Dagblaðið - 04.10.1976, Page 6

Dagblaðið - 04.10.1976, Page 6
6 DACBLAÐIÐ. MANUDACUR 4. OKTÓBER 1976. „Ég hélt að þið vœruð gamaldags" sagði norski hárgreiðslumeistarinn, sem greiðir leikkonunni Liv ,,Ég hef tekið eftir því að hárið á íslenzkum stúlkum er frekar líflaust og það er auðsjáanlegt, að þær hugsa ekki nógu vel um það,“ sagði Perry Wangsmo margfaldur Noregsmeistari i hárgreiðslu. Hann er hér á íslandi á vegum Hárgreiðslumeistarafélags islands og hélt glæsilega sýningu í Sigtúni í gær. Perry er hér á landi í annað sinn, en hann sagðist hafa dreymt um að komast til íslands þegar hann var lítill strákur. Þetta er ekki í fyrsta skipti að hann aðstoðar hárgreiðslufólk hérlendis. Hann þjálfaði keppendur okkar fyrir Norður- landamótið i hárgreiðslu og heldur nú námskeið fyrir félags- menn, sem væntanlega læra margt nýtt og skemmtilegt. Það er vegna veðráttunnar hér, sem við verðum að hugsa sérstak- Gestir i Sigtúni fengu að sjá nýjustu barnafata- Perry hefur lokið við að greiða þessum dömum tízkuna og auðvitað höfðu hárgreiðslumeistarar og þær eru tilbúnar í hvaða veizlu sem er. greitt hár barnanna. DB-myndir. Bjarnleifur. LÆGSTU LAUN BSRB-FÉLAGA TÆP 60 ÞÚSUND - ÞAU HÆSTU LIÐLEGA 167 ÞÚSUND „Það munu um 90% af þeim sem BSRB semur fyrir hafa undir 90 þúsund krónum á mánuði í fastakaup," sagði Bjarni Arthúrsson hagfræðing- ur hjá Starfsmannafélagi ríkisstofnana. Bjarni benti ennfremur á það að aðeins 24 af þeim 2500 einstaklingum, sem væru innan BSRB væru með laun yfir 110 þúsund miðað við skrá frá því í fyrrahaust yfir einstaklinga í B-flokkum. Breyting var gerð í sumar á launastiga BSRB-félaga Flokkarnir eru nú 30, en áður voru launaflokkar 10-28 og B-1 til B-8. í hæstu flokkunum B-25 til B-30 eru forstöðumenn ríkis- stofnana. Laun þeirra eru frá 135 þúsundum upp í 167 þús- und í B-30. Enginn BSRB maður nær B-30 en forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins er í B-29. Bandalag háskólamanna býr við sama launastiga, sem þeir nefna A1-A30. Þrepin hjá þeim eru 5 þannig að háskóla- menntaður maður getur fengið launahækkun fjórum sinnum. BSRB er hins vegar aðeins með þrjú þrep. Félagsmenn þess fá hækkun eftir eins árs starf. Næst fá þeir hækkun og i síðasta sinn eftir 6 ár. Sú breyting var gerð í sumar að starfskraftur sem hefur störf 32ja ára eða eldri fer strax upp í efsta þrepið. I A-30 hæsta launastiga Bandalags háskólamanna eru rektor Háskólans, póst- og síma- málastjóri og vegamálastjóri svo nokkuð sé nefnt. I Vísitöiuuppbót 1. október. Öll laun BSRB-manna og annarra hækkuðu um 6% 1. október. Eru þá lægstu byrjunarlaun rétt 63.000 krónur en hæstu laun sam- kvæmt efsta þrepi í B-30 tæpar 190 þúsund krónur. -BÁ. YFIRLÝSING Sl. föstudag birtist á baksiðu Alþýðublaðsins klausa þar sem sagt var að ég hefði selt Birgi Isleifi Gunnarssyni sumar- bústað við Þingvallavatn. Þessi klausa verður svo tilefni þess að blm. Tímans hringir heim til mín um kl. 22 sama kvöld og segist þurfa að fá þessa „stór- frétt“ staðfesta. Ég benti manninum á, að það gæti tæpast veiið tilefni til frétta, hvort ég hefði selt eða ekki selt sumarbústað við Þingvallavatn, en ef slíkar bústaðasölur teld- ust til frétta fyrir Timann væri handhægast fyrir blaða- manninn að skrifa um kaup og sölu framkvæmdastjóra Tímans á sumarbústöðum á þessum slóðum, þ.á m. sumar- bústaðakaup hans af Knúti Bruun hrl. og fjölskyldu hans, um það bil er Grjótjötunn, hið fræga skip kom til landsins. Sjálfur teldi ég þetta lítið fréttaefni, en það stæði þeim Tímamönnum sannarlega nær en mín viðskipti. Þessir útúrsnúningar mínir urðu svo til þess að maðurinn hafði eftir mér á forsíðu Tímans daginn eftir að ég hefði engan sumarbústað selt Birgi tsleifi Gunnarssyni. Ekki skal ég lasta blaðamanninn þótt úr þessu samtali yrði klúður og tæpast getur Tíminn vænzt þjónustulipurðar af mér eftir þá umfjöllum, sem ég hef sætt í því blaði á undanförnum mánuðum og reyndar ekki talið svaraverða hingað til. Þar sem hér er hins vegar eftir sjálfum mér haft, þykir mér rétt að leiðrétta ummælin, þótt þau séu efnislega rétt, þar sem eign sú er um ræðir var á nafni konu minnar er hún var seld. Snemma á sl. sumri seldum við hjónin sumarbústað er við áttum í Svínahlið í Grafningi. Ýmsir höfðu áhuga á að kaupa bústaðinn og meðal þeirra voru Birgir ísleifur Gunnarsson og kona hans. Sízl þótti okkur verra að selja þeim en ein- hverjum öðrum. Ekki fékk Birgir isleifur Gunnarsson neitt lánað i sumarbústaðnúm umfram venjuleg útborgunar- kjör, enda greiddu þau hjón það sem upp var sett og við máttum vel við una. 2. október 1976. Sveinn R. Eyjólfsson. Ulmann og Sonju Noregsprinsessu Það er engin furða þó dömunni lfði vel þegar meistarinn fer höndum um hár hennar. Það er ekki á hverjum degi sem fólk lætur konung- legan hárgreiðslumann greiða sér. lega vel um hárið. Hitastig breytis svo oft og það hefur sín áhrif. Einnig verður hárið að fá mikla næringu, og er mjög gott að fá sér næringarkúr. Auðvitað verður að klippa burt slit í endunum og varast það vel aö hárið klofni Perr.v sagði að hann hefði orðið dálítið hissa, þegar hann kom hingað fyrst, vegna þess að hann hélt að við værum gamaldags hér á norðurslóðum. Það var annað uppi á tengingnum og hann sagðist hafa komið hingað í fyrsta skipti til að kenna okkur, en farið héðan reynslunni ríkari. En Perry vill endilega að við hugsum betur um hárið og vonast til þess að sjá létt og líflegt hár, næst þegar hann kemur hingað. Þessi norski meistari rekur hárgreiðslustofur í fjórum borgum i Noregi og til hans koma m.a. Liv Ulmann leikkona og norska prinsessan Sonja. -KP. Það var auðséð að Perry kann að fara með hárburstann enda marg- faldur Noregsmeistari. Stúlkurnar eru ha'stánægðar með handaverk meistarans. Það tók hann um það bil hálftínia að greiða þeim öllum.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.