Dagblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 13
DACBLAÐIÐ.
MIÐVIKUDAGUR 18. AGUST 1976
13
jþróttir
þróttir
Nú er 1. deildin í
sjónmdli hjó ÍBY
Vestmannaeyingar tryggðu
stöðu sína enn frekar á toppi 2.
deildar þegar þeir sigruðu
Ármann i 2. deiid íslandsmótsins
í Eyjum í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 3-1 og hefði sigur
Eyjamanna átt eftir atvikum að
vera mun stærri en raun ber vitni
þar sem þeir höfðu yfirburði frá
upphafi til enda. En engu að
síður tvö dýrmæt stig og nokkuð
ljóst að ÍBV stefnir á sigur í 2.
deild — fátt getur nú komið í veg
fyrir það.
Eyjamenn fengu sannkallaða
óskabýrjun því eftir aðeins 6
mínútur lá knötturinn í neti
Ármer^ninga. Hver skyldi hafa
skorað nema markakóngur þeirra
Eyjamanna — Örn Óskarsson en í
síðasta leik skoraði Örn 6 mörk.
Sigurlás Þorleifsson átti góða
sendingu beint á kollinn á Erni,
sem skallaði af öryggi i netið
framhjá Ögmundi markverði
Ármenninga, 1-0.
Þegar á næstu mínútum áttu
Eyjamenn hættuleg tækifæri,
Viðar Eliasson átti góðan skalla
rétt yfir og eins var Örn skömmu
síðar sjálfur á ferðinni með góðan
skalla en rétt framhjá.
Markið lét ekki á sér standa —
á 24. mínútu skoraði Sigurlás Þor-
leifsson glæsilega. Snorri Rútsson
sendi góða sendingu fyrir mark
Ármenninga og þrumuskalli
Sigurlásar hafnaði neðst í mark-
horninu alls óverjandi fyrir mark-
vörð Ármenninga, 2-0
Áfram héldu Ármenningar
yfirburðum sínum og aðeins
mínútu síðar máttu Ármenningar
enn sækja knöttinn í mark sitt og
nú var Tómas Pálsson á ferðinni.
Örn Óskarsson gaf góða sendingu
fyrir mark Ármenninga beint
fyrir fætur Tómasar, sem skaut
viðstöðulaust þrumuskoti og enn
þöndust netmöskvarnir út að baki
Ögmundur markvarðar
Ármenninga, 3-0.
Þrátt fyrir að sigur ÍBV væri
svo gott sem gulltryggður með
þessu marki héldu þeir engu að
síður uppi stöðugri sókn að marki
Algeng sjón í sumar — andstæðingar Eyjamanna niðurlútir eftir að
ÍBV hafði skorað. Þessi mynd var tekin í 11-0 sigri ÍBV gegn Selfossi.
DB-mvnd R.S.
Sigurðsson taldi Arsæl hafa
hreyft sig of snemma og lét því
endurtaka spyrnuna. Áhorfendur
voru greinilega ekki á sama máli
en Jón Hermannsson skoraði af
öryggi.
Eftir mark Armenninga færðist
mikil harka í leikinn, beinlínis
leikin gróf knattspyrna og
fannst mér Ármenningar þar
fyrst og fremst sökudólgarnir.
Allt um það — fleiri mörk voru
ekki skoruð en tvö dýrmæt stig til
ÍBV og 1. deildin nálgast stöðugt.
RS
Reykjavíkurliðsins, greinilega
ákveðnir í að skora eins mörg
mörk og mögulegt var. Þannig
átti Sigurlás þrumuskot af 20
metra færi en rétt framhjá, Örn
skot rétt yfir en Ármenningar
náðu að verjast frekari áföllum.
Staðan í leikhléi var því 3-0 en
fljótlega i síðari hálfleik var
dæmd vítaspyrna á heimamenn
þegar Ölafur Sigurvinsson varði á
línu með hendi. Jón Hermanns-
son tók spyrnuna en Ársæll
Svéinsson gerði sér lítið fyrir og
varði. Dómari leiksins, Sævar
— ÍBV sigraði Ármann 3-1 og er nú með 4 stiga forskot
og ú aðeins þrjú leiki ef tir
Uppgjörið stendur á
milli erkifjendanna
— í b-riðli, þar sem Valur og FH keppa um úrslitasœtið
í útimótinu í handknattleik
Íslandsmótið í útihandknatt-
leik hélt áfram í gærkvöld og fóru
þá fram þrír leikir, sem allir fóru
eins og vænta mátti. FH og Valur
unnu bæði sína ieiki í gærkvöld
og því stefnir í úrslit þessara liða
í b-riðli.
Bæði FH og Valur unnu stór-
sigra. íslandsmeistarar FH frá í
vor sigruðu KR 31-22 en þrátt
fyrir mörkin níu, sem skildu í
lokin voru KR-ingar yfir í
hálfleik, 10-8. En allt sprakk hjá
KR í sfðari hálfleik og FH tók öll
völd, sigraði örugglega 31-22.
Viðar Símonarson var mark-
hæstur íslandsmeistaranna með 7
mörk. Árni Guðjónsson skoraði 6,
Guðmundur Árni 5 og Júlíus
Pálsson 4. Þeir Þórarinn Ragnars-
son, Guðmundur Magnússon og
Geir Hallsteinsson skoruðu 3
mörk hver.
Þorvarður Guðmundsson
skoraði 9 mörk fyrir KR en
Hilmar Björnsson aðeins þrju, en
hann var tekinn úr umferð og þá
hrundi allt hjá KR.
Valur átti aldrei í erfiðleikum
með vængbrotið lið Ármanns,
sigraði örugglega 27-13. Ýmsa
sterka leikmenn vantaði hjá
Ármanni og það gerði eftirleikinn
auðveldan fyrir Val.
Þorbjörn Guðmundsson var
markhæstur Valsmanna með 7
mörk. Jón Karlsson skoraði 6. Vil-
berg Sigtryggsson var drýgstur
Ármenninga með 4 mörk.
iR vann sinn þriðja sigur í úti-
mótinu og stendur nú á þröskuldi
úrslitaleiks — nægir jafntefli
gegn Haukum í síðasta leik
sínum. í gærkvöld sigraði iR
Gröttu 19-11 og höfðu ÍR-ingar
undirtökin frá upphafi til enda —
staðan í hálfleik var 10-5 ÍR í vil.
Brynjólfur Markússon var
markhæstur ÍR-inga með 4 mörk
en Árni Indriðason, sem í vetur
mun þjálfa Gróttu, skoraði 5 mörk
fyrir lið sitt.
h halls.
Iþróttir
róttir
g)
Tanaka -
meistari
meistaranna
Nú gefst íslenzkum íþrótta-
unnendum tækifæri tii að
kynnast karate—sýndu af
fremsta karatemanni í heimi —
Sá heitir ekki ófrægara nafni en
Tanaka en hann varð
heimsmeistari í karate 1976.
Ásamt Tanaka koma hingað sjö
•manns sem munu sýna í
Laugardalshöllinni annað kvöld
klukkan 21.15. og ekki er að efa
að margur bíður spenntur eftir
þessu einstæða tækifæri til að
kynnast karate, sem sífellt sækir
á víða um Evrópu og þá á kostnað
'judó.
Jafnframt sýningu Tanaka og
félaga þá verður haldið íslands-
mótið í karate — hið fyrsta hér á
landi. Handknattleiksdeild
Leiknis stendur fyrir heimsókn
karatemannanna en aðalfrum-
kvöðull ' heimsóknarinnar, og
honum ber mest að þakka þessa
sýningu. er Þorsteinn Viggósson,
veitingamaður í Kaupmannahöfn,
en sjálfur er Þorsteinn virkur 1
keppni í karate.
Karate er í mikilli sókn á
Norðurlöndum en í dag standa
Danir fremst í flokki iðkenda
karate á Norðurlöndum og hafa
mjög beitt sér fyrir útbreiðslu
karate á hinum Norðurlöndunum.
Ekki er að efa að mörgum
verður sýningin fróðleg þar sem
karate er talsvert frábrugðið judo
— en sjón er sögu ríkari.
Bayern Munchen
bar sigur úr býtum
Bayern Munchen sigraði
Anderlecht í keþpni Evrópu-
meistaranna gegn Evrópumeist-
urum bikarhafa í gærkvöld 2-1.
Keppni þessi, sem á meginland-
inu hefur fengið nafngiftina
„super-cup“ fór af stað á síðast-
liðnu ári en þá keppti Bayern við
Dinamo Kiev.
En ef við snúum okkur að
leiknum í gærkvöld þá áttu leik-
menn i erfiðleikum á Olympíu-
leikvanginum í Munchen vegna
mikillar rigningar sem stóð yfir á
meðan léikurinn fór fram.
Belgarnir tóku forystu þegar á
16. mínútu þegar fyrrum Ajax
leikmaðurinn Arie Haan skoraði
skemmtilega með hælspyrnu af
stuttu færi sem Sepp Maier i
marki Bayern réð ekki við.
Þannig var staðan í hálfleik og
Anderlecht hélt sínu fyllilega.
Þjóðverjarnir fóru hins vegar
heldur en ekki af stað í síðari
hálfleik og sóitu látlaust með
gömlu kempurnar Gerd Muller og
Franz Beckenbauer í fararbroddi.
Muller náði að jafna fyrir Bay-
ern á 58. mínútu þegar hann lék
skemmtilega á varnarmann og
skoraði framhjá hollenzka mark-
verðinum í marki Anderlecht,
Ruiter.
Stöðug sókn Bayern hefði átt að
færa þeim víti þegar Muller var
brugðið innan vítateigs en hinn
enski dómari leiksins veifaði leik-
inn áfram við mikla óánægju
hinna 40 þúsund áhorfenda.
Það var ekki fyrr en tveimur
mínútum fyrir leikslok að Bayern
náði að skora sigurmark sitt og
auðvitað var Muller aftur að verki
þegar hann skoraði af stuttu færi
eftir fyrirgjöf.
Því var sigur Bayern staðreynd
— en hvort það reynist nóg þegar
til síðari leiksins kemur í Brussel
er aftur annað mál — lið Bayern
er að verða gamalt. En það hefur
auðvitað verið sagt svo oft áður.