Dagblaðið - 04.10.1976, Blaðsíða 23
D.MilM.AOH). MÁNUDAGUR4. OKTÖBER 1976.
23
Kvöldkjóll frá Lanvin úr hárauðu
tafti. Eins og sjá má er kjóllinn
mjög fleginn með rykktum
„ermum“. Skyldi einhver leggja í
að fá sér svona kjól áður en sam-
kvæmislífið hefst fyrir alvöru?
Húfa, trefill, peysa vettlingar og
pils, allt úr uilarefni.
W W
SVIPMYNDIR FRA PARIS
Þ^rna getur að líta svipmyndir frá haustsýningunum í París. Á fyrstu
myndinni er vatnsheldur silkijakki frá Dior, sem nota má hvort, sem
er um dag eða kvöld. Loðskinn á kraganum. Á annarri er klæðnaður
frá Saint Laurent, víður jakki og enn víðara pils. Undir skinnhúfunni
er bundinn klútur um höfuðið og mohairsjal borið utan yfir jakk-
anum. Saint Laurent á einnig heiðurinn af hettukápunni á þriðju
myndinni. Þarna er einnig notaður höfuðklútur undir skinnhattinn.
Loks er rúskinnsjakki frá Givenchy, takið eftir að axlirnar eru
stoppaðar. Fyrirferðarlítil húfa með glitrandi skrauti er notuð yfir
höfuðklútinn.
W W
SVIPMYNDIR FRA ROM
Tí/.kufrömuðurinn Valcntino i Róm hefur hannað þessa viðkunna-
legu dragl, smáköflóttur jakki og cinlitt pils. Hatturinn er með litlum
börðum, uppbrettum. Valentino á einnig heiðurinn af kvöldkjólnum
sem er í miðið. Sá er úr krepefni, með glitrandi skrauti. og slá, sem er
bundið saman á annarri öxlinni. Loks er klæðnaður frá Galit/.ine i
Róm. sítt vesti úr hvitu satíni yfir samfesting úr glitrandi svörtu ofni.
Þetta furðuverk er frá tizkuhúsi Diors, skær-
blátt taft, með svartri blússu innanundir, og er
blússan aðeins með örmjóum hlýrum. Pilsið er
slétt og sítt.
Þessi samkvæmiskjóll er líklegri til þess að ná
einhverjum vinsældum meðal almennings en
hinir tveir samkvæmiskjólarnir sem hér eru
sýndir. Kjóllinn er eftir Givenchy úr svörtu
fíaueii og tafti með svörtum glitrandi bryddum
fjöðrum. Við þennan kjól er notað svart silki-
sjal með skærbláu kögri (ekki sýnt á mynd-
inni).
NÝ VERZLUN í GLÆSIBÆ
MEÐ UNDIR- OG NÁTTFATNAÐ KVENNA
Brjóstahöld frá Abecita, Profile, Lady, Triumph og Hunt 8
MIKIÐ ÚRVAL AF NÁTTKJÓLUM
VERZLUNIN MADAM Glœsibœ — Sími 83210