 1 nafni
friðarins, sem er á dagskrá sjón-
varpsins kl. 20.40 í kvöld.
„Myndin er gerð af sömu
«C
Það verður fróðlegt að sjá
hvernig börn hugsa sér að
heimurinn eigi að vera. Alls
bárust um 20 þúsund teikningar í
teiknisöfnuninni, sem gerð var í
tiiefni af friðardeginum.
aðilum og gerðu mynd um börn í
flóttamannabúðum í Sýrlandi,
sem sýnd var fyrir skömmu í sjón-
varpinu. Hún er gerð árið 1969 í
tilefni friðardagsins 1969.
Þá var skipulögð eins konar
teiknisamkeppni eða teiknisöfn-
un. Þessir hollenzku aðilar fengu
20 þúsund teikningar frá „börn-
um” á aldrinum 5-95 ára og
„mótífið” var eitthvað
viðkomandi friði og betri framtíð.
Inn í það fléttast stríðsógnir.
Hluti þessara teikninga eru
sýndar í myndinni. Þarna er
brugðið upp myndum úr hugar-
heimi barnanna og hvernig þau
hugsa sér að heimurinn eigi að
vera í framtíðinni.”
— Eru þessar teikningar frá
börnum um allan heim?
„Eg held að þær séu fyrst og
fremst’ frá hollenzkum bör,num
eða jafnvel eingöngu, en annars
kemur það ekki alveg nógu skýrt
fram í mvndinni,” sagði Ingi Karl
Jóhannesson.
—A.Bj.
Sjónvarp kl. 21.30:
HERIRNIR STÓÐU ÓJAFNT AÐ
VÍGI í FRUMSKÓGAHERNAÐINUM
Þátturinn um heimsstyrjöldina
síðari er á dagskránni í sjónvarp-
inu í kvöld kl. 21.30, 14. þáttur,
sem nefnist Styrjöldin í Burma.
Þýðandi og þulur er Jón O. Ed-
wald.
Þátturinn byrjar á þvi þegar
Japanir sóttu inn í Burma. Þar
var lítið um varnir því Bretar
voru ekki viðbúnir innrásinni. í
marz 1942 tóku Japanir höfnina í
Rangoon.—
Burma var mjög mikilvægt
land fyrir margra hluta sakir. Það
var mikið hrisgrjónaland og þar
voru einnig aúðugar olíulindir.
Þar var einnig unnið mikið af
wolfram, sem var mikilvægt við
hergagnaframleiðslu. Einnig voru
miklar gimsteinanámur í landinu.
Auk þess var landið mjög hern-
aðarlega mikilvægt sökum
Burmabrautarinnar, en hana
notuðu Bandaríkjamenn til þess
að flytja matvæli og hergögn til
Kínverja, Japönum tókst að halda
Burma í þrjú ár. því það var ekki
fyrr en í maí 1945 sem banda-
menn náðu Rangoon aftur á sitt
vald.
Frá Burma réðust Japanir svo
inn í Indland og sóttu hart fram
að borgunum Imphal og Kohima.
Þeir náðu þeim þó ekki, þótt mj.óu
munaði. í Indlandi urðu mjög
harðir bardagar og mikið um ná-
vígi, auk þess sem veðurfar var
afar slæmt. monsúntíminn
byrjaður og alltaf rigning. Einnig
herjuðu ýmsir hitabeltissjúk-
dómar á bandamenn.
Bretar spyrntu við fótum í Ind-
landi og voru nú bandarískir
sjálfboðaliðar komnir til bardag-
ans. Voru þeir undir stjórn Merr-
ills hershöfðingja en einnig tóku
kínverskar og indverskar her-
deildir þátt í bardaganum við
Japani. Voru þær undir stjórn
bandaríska hershöfðingjans Still-
well, en hann átti sæti í herráði
Chiang-Kai-Shek. Yfirmaður alls
herafla bandamanna í Suðaustur-
Asíu var Wavell, sem kunnur var
úr styrjöldinni í Norður-Afríku.
Eftir ntjög harða bardaga tókst
bandamönnum að reka Japani til
baka. Urn það leyti tók Louis
Mountbatten lávarður við yfirher-
stjórn Breta í Asíu.
Það sem gerði að Bretum vegn-
aði illa frarnan af var að herdeild-
ir þeirra voru óvanar frum-
skógahernaði, en Japanir þaul-
kunnugir honum. Þeir notfærðu
Sér vel alla aðstöðu í frumskógin-
um, urðu aldrei matarlausir og
Frumskógahernaður — Baráttan við Japani var oft og tíðum erfið
vegna reynsluleysis herja bandamanna í frumskógahernaði en
þegar á leið fór þeim að ganga betur. Hér eru bandarískir hermenn
á Nýju-Guineu en þar áttu þeir í stanslausum frumskógahernaði frá
1941—1945.
gáfust heldur aldrei upp.
Áður en þeir fóru að heiman
klipptu þeir neglur sínar og hár
og skildu eftir hjá ættingjum'til
þess að eitthvað væri eftir af
þeim til þess að jarða, ef þeir
kæmu ekki aftur sjálfir. Þeir litu
svo á að keisarinn ætti lif þeirra.
Það rná til gamans geta þess að
á sl. ári fannst Japani nokkur í
frumskógi á einni Kyrrahafseyju.
Hann hafði orðið viðskila við her-
deild sína á meðan á stríðinu stóð
og vissi ekki um að því var lokið.
Hann var enn að „berjast”.
—A.Bj.
23.00 Á hljnðbergi. Dylan Thomas: Ht'im
til Swansea. (Return Journey to
Swansea). Höfundurinn ot* leikarar
brezka útvarpsins flytja.
23.30 Fréttir. Dagski^árlok.
Miðvikudcgur
21. apríl
7.00 Morgunútvarp.Veourfregnir kl. 7.00,
8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15
og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra Gunnar
Björnsson flytur. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Hreiðar Stefánsson les
framhald sögu sinnar ..Snjallra
snáöa" (2). Tiikynníngar kl. 9.30. Létt
lög milli atriöa. Krossfari á 20. öld. kl.
10.25: Benedikt Arnkelsson eand.
theol. flytur sjöunda og síöasta þátt
sinn um predikarann Bill.v Graham.
íslenzkt mál kl. 10.40: Endurtekinn
þáttur Asg. Bl. Magnússonar. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Suisse Romande
hljómsveitin leikur ..Espana".
rapsódíu eftir Chabrier: Ernest
Ansermet stjórnar. Victoria de los
Angeles syngur lög eftir Duparc vió
hljómsveitarundirleik / Hollywood
Bowl hljómsveitin leikur Capriccio
Espagnole eftir Rimský-Korsakoff.
Felix Slatkin stjórnar.
G
^Sjónvarp
D
Þriðjudagur
20. apríl
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 í nafni friðarins. Hollensk mynd,
sem fjallar um þær hugmvndir, sem
börn geia sér um stríó og frirt. Þýð-
andi og þulur Ingi Karl Jóhanriesson.
21.05 Nei, ég er héma. Breskur gaman-
m.vndaflokkur. Lokaþáttur. Artalhlut-
verk Ronnie Corbett. Þýrtandi Stefán
Jökulsson.
21.30 Heimsstyrjöldin siðari 14. þáttur.
Styrjöldin í Burma. Myndin lýsir innrás
Japana í Burma. en hún kom Breturn
gersamlega á ovart. Japanir komust
art landamærum Indlands, en þar hófu
Bretar gagnsókn. Þýrtandi og þulur
Jón O. Edwald.
22.25 Dagskrárlok.
(opinn krani) **
Hver borgar?
Húseigendatiygging
borgar tjón á innréttingum, málningu, vcggfóðri,
flísum o.fl.þ.h.
Heimilistrygging
borgar tjón á innbúi (húsgögnum, gólfteppum o.fl.þ.h.)
Abyrgðartrygging heimilistryggingar
borgar tjónið á 3.,2.,l.hæð og í kjallara.
Allt með því skilyrði þó að húséigenda- og
heimilistrygging sé fyrir hendi - annars ekki.
Skrifstofur okkar og umboðsraenn um land allt
veita nánari upplýsingar um HEIMILISTRYGGINGUNA
og þær endurbætur og nýjungar, sem gengu 1 gildi l.januar 1976
SAMVINNUTRYGGINGAR GT
ÁRMÚLA3.S1MI 38500
GAGNKVÆM TRYGGINGAFÉLÖG ERU SAMTÖK HINNA TRYGGÐU
SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFELAG