Dagblaðið - 25.05.1976, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976.
Almennt viðurkenna Bandaríkjamenn nú, að þeim hafi orðið á sorgieg
mistök með afskiptum sínum af styrjöldinni í Vietnam. Hér er einn af
„haukunum“ við liðskönnun: Westmoreiand hershöfðingi.
Kissinger
iðrast vegna
Víetnam
Grikkland:
150.000 verkamenn í
verkfalli gegn vilja
verkalýðssambandsins
Um 150 þúsund grískir
verkamenn héldu áfram verk-
falli í morgun til þess að leggja
áherzlu á mótmæli sfn • gegn
nýju frumvarpi rikisstjórnar-
innar um verkalýðsfélög, en
þeir telja að frumvarpið feli í
sér vissar hömlur á möguleika
til þe ss að beita fyrir sig verk
föllum í stjórnmálalegu tilliti.
Verkfallinu á að ljúka í kvöld
en að því standa um fimmtíu
verkalýðsfélög, sem ekki eru í
Alþýðusambandinu gríska.
Segja talsmenn félaganna, að
þeir muni hvetja til verkfalls á
ný, ef frumvarp þetta verður að
lögum.
Gríska Alþýðusambandið, en
í þvi eru meira en ein milljón
manna, hefur hins vegar lagzt
gegn verkfalli þessu og gerði
verulegar breytingar á frum-
varpi ríkisstjórnarinnar. Þó
hefur Alþýðusambandið gagn-
rýnt rikisstjórnina fyrir að
semja sérstaklega við starfsfólk
ríkisfyrirtækjanna Olympic-
flug og Póst og sima. Varð þetta
til þess, að lítið varð úr áhrifum
af verkfalli þeirra, er við sam-
göngur vinna.
Verkfall þetta eru fyrstu stjórn-
málaátökin sem verða i landinu
eftir að lýðræðislegum
stjórnarháttum var komið á
árið 1974, en ríkisstjórnin
segir, að áhrifa þess gæti ekki
vegna gáfulegrar afstöðu
Alþýðusambandsins.
Stjórn Karamanlisar stendur
nú frammi fyrir fyrstu stjórn-
málaátökum í landinu síðan
lýðræðislegum stjórnarháttuni
var komið á fyrir tveim árum.
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna hefur
undanfarið dvalizt í Svíþjóð, en
þar var andstaða gegn stríðinu í
Víetnam hvað mest hér í Evrópu.
A blaðamannafundi sem haldinn
var skömmu áður en heimsókn
hans lauk, lýsti hann persónuleg-
um sársauka vegna „sorglegra
mistaka," sem Bandaríkjamenn
hefðu gert í Víetnam.
„Það verður að viðurkennast,
að pegar á heildina er litið
gerðum við mikil mistök. Það
verður einnig að viðurkennast, að
fólk studdi baráttu okkar í Viet-
nam, vegna þess að það hélt, að
frelsi annarra þjóða væri undir
henni komið. Þetta var sérstak-
lega sársaukafullt tímabil í sögu
þjóðarinnar, þar scm fólk reyndi
að gera það, sem það hélt, að
væri beztfyrir Bandarikin og það,
sem væri bezt fyrir aðrar þjóðir.“
Waldheim talar
Sýrlendinga til
Aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, Kurt Waldheim flýgur til
Damaskus í dag til þess að fá
samþykki sýrlenzkra stjórnvalda
fyrir því, að friðargæzlusveitir
samtakanna fái að vera áfram í
Gólanhæðum.
Leyfið fyrir veru 1200 manna
herliðs á svæðinu rennur út á
sunnudaginn kemur. A Waldheim
að verða kominn til New York
n.k. fimmtudagskvöld, en á föstu-
dag er búizt við því að fundur
verði haldinn í Öryggisráðinu til
þess að fjalla um ferðina.
Almennt er talið, að Sýrlend-
ingar fallist á veru friðargæzlu-
sveitanna en ísraelsmenn hafa
fyrir sitt leyti gefið samþykki sitt
á þeirri forsendu, að vera liðsins
sé sjálfsögð og eigi ekki að vera
háð skilyrðum af hvorugra hálfu.
Framlenging síðasta dvalar-
leyfis var samþykkt eftir heim-
sókn Waldheims til Damaskus og
með því skilyrði, að haldin yrði
fundur um málefni þjóða Mið-
austurlanda.
Israelsmenn voru ekki við-
staddir þann fund til þess að mót-
mæla því, að frelsissamtökum
Palestínuskæruliða hafði verið
boðið að vera viðstödd umræð-
urnar.
Sérfræðingar búast þó við, að
Sýrlendingar leyfi áframhaldandi
veru herliðsins, því brottför þessi
myndi aðeins auka á spennuna i
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs, sem er nóg fyrir vegna t.d.
ástandsins í Líbanon.
Efnahagsráðstefna
SÞ siglir í strand
Þing Sameinuðu pjóðanna um
efnahagsmál (UNCTAD) sem nú
er haldið í Nairobi, hefur nú hafið
lokatilraunir til þess að reyna að
koma í veg fyrir óhöpp og hættu á
stórfelldu efnahagslegu
kapphlaupi milli ríkra þjóða og
fátækra.
Sérstök nefnd 36 fulltrúa hefur
undanfarið þingað um ráðstafanir
til þess að reyna að koma
skipulagi á skuldir ríkja þriðja
heimsins.
Fulltrúar 1 nefndinni höfðu
áður sagt, að þeim hefði alls ekki
tekizt að ná árangri á þessu sviði,
en nú er talið, að einhver
möguleiki verði á því að kynna
mönnum tillögur um það, á hvern
hátt ganga megi þannig frá
hnútunum, að ríkar þjóðir og
fátækar reyndi að brúa eða a.m.k.
minnka bilið á milli sín hvað
snertir tækninýjungar og efna-
hagsmál.
Hefur borið á örvæntingu
meðal þingfulltrúa og skal engan
undra. Fulltrúi Jamacia á
ráðstefnunni hefur sagt, að nú
dugi' ekkert nema kraftaverk og
fulltrúi Belga hefur sagt, að hann
trúi því, að slíkt kraftaverk geti
•orðið nú á síðustu viku
ráðstefnunnar.
Margir þingfulltrúa hafa sagt,
að þing þetta sé enn eitt dæmið
um tilgangslausar kjafta-
ráðstefnur Sameinuðu þjóðanna.
Stjörnurnar
sýna sig og
sjá aðra í
Cannes
Margt stórmenna og allskonar listafólks
kemur nú saman til þess aö fylgjast mefl þvi
nýjasta í kvikmyndaheiminum á kvikmynda-
hátíflinni í Cannos í Frakklandi.
Eins og alltaf gekk á ýmsu áflur en hátiflin
fór af stafl, menn voru ekki á eitt sáttir mefl
val á kvikmyndum og síflan hafa menn haft
áhyggjur af þvi hversu margt ógeflslegra
klámmynda virflist vera afl ryflja sár til rúms.
Hér má sjá brezku leikkonuna Glendu
Jackson, kvikmyndaframleiflandann George
Barry, bandarisku leikkonuna Fay Dunaway
og þýzka leikarann Helmut Berger.
Bandarískur þingmaður í kynlífshneyksli:
Tvisvar í viku hitti hann skrif-
stofustúlku, sem ekki kann á síma
— nú er h ann kvœntur og hún atvinnulaus
Ungfrú Elísabet Ray, fyrrum
riiicri-eyia, h.-fiir nú vrrið rek-
in úr vinnunni, — af manni
þcim, er hún hafði sagt vera
elskhuga sinn.
Er hér um að ræða einn á-
hrifamesta þingmann á Banda-
ríkjaþingi, Wayne Hays, sem
nú er 64 ára og hefur hann
ákveðið að stefna dagblaðinu
Washington Post fyrir það að
birta söen unefrúr.rirsnar
Elísabet, sem er 27 ára og
gædd kvenlegum-yndisþokka í
rikum mæli, á að hafa reynt að
komast til vinnu sinnar sem
einn af riturum þingmannsins,
en þá hafði læsingum á skrif-
stofunni verið breytt.
Að sögn þingmannsins hafði
hann látið ungu konuna hætta
„ir.f>i!.ltega vrgns hess r,ð hön
mætti illa til vinnu sinnar.
Sagði hann, að það hefði
hann í rauninni átt að gera
fyrir löngu. Þingmaðurinn
gekk i hjónaband fyrirskömmu
og sagði hann að slúður ung-
frúarinnar í blöð um kynferðis-
legt samband þeirra á milli
hefði verulega skaðað álit haris
ót i, við og val.ii.1 pigir.kr.nii
hans þungum áhyggjum.
Áð sögn Elísabetar eiga þau
einkaritarinn og vinnuveitand-
inn að hafa komið saman til
slíkrar iðju tvisvar sinnum í
viku á heimili hennar.
Máli sínu til stuðnings bendir
Elisabet á að ,,ég kann ekki að
vélrita, ekki að halda spjald-
sicrá. — éc cet nkic: rin:: stnr.i
svarað í símann!”
Talið er, að mál þetta eigi
eftir að draga dilk á eftir sér
fyrir framtíð þingmannsins,
sem sæti á í mörgum þing-
nefndum og búizt er við að ætli
í framboð sem ríkisstjóri í Ohio
árið 1978.