Dagblaðið - 01.10.1976, Page 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1976.
Nýir
umboðsmenn
Akranes
Stefanía Hávarðsdóttir,
Presthúsabraut 35, sími 2261
Stokkseyri
Erna Baldursdóttir,
Tjörn, sími 3258.
Bakkafjörður
Járnbrá Einarsdóttir
Símstöðinni.
Vopnafjörður
Linda Eymundsdóttir
Hafnabyggð 51, sími 3188.
Kópasker
Anna Helgadóttir,
Sandhólum, sími 52108.
Hótel Laugar
Óskar Ágústsson
Seyðisf jörður
Gunnhildur Eldjárnsdóttir,
Túngötu 4.
MMBLAÐIB
Lausnr stöður
Laus er lil umsóknar staöa iæknis vió heilsugæsluslöð á
Þingevri og staöa læknis viö heilsugæslustöö á Þórshöfn.
Umsóknir sendist heilbrigöis- og tryggingamálaráðu-
neytinu eigi síðar en 27. október 1976.
Heilbrigðis- og
tryggingamólaróðuneytið
29. september 1976.
Tilkynning
Frá 1. okt. nk. veröur söluskrifstofa
okkar að Lækjargötu 2 opin kl. 9—5,
laugardaga kl 9—12.
Flugleiðir hf.
Rafmagnsveitur Reykjavíkur
óska að ráða nokkra raflínumenn til
starfa nú þegar. Upplýsingar gefur
starfsmannastjóri.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Laugavegi116
Reykjavík
Iðja, félag
verksmiðjufólks
Hér meö auglýsist eftir uppástungum til kjörs fulltrúa á
33. þing Alþýöusambands íslands. Stungiö skal upp á 16
aðalfulltrúum og 16 til vara. Hverri uppástungu skulu
f.Vlgja meómæli minnst 100 félagsmanna. Uppástungum
skal skilaö á skrifstofu löju, Skólavöróustíg 16, í síðasta
lagi kl. 11 f.h. mánudaginn 4. okt. 1976.
Stjórn Iðju
STÓRSÓKN SÝRLENDINGA
Palestínumenn á undanhaldi á
öllum vígstöðvum
Einangraðar sveitir
Palestínuskæruliða berjast nú
fyrir iífi sínu í fjalla-
héruðunum austur af Beirút,
en þeir eru umkringdir af her-
mönnum Sýrlendinga, sem
nánast lögðu svæðið undir sig í
skyndiáhlaupi í gær.
Með skyndisókn þessari voru
Palestínuskæruliðarnir og
vinstri sinnaðir bandamenn
þeirra frá Líbanon hraktir út
úr borginni Quarnayel og
nokkrum öðrum borgum í
fjallahéraði Líbanon, sem er á
miðju yfirráðasvæði kristinna
manna þar í landi.
Gátu Palestínumenn aðeins
veitt mótspyrnu gegn hermönn-
um og skríðdrekum Sýr-
lendinga í borginni Ras E1
Metn, en Sýrlendingar reyna að
ná endum saman við hersveitir
hægri manna, sem sækja fram
úr norðvestri.
*
Þannig lýsir teiknari erlends
blaðs ástandinu á hæðunum
fyrir utan Beirút.
ASTRALIA:
VILL VERÐA GÆLUDYR
Sagan um Ástralíubúann
Josef Ilolman, lýsir nokkuð
ástandinu í atvinnumálum þar í
landi. Hann hefur nú auglýst
eftir stöðu sem gæludýr hiá
einhverri fjölskyldu.
„Það er betur farið með dýr
en menn‘, segir Hólman og
bætir við: „Ég er meira að
segjatilbúinn að gera kúnstir
fyrir húsbændur mína.“
Jösef Holman segir að hann
hafi sótt um meira en tvö
þúsund stöður undanfarin tvö
ár, en alls staðar fengið afsvar.
ALLIR ERU AD GRÆDA
Á LÍFINU Á TOPPNUM
Ameríkanar eru um þessar
mundir aldeilis bergnumdir af
alls kyns „sögum innan frá“ um
lífið í stjórnarsölunum, sérstak-
lega um liferni fyrrum forseta
Bandaríkjanna. Eftirleikur
Watergate-hneykslisins veldur
án efa mestu um þennan mikla
áhuga, sem almenningur þar í
landi hefur á fyrrum íbúum
Hvíta hússins.
Og vegna þessa fá Banda-
ríkjamenn nú í fyrsta sinn að
sjá brugðið upp myndum af
fyrrum forsetunum sinum með
allt upp úr buxunum að aftan.
Sumir verða afskaplega
hneykslaðir en flestir eru
þeirrar skoðunar að þetta sýni
að forsetar og varaforsetar eru
aðeins mannlegir.
„I gleymskunni, — ástir
mínar og Dwight D. Eisen-
hower“, heitir nýútkomin bók
eftir Kay Summersby Morgan,
fyrrum ljósmyndafyrirsætu
sem var einkabílstjóri hers-
höfðingjans í Evrópu í seinni
heimsstyrjöldinni.
En í samanburði við allar
þær sögur, sem gengið hafa um
ástalíf John F. Kennedys,
virðast tilraunir Eisenhowers
heldur fumkenndar. Þær fölna
algjörlega við hliðina á bókar-
titlum eins og „Ástir mínar
með JFK í Hvíta húsinu" og
„Hið dularfulla morð á hjákonu
JFK“.
Greinilegt er, að menn geta
grætt stórar fúlgur á þvi að
draga fram eins mikið af
óhreinindum og hægt er.
Milljónir græðast á því að
birta svonefndar „játningar"
ætlaðra ástmeyja eöa annarra,
sem hagsmuna áttu að gæta. Og
Kennedy er ekki eina skot-
markið. Enginn sleppur, —
Eisenhower, Nixon, Lyndon
Johnson, meira að segja Frank-
lin Roosevelt.
Þar að auki bíða svo margar
bækur sem menn foretans eru
að skrifa. Mest er beðið eftir
bók John Deans en henni hefur
verið gefinn titillinn: „Blindur
metnaður“, og ku vera „heitari
en heitasta byssuhlaup", eins
og auglýst er.
En þeir, sem mest græða þó á
öllu saman, eru frumherjarnir í
afhjúpun allra þessara myrkra-
verka, Bernstein og Woodward.
Bækur þeirra „Menn forset-
ans“ og „Síðustu dagarnir", eru
enn taldar hvað bezta lýsingin á
því sem gerðist í raun og veru
bak við gluggatjöld Hvíta húss-
ins.
Og auðvitað eiga endurminn-
ingar Nixons sjálfs eftir að
koma út. Hann, eins og allir
aðrir, vill fá eitthvað fyrir sinn
snúð. Menn borga honum
fúslega eina milljón dollara
eingöngu fyrir réttinn á gerð
sjonvarpsþátta.
mNíí Kd*\