Dagblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 17
DACBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18 AGÚST 1976 17 Bruninn á Drangsnesi: Kviknaði í út r ve*"f‘'kií r kauplaust par fra rafsuðu « rœtist 'Veðrið ' í dag verður hæg suðvestlæg átt á vestanverðu landinu, skýjað en víðast þurrt i dag, en sums staðar súld i nótt. Á austanverðu iandinu verður veður þurrt, en sólarlítið en gott skyggni og hægviðri. Yfirleitt verður fremur svalt alls staðar. J Daníel Magnús Bergmann, f. 14.10. 1908, var sonur hjónanna Ásgeirs Th. Daníelssonar lóðs og skrifstofustjóra í Keflavík og Jónínu Magnúsdóttur Bergmann frá Fuglavík á Miðnesi. — Upp úr fermingu brauzt hann til þess að læra bakaraiðn bæði hér heima og úti í Kaupmannahöfn. Þegar hann kom heim frá námi gerðist hann bakari hjá Alþýðubrauð- gerðinni í Hafnarfirði, en 1940 fluttist hann til Selfoss og stofn- setti fyrstu brauðgerðina þar. Hann stofnaði einnig ásamt öðrum Selfossbió. 1948 flutti hann til Reykjavíkur. Daníel kvæntist Guðríði Guðlaugsdóttur og eignuðust þau tvo syni, Loft Grétar búsettan i Svíþjóð og Guð- laug forstjóra Karnabæjar. Þau slitu samvistum fyrir 20 árum. Daniel kvæntist síðar Jenný Jakobsdóttur og eignaðist með henni einn son, Ásgeir, og gekk hann einnig ungri dóttur Jennýar í föðurstað, Jakobínu Rut. Daníel eignaðist einn dreng áður en hann kvæntist, Gunnlaug Birgi, sölufulltrúa. Ingibjörg Bjarnadóttir f. 5. júní 1922 í Reykjavík, lézt 10. ágúst. Hún var dóttir hjónanna Elínar Jónasdóttur og Bjarna Brandssonar afgreiðslumanns hjá Alliance. Ingibjörg giftist Vil- hjálmi Guðmundssym bifreiðar stóra og eignuðust þau tvær dætur. Garðar Már Vilhjálmsson. Greniteig 16 Keflavík, andaðist 15. ágúst. Ágústína Jónsdóttir, Kleppsveg 6, andaðist 16. ágúst. Sigurvin Júlíusson, Hverfisgötu 88B, verður jarð- sunginn fimmtudaginn 19. ágúst frá Fossvogskirkju kl. 10.30. Minningarathöfn um Þórarin Helgason frá Látrum i Mjóafirði verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. ágúst kl. 3 síðdegis. Útförin verður gerð frá Vatnsfjarðar- kirkju föstudaginn 20. ágúst kl. 2 eftir hádegi. Þorsteinn Kr. Magnússon, Bústaðaveg 93, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 19. ágúst kl. 13.30. Norrœna húsið Á fimmtudagskvöldið kemur. þann 19. ágúst. er næst siðasta „Opna húsið". Þá mun dr. Sigurður Þðrarinsson flytja erindi sem hann nefnir Eldfjallavirkni á tslandi. og sýnir hann jafnframt skuKKamvndir. Dr. Sigurður mun flytja erindi sitt á sænsku og hefst það kl. 20.30. KI. 22.00 verður sýnd kvikmynd Osvaldar Knudsens ..Surtur fer sunnan." í anddyri Norræna hússins eru nú til sýnis vatnslitam.vndir eftir Færeyinginn Trándur Patursson. en hann er meðal skipverja á skinnbátnum Brendan og hefur gert þessar teikningar um borð i bátnum á leióinni frá Færeyjum til tslands. Útivistarferðir: Föstudagur 20/8 kl. 20. Krókur—Hungurfit, gengið á (irænaíjall og viðar. Fararstjðri Þorleifur Guðmundsson. Farseðlar á skrifstofunni. Lækjargötu 6. sími 14606. Færeyjaferð 16.-19. sept. Fararstjóri Haraldur Jóhannsson.. Skömmu eftir hádegi í gær varð stórbruni á Drangsnesi. Eldur Vestf írðingafélagið í Reykjavík eftir til þriggja daga ferðar austur i Lón 27.-29. ágúst i von um að sólin skini i kringum nöfuðdag. Þeir sem óska að komast með í ferðina verða að láta vita sem allra fyrst í sima 15413 vegna bíla. gistingar o. fl. Aðalfundur NAUST, Náttúruverndarsamtaka Austurlands. verður haldinn á Hallormsstað helgina 21.-22. ágúst næstkomaridi Auk aðalfundarstarfa verða á laugardag tvær skoðunarlerðir. kvöldvaka verður um kvöldið. þar sem Arnþór (iarðarsson dýra- fræðingur. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur og Hjörleifur (iuttormsson líf- fræðingur fjalla um votlendi og verndun vatnsfalla. Eftir hádegi á sunnudag. 22. ágúst. verður almennur fundur um Lagarfljót þar sem Eyþór Einarsson magister greinir frá um- hverfisrannsóknum í tengslum við miðlun vegna Lagarfossvirkjunar. Fundirnir eru opnir almenningi. kom upp í vélasal frystihússins á staðnum og magnaðist hann skjótt. Fengu menn ekki ráðið við neitt, en ekki er slökkvilið á Drangsnesi. Var kallað á slökkvi- lið frá Hólmavík og kom það fljót- iega. Var þá orðið of seint að bjarga frystihúsinu, en menn dældu vatni á pressur i frysti- klefa og tókst þannig að bjarga þeim. Eins tókst að verja íbúðar- hús, sem stendur skammt frá frystihúsinu. Ljóst er, að þarna hefur orðið mikið tjón, því um 30 manns vinna að staðaldri i frysti- húsinu og byggir staðurinn afkomu sína eingöngu á þeirri vinnu og verðmætasköpun, sem þar verður. A Drangsnesi búa um 100 manns og þaðan eru gerðir út fimm minni bátar. „Verið var að rafsjóða á verk-, stæði við hliðina á vélasalnum og mun það vera orsök eldsins," sagði Haukur Einarsson, oddviti á Drangsnesi í viðtali við Dag- blaðið. „Okkur tókst að bjarga aðalvélunum, pressum og mótorum, en allt annað brann, nema ef vera sk.vldi svolítið af framleiðslu, sent okkur tókst einnig að bjarga.“ Sagði Haukur það lán i óláni, að nýlega hefði verið skipað út tölu- verðum birgðum og því hefði verið mun minna af framleiðsl- unni í húsinu en venja er. „Húsið var tryggt, en gamalt, og ég tel ekki líklegt að trygg- ingarféð hossi langt upp í að greiða nýbyggingu," sagði Haukur ennfremur. „En það er það, sem við verðum að gera, því fr.vstihúsið var meginundirstaða alvinnulifs hér á staðnum og verkafólkið ekki tryggt gegn slíkum skaða og þvi kauplaust þar til úr rætist." HP. íþróttaviðburður í fyrsta sinn ó íslandi! KARATE-JUDO í LAUGARDALSHOLLINNI Tanaka Sensei á verðlaunapallinum eftir sigurinn á heimsmeistara- mótinu í Los Angeles 1975. Sensei Tanaka, 6 dan, tvívegis japanskur meistari og heimsmeistari árið 1975 í karate, stýrir flokki úrvals karatemanna í Laugardalshöllinni 19. ágúst nk. kl. 21.15. Judosýning undir stjórn landsliðsþjálfarans Murata, 4 dan. Jafnframt verður úrslitakeppni Íslandsmóts Karatefélags Reykjavíkur og sýning félagsmanna undir stjórn Kenichi Takefusa, 3 dan. Einstakt tœkifœri til að sjó fullkomnasta sjólfsvarnarkerfi heims. Aðeins þessi eina sýning á f immtudagskvöldið íLaugardalshöllinni Bura Sensei, 4 dan, brýtur 15 þakhellur með berum hnefum Handknattleiksdeild Leiknis [ DAGBLADID ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ SÍMI 27022 ÞVERHOLTI 2 i Til sölu Tvöfaldur stálvaskur 62x1.60 til sölu. Einnig gömul Rafha-eldavél. Sími 17654. Litið notuð Zanussi þvottavél. kringlótt borð (notað), útvarpstæki, burðarrúm, stórt barnarúm og stóll til að láta á barnavagn lil sölu. Allt vel með farið. Uppl. í síma 18522 eftir kl. 4. Eins manns svefnsófi og Philips HI FI stereo magnari 15x 15 til sölu. úppl. i síma 21128. Panel-klæðning. 65 ára ófúinn panell til siilu, mjög sérstæður og ófáanlegur í dag. Uppl. að Fellsmúla, Rangárvalla- sýslu. Símstöð Meiri-Tunga. Rafstöövar og fl. Til sölu Lister dísil 12 hestafla óg riðstraumsrafalar 3 fasa 220 og 380 volt. 1 stk. 8,5 k.v.a. — 1 stk. 10 k.v.a. — 1 stk. 13 I k.v.a. — 1 stk. 15.6 k.v.a. — 1 stk. 37,5 k.v.a. — 2500 metrar 35 kvaðrata eirvir — 18 stk. raflínustaurar. — 1 stk. dísil rafsuðuvél á vagni 300 amp. Upplýsingar í síma 32932 eftir kl. 7 á kvöldin. Túnþökur til sölu. Upplýsingar í síma 41896. Smíðajárn. Mjög fallegir smíðajárnskerta- stjakar. veggstjakar. gójfstjakar og hengikrónur til söiu. Gott verð. Upplýsingar i síma 43337 á kvöld- in og um helgar. Gólfteppi (ii sölu, 40 ferm á góðu verði. Uppl. í sirna 32286. [ Óskast keypt Miðstöðvarketill óskast. 10-12 rúmmetrar með tilhe.vrandi útbúnaði og rafmagnstúpu í sanis- konar ketil. Uppl. í sima 94-3474 og 94-3372. Öska eftir góðum miðstöðvarkatli, 2'A—3 fm. Uppl. t síma 92-6514 milli kl. 19 og 20. Góðar kojur með dýnum óskast til kaups. Uppl. í sínia 92- 8304 milli kl. 6 og 8. Verzlun Verksmiðjuútsala á undirfatnaði. Litið magn af síðum bómuliar sloppum á kr. 1.800. Komið og gerið góð kaup. Ceres, Bergstaða- stræti 52. Blindraiön, Ingólfsstr. 16. Barnavöggur margar tegundir; brúðukörfur margar stærðir; hjólhestakörfur; þvottaköiTur — tunnulag — og bréfakörfur. Blindraiðn, Ingólfsstr. 16, sími 12165. Mikið úrval af austurienzkum handunnum gjafavörum. Borðbúnaður úr bronsi, útskornir lampafætur.út- skornar styttur frá Bali og mussur á niðursettu verði. Gjafa- vöruverzlunin Jasmin h/f. Grettisgötu 64. Sími 11625. úrvals bómullargarni kr. 180. Sjón er sögu ríkari. Póstsendum. Sími 85979. Hannyrðaverzlunin Lil ja, Glæsibæ. Húsgögn Antik-húsgögn til sölu. Uppl. í síma 42649. Óska eftir að kaupa notuð skrifstofuhúsgögn, m.a. afgreiðsluborð. Tilboð sendist Dagblaðinu fyrir 28. ágúst merkt „Skrifstofuhúsgögn — 25840“ Hafnfirðingar — Hafnfirðingar, höfum opnað skrautfiskasölu. Verið velkomin. Opið frá kl. 5—8 f.vrst um sinn. Fiskar og fugiar Áusturgötu 3. Ilarðfiskur. Seljum brotafisk, saltfisk og marineraða síld. Opið alla daga til kl. 18. Hjallfiskur hf. Hafnar- braut 6, Kópavogi . Konur—útsaia. Konur innanbæjar og utan af landi. Hannyrðaverzlunin Lilja, Glæsibæ, býður ykkur velkomnar. Við erum með útsölu á öllum vörum verzlunarinnar, svo sem hannyrðapakkningum, rya, smyrna, krosssaum, góbelin, naglalistaverkum, barnaútsaums- mvndum og ámáluðum stramma.; Heklugarnið okkar er ódýrasta heklugarn a íslandi. 50 gr afi Tekkbókahilla, tekkborðstofuskápur, 4ra sæ sófasett með stáldfótum, sva>- flauelsjakki á fermingardrer dúkkuvagn til sölu. Uppl. í 74447 eða 72767.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.