Dagblaðið - 04.10.1976, Blaðsíða 3
3
DACULAÐH). MANUDACUR 4. OKTOBER 1976.
.... ....... ' \
Steingrímur lánaði bífinn sinn
Ilalldór Kristjánsson skrifar:
Um leið og ég þakka Dag-
blaðinu f.vrir að birta grein
mína á mánudaginn bið ég það
fyrir þessa athugasemd, rit-
stjórn sinni og lesendum til
upplýsingar.
Ekki skal ég gera lítið úr
reikningslist stjörnu-
fræðingsins en engin sönnun er
það þó að einhverntíma sé
keypt pieira bensín í einu fyrir
einhvern bíl en geymir hans
tekur. Það er nefnilega hægt að
fá bensín á brúsa hvort sem
stjörnufræðin gerir ráð fyrir
Raddir
lesenda
þeim möguleika eða ekki.
En þetta skiptir ekki máli um
þau bensínkaup, sem hér er um
að ræða, enda minnir mig að
Þorsteinn Sæmundsson benti á
aðrhensínnótahefði verið skrif-
uð á bíl Rarmséknaráðs þegar
hann var bilaður inni á verk-
stæði. Ogþá hélt hann að Stein-
grímur hefði verið að stela
bensininu.
Málavextir eru þessir. Bíll
Rannsóknaráðs bilaði og fór á’
verkstæði. En það þurfti að
nota bíl í sambandi við ein-
hverja smáflutninga vegna
undirbúnings hugsanlegrar sjó-
efnavinnslu á Suðurnesjum.
Steingrimur lánaði bíl sinn.
k'.vrir það vildi hann hafa
greiðslu og það með að
Rannsóknaráð borgaði það
bensín sem bíllinn eyddi í
þjónustu þess. Því var bensín-
nótan stíluð á bíl ráðsins, enda
þótt hann væri lokaður inni á
verkstæði.
Það var vorkunnarmál þó að
stjörnufræðingurinn áttaði sig
ekki á svona flóknum
viðskiptum. En þegar
dómstólar og ríkisendurskoðun
hafa fjallað um þetta er rauna-
legt að vita greindan mann eins
og Hannes Gissurarson skrifa í
virðulegt tímarit eins og
Eimreiðina, svo sem hann
gerði, hvað sem segja má um
ykkur í Dagblaðinu.
Það er reynt að gera úr þessu
þjóðsögu' og saklausir
unglingar eins og Hannes
Gissurarson halda líklega að
Steingrímur hafi stolið bensíni
á bílinn sinn. Svo á það að
komast inn í íslendingasöguna
að Framsóknarflokkurinn hafi
verið svo gjörspilltur að hann
hafi haft bensínþjófinn fyrir
ritara og auðvitað er því treyst
að þessi ráðvanda þjóð verði
fljót að fordæma og yfirgefa
slíka siðspillingu.
Samt held ég að rétt sé aö
menn fái að vita full skil á sök
okkar, sem höfum verið svo
spilltir að kjósa Steingrím Her-
mannsson.
Mér finnst þessar bensín-
nótur ekki duga til að hafa af
okkur æruna.
Svo bíð ég eftir skýrslu ykkar
um næsta glæp eða andmæli
gegn þessari skýringu minni.
Raddir
lesenda
Hríngið í
síma
83322
milli kl.
13 og 15
eða
skrífið
BANKASTRÆTI
©-14275
©-21599
Spurning
dagsins
Til hvers eru blaðamenn
eiginlega?
Bjarni Tómasson málarameist-
ari: Ég skal nú segja þér til
hvers þeir eru, þeir eiga áð vera
tengiliður við almenning og birta
það sem okkur liggur á hjarta.
Almenningur hefur engan vett-
vang til þess að koma skoðunum
sínum á framfæri.
Þórarinn Einarsson sjómaður:
Þeir eiga að gramsa í þessum
opinberu stofnunum og koma
sannleikanum á framfæri við al-
menning.
Magnús Snæbjörnsson plötu-
smiður: Maður á að geta treyst
þeim til að koma sönnum og rétt-
um upplýsingum á framfæri við
almenning. Eg held að það sé
hægt. svona gegnum sneitt.
Jónas Jónsson nemi: Ja, ég hef nú
eiginlega ekki hugm.vnd um það.
Fólk vill alltaf heyra kjaftasögur
og þeir eiga að segja frá þeim.
Jón Erlendsson vélskólanemi:
Þeir eiga að upplýsa fólk. Að vísu
Ijúga þeir misjafnlega mikið. en
eru ómissandi þrátt fyrir það. Það
v:eri daufleg vistin ef þeir væru
ekki til.
Anna Dóra Theödórsdóttir,
vinnur hjá tannhekni: Biddu við.
hvað á ég mi að segja? Jú. þeir
eiga að halda l'ólki við efnið og
umfrani alll vakandi fyrir
umbverfi sinu.