Dagblaðið - 20.09.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — MANUDAGUR 20. SEPTEMBER 1976 — 209. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOÚTI 2, SÍMI B7022
*....
Sœnsku þingkosningarnar:
w
STJORN PAUME ER FALUN
Stjórnarskipti veröa í
Svíþjóö á næstunni eftir sigur
borgaraflokkanna í þingkosn-
ingunum þar I gær. Meö þeim
sigri lauk 44 ára óslitnum
valdaferli Jafnaðarmanna í
landinu — valdaferli sem gert
hefur Svíþjóð að mesta vel-
ferðarríki heims.
„Mér þykir þetta sárt eftir þá
miklu vinnu, sem við höfum
innt af hendi,“ sagði Olof
Palme, forsætisráðherra, í sjón-
varpsviðtali í Sviþjóð í nótt,
þegar úrslit kosninganna lágu
fyrir. „Við munum samt halda
áfram að berjast fyrir baráttu-
málum okkar þegar við erum
komnirí stjórnarandstöðu.“
Endanleg úrslit eru ekki
kunn, en svo virðist sem
stjórnarflokkarnir, Jafnaðar-
menn og Vinstri flokkurinn-
Thorbjörn Fálldin, næsti forsætisráðherra Svíþjóðar: úrslitin eiga eftir að hleypa nýju blóði í sænska
stjórnmáiaumræðu, sagði hann í morgun, þegar úrsiit kosninganna lágu fyrir.
Kommúnistarnir, hafi tapað flokkanna þriggja, þannig að Borgaraflokkarnir sigruðu með
fimm þingsætum til borgara- staðan er 179 gegn 170. 2% meirihluta atkvæða.
Næsti forsætisráðherra
Svíþjóðar verður nær örugg-
lega leiðtogi Miðflokksins,
Thorbjörn Fálldin, fimmtugur
fjárbóndi frá Norður-Svíþjóð.
Hann sagði í morgun, þegar úr-
slit voru kunn: „Þetta mun
hleypa nýju blóði í sænska
stjórnmálaumræðu.“
Ekki er talinn leika vafi á,
þvi, að tap Jafnaðarmanna má
fyrst og fremst kenna stefnu
ríkisstjórnarinnar í kjarnorku-
málum, enda má segja að kosn-
ingarnar hafi smám saman
orðið að þjóðaratkvæðagreiðslu
um framtíðarstefnu Svía í þeim
málum.
Sjá nánar á erlendu frétta-
síðunum bls. 8—9.
— ÓV.
SITUR ENN
VIÐSAMA
HJÁ SJÓN-
VARPINU
— fundur í starfsmanna-
félaginu í morgun
Allt sat enn við það sama í
deilu starfsfólks sjónvarpsins
við. fjármálaráðuneytið í
morgun. Ekki var sjónvarpað i
gærkvöld og gefur það til
kynna að engin orðáskipti hafi
farið fram á milli stofnanna. í
morgun var fyrirhugaður
fundur Starfsmannafélags
sjónvarpsins en Dagblaðið
hafði engar fréttir af honum
áður en það fór í prentun.
t einu dagblaðanna var sagt,
um helgina, að Höskuldur Jóns-
son ráðuneytisstjóri væri í for-
svari fyrir fjármálaráðuneytið í
þessari deilu. Ráðuneytisstjór-
inn bar það hins vegar af sér og
kvað fjármálaráðherra hafa
það með höndum. Ekki tókst
að ná sambandi við Höskuld í
’morgun vegna þessa. Hann var
að vísu mættur á skrifstofu sína
en gat ekki rætt við blm. þar eð
símatími hans var ekki
byrjaður, og hófst ekki fyrr en
undir hádegið. —AT
W
Það er langur vegur fyrir
gamalt fólk að ganga niður
allan Laugaveginn. Hvergi er
bekkur til að tyila sér á í þess-
ari mestu verzlunar- og um-
ferðagötu höfuðborgarinnar en
veruiegt piáss fyrir stöðumæla
og bila. Hvað skal þá til ráða,
þegar lúin bein segja til sín?
Gamla konan á myndinni
hvílir sig um stund á þrifa-
iegum búðartröppum, leggur
frá sér pokann sinn og virðir
fyrir sér mannlífið og um-
ferðina. Hún er ekkert feimin
og man vísast timana tvenna
hér í Reykjavík. — DB-mynd
Árni Páli.
r
Ásgeir
slasaðist ó
ný í Belgíu
— sjá íþróttir
bls. 16,17,
18 og 19
Geðþótta-
ákvörðun
embœttis-
manna hvað
fólkið fœr
að vita
— sjá bls. 7
■ J
\
Skeiðará óx sáralítið í nótt
SEX ARA TELPA HÆTT
KOMIN ÁGÆZLUVELLI
Blástursaðf erðin bjargaði lífi hennar
Sex ára telpa var hætt komin
á föstudag'nn.á gæzluvellinum
sem kvenfélagið í Garðinum
starfrækir, þegar hún var að
príla í klifurgrind. Fann hún
þar band sem hún setti um háls
sér, en hrasaði síðan með þeim
afleiðingum að bandið hertist
að hálsinum. Bróðir hennar,
þriggja ára, sem var nær-
staddur skynjaði að eitthvað
var að systur hans. Hljóp hann
til gæzlukonunnar, er hafði
brugðið sér sem snöggvast inn,
og sagði henni að systir sín
„væri föst“. Brá gæziukonan
skjótt við og fór út og tókst
henni að losa telpuna úr snör-
unni. Telpan var þá farin að
blána í framan, en gæzlukonan
kunni blástursaðferðina og
tókst að blása lífi í telpuna, sem
var farin að hressast mikið
þegar læknir kom úr Keflavík
til að athuga hana nánar. Líður
henni vel eftir atvikum. emm
„Hér er allt við það sama og
sáralitill vöxtur er frá því í gær,
en þá var vátnstnagnið komið í
2300 teningsmetj’a, það er
helmingi meira vatnsmagn en
venjulegt er,“ sagði Jón
Valmundsson verkstjóri hjá
Vegagerðinni sem er staddur
að Skaftafelli.
Aðfaranótt sunnudags braut
vatnsflaumur Skeiðarár einn
símastaur á Skeiðarársandi.
Við það rofnaði ^símalínan
austur yfir sandinn, en' síma-
samband er austan frá. Þetta
eru einu spjöllin, sem áin hefur
ennþá valdið.
Menn fylgjast vel með því
hverju fram vindur og þar eru
m.a. menn frá Orkustofnun,
vatnamælingamenn og fleiri'
vísindamenn. Slæmt veður var
á sandinum í nótt en það gekk
niður með morgninum. __KP.
í snjó og slœmu skyggnf á Vatnajökli
Menn frá Vegagerð Ríkisins,
þeir Helgi Björnsson jökla-
fræðingur og Magnús Hall-
grímsson verkfræðingur eru nú
staddir á Vatnajökli og fylgjast
þar með sigi jökulhellunnar í
sambandi við Skeiðarárhlaup.
Um sexleytið í gær voru þeir
við Háubungu og áttu þá
skammt eftir til Grímsvatna. Á
jöklinum var þá snjókoma og
slæmt skyggni svo útlit var
fyrir að þeir héldu kyrru fyrir
þar sem þeir voru komnir í
nótt. -KP.