Dagblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 9
DAfiBLAÐlÐ. LAUGARDAGUR 18. SEPTE.MBEIR 1976.
9
sem sjónvarpið notar til
uppf.vllingar. Rammfalskur
kynskiplingur misþyrmdi
tveim slögurum og síöan
fjallaði íþróttaþáttur að mestu
um efni er bæði sjónvarp og
hljóðvarp höfðu gert skil
daginn áður, auk blaðanna. Er
virkilega ekki hægt að nota
dýrmætan útsendingartíma
betur en þetta? Síðan missti ég
af Hinrik og Pernille en sat
hugfanginn undir þáttum um
kornfæði og fóðurbæti.
MeCloud, sá geðþekki
lögreglukúreki. lenti i svo
mikilli endaleysu í þriðjudags-
þættinum að hvorki hann né
við áhorfendur botnuðum upp
eða niður í efninu.
Pappírstunglið á miðviku-
dögum er heldur þunnt efni,
auk þess sem öll sviðsetning og
myndataka er stolin úr kvik-
mynd Bogdanovich með sama
nafni.
Það er ávallt tilhlökkunar-
efni þegar nýir þættir byrja og
þátturinn „Brauð og vin" eftir
viðfrægri skáldsögu ítalska rit-
höfundarins Ignazio Silone
lofar góðu, — en Silone hefur
manna best ritað um líf og
hugsun almennings á ítaliu
undir hæl Mussolinis. En
ítalskir sjónvarpsleikstjórar
hafa einnig átt erfitt
uppdráttar undir hæl ítalska
sjónvarpsins, er með stöðugri
hræðslu við hlutdrægni hefur
fælt frá sér mikla hæfíleika.
Afleiðingin er sú að í landi
E'ellinis, Bertoluccis, Viscontis,
de Sica og fleiri snillinga sýnir
ítalska sjónvarpið hrat sem
samanstendur af söngvaþáttum
(Mínu-þáttum...), getraunaþátt-
um og gömlum amerískum
bióm\ndum. En ítalska
sjónvarpið er ekki alveg
vonlaust, því þar er
auglýsendum forboðið að
auglýsa vöru sína beint. 1 stað
þess er settur saman þáttur sem
nefnist „Carosello" og varir í
einar 15-20 núnútur á kvöldi og
þar er auglýsendum gert að búa
ti! skemmtiefni og síðan er
auglýsingunni hnýtt aftan við.
Eftir 5 mínútna ballettþátt er
brugðið upp mynd af
Yokohama hjólbörðum o.s.frv.
Eg mun síðar fjalla um
auglýsingar íslenska sjónvarps-
ins. En setning vikunnr úr kass-
anum hlýtur að vera þessi
perla: „ferskleiki vorsins með
Fay klósettpappír." Við þetta
þori ég engu að bæta.
r
Þegar maður ekur hringveginn er
næstum öruggt að maður kemur aftur á
þann stað sem maður lagði upp frá, ef
ekið er nógu lengi. Ef maður ekur aftur
á móti Hringbrautina er aldrei að vita
nema mað .r endi för sína í Síðumúla.
Arnþór Árnason frá Garði í Mývatns-
sveit orti eitt sinn:
Litið mina léttúð græt,
lífinu er þannig varið.
Ennþá finnst mér syndin sæt
sækir í gamla farið.
Það er ekki mikil synd að aka Hring-
brautina á níutíu kílómetra hraða. Það
er hins vegar ekki leyfilegt. Vinur minn
kom til mín um daginn og sagðist hafa
verið aðakavesturHringbrautinaí mesta
grandaleysi. Þegar hann var kominn á
móts við gosbrunninn var hann stöðv-
aður af lögregluþjóni. Þú ókst nokkuð
hratt, sagði lögregluþjónninn. Já, sagði
vinur minn. Þú ókst á sjötíu kílómetr’a
hraða, sagði lögregluþjónninn. Já, sagði
vinur minn. Ertu að flýta þér, sagði
lögregluþjónninn. Nei, sagði vinur minn.
Ef ég hefði verið að flýta mér, hefði ég
ekið á áttatíu kílómetra hraða. Þú
verður að borga sekt, sagði lögreglu-
þjónninn. Já, já, sagði vinur minn. Af
hverju játaðirðu þessu öllu saman,
spurði ég vin minn, þegar hann hafði
lokið sögu sinni. Það var ekki hægt
annað, sagði hann. Lögregluþjónninn
minnti mig allt of mikið á konuna mína.
Ef þú
þarft að mála húsið þitt að utan,
skal ég gefa þér stiga.
Ég veit að þú ert hjátrúarfullur.
Þess vegna ætla ég að gefa þér stigann
þann þrettánda.
Síðan ætla ég að vera eins og
grár köttur á heimili þínu
meðan þú ert að mála.
r
Eg bið ykkur að afsaka
hvað þátturinn er lélegur,
en þið komist að raun um
hvers vegna það er ef
þið lesið hann.
Fyrirgefðu.
Síðan ætla ég að vera eins og
svartur köttur á heimili þinu
meðan þú ert að mála.
Eins og lesandi þessa þáttar hefur
tekið eftir var enginn þáttur í síðasta
blaði. Það var vegna þess að ég hafði svo
mikið að gera að ég hafði ekki tíma til að
setjast niður.
Nú er veturinn á næstu grösum.
Landið er farið að skarta haustlitum,
skólar eru teknir til starfa og brátt
verður farið að loka mjólkurbúðum sam-
kvæmt lögum. Það er enginn vafi, eftir
því sem mér hefur heyrst, að fólk kvíðir
engu jafnmikið á komandi vetri og því,
að mjólkurbúðum verði lokað. Þetta er
afar eðlilegt. Hugsið ykkur hvað lífið
verður litlaust, þegar foreldrar hætta að
geta sagt við krakkana sína: Skrepptu
nú út í mjólkurbúð fyrir mig og kauptu
tvo lítra af mjólk og hálft kíló af skyri.
Það er farið að kólna og haustvindar
næða naprir.
í nóttinni, myrkrið festir hér
djúpar rætur.
Sólin er horfin og dagarnir gerast
daprir,
þá dreymir um angan úr jörðu og
bjartar nætur.
Kræklótt tré sín lífsþreyttu laufbiöð
fella.
Slikt lætur haustið sig ekki neinu
varða.
Mikið horngrýti er hún nú góð þessi
háfleyga delia.
Eg held bara að ég sé skáid á
landsmælikvarða.
Eg hef ekki tíma til að búa til brand-
ara í bili og verð því að notast við gamalt
efni, það sem eftir er þáttarins. Fólk
virðist hafa gaman af sögunni um brodd-
geltina tvo sem urðu skotnir í sama
strákústinum. Það var upphafið að
Burstagerð Reykiavíkur.
Við verjumst af veikum mætti
vetrarins ógnum löngum.
Oss hitum með handaslætti
og héiuna biáum af vöngum.
1 andanum aldrei má lensa,
hann æðir því stjórnlaust um sviðið.
Nú herjar hér horngrýtis flensa.
Hvar er nú varnarliðið?
Við þekkjum öll, hvað það getur verið
gott að vera skotinn í einhverjum. Þetta
var þó ekkert þægilegt fyrir kunningja
minn einn. Hann var skotinn í seinna
stríðinu.
Ég á mér vinkonu vísa.
Ef vil ég hringja í þá píu.
Það eina sem að hún segir
er sautján fimmtíu tiu.
Eg fór á veitingastað fyrir nokkru og
gekk fram hjá borði þar sem maður
nokkur sat og studdi hönd undir kinn.
Um leið og ég gekk framhjá borðinu
heyrði ég að hann sagði: Þetta hlýtur að
vera skakkt númer, elsku vinur, því að
ég hef ekki síma.
Ég er alveg frámunalega latur. Eg
nenni til dæmis ekki alltaf að elda ofan í
mig. Mér fannst ég því hafa fundið gott
ráð um daginn, ekki síst þar sem fyrir
utan það að vera latur, er ég nískur. Ég
keypti mér steikt beikon og hrátt egg.
Síðan fór ég með þetta heim og beið eftir
því að þetta tvennt færi að rífast og
beikonið spældi eggið.
Veturinn er vafalaust
voðalega dimmur.
Nú er komið hrimkalt haust
horfin sumars blíða.
Mér er sagt að bændur á Suðurlandi
hafi ekki getað heyjað í sumar öðruvísi
en að eiga kafarabúning.
Að lokum vil ég benda þeim sem ætla
út um helgina á það að fara ekki nema i
fylgd með kvenmanni. Ef þið finnið enga
skvísu til að fara út með, get ég bent
ykkur á fjölda tengdamæðra sem yrðu
fúsar til að fara með ykkur. Ben. Ax.
Orðarugl
FH
n
íz;
<t!
ö
53
co
H TRUVHTA
G RDGDIEI
A VARNDSA
K UKNUTGN
S TVIREIS
SVAR:
LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER
70
Orðarugl 25
Við höfum ruglað stöfunum I orðunum fimm hér að ofan. Til að létta
ráðninguna gefum við fyrsta stafinn í orðunum áður en þeim var
ruglað. Finnið réttu orðin og skrifið þau í reitina. Takið stafina sem
koma í gráu reitina og færið þá í svardálkinn og þá kemur setning
tengd umræðum í fjölmiðlum. Merkið umslagið Orðarugl 25, c/o
Dagblaðið, pósthólf 5380. Skilafrestur er til næstu helgar og verða veitt
1000 króna verðlaun.
Lausn á orðagátu 23 var VIÐ LIFUM UM EFNI FRAM og reyndist
verðlunahafinn Inga Ingólfsdóttir, Hlyngerði 6, Reykjavík.
Verðlaunin verða send.
Ofsaleg útsala!
KOMIÐ — SJÁIÐ — SANNFÆRIZT
Öll okkor teppi
eru nú á útsölu
Lítið við_L j UTAVER því það
hefur ávallt borgað sig
n3Avin-H3AVin-a3Avin-u3Avih-u3AVin-n3AVin-ii3AVin-n3Avin
LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER