Dagblaðið - 04.10.1976, Page 9

Dagblaðið - 04.10.1976, Page 9
DACISI.AÐIt). MANTDACl'K 4. OKTOUKH 9 Erlendar fréttir REUTER Morð og annar óþverraskapur helgarinnar Glœpaforíngi myrtur í Japan Japanskur glæpa- flokksforingi var drepinn í Osaka í gær í bardaga við flokk andstæðinga, að því er virtist, að sögn lögreglunnar þar í bæ. Glæpaforinginn sem var myrtur hét Yoshihiro Yoshida, 36 ára gamall. Hann var skotinn til bana, þar sem hann var að fara inn í bílinn sinn. Tveir menn, sem taldir eru félagar í öðrum glæpasam- tökum, hófu skyndilega skorhríð á Yoshida. Síðan lentu þeir i skotbardaga við menn hans, en komust undan. Lögreglan i Osaka var að fara í gang með mikla herferð á hendur skipulögðum bófaflokkum, sem berjast hart sín á milli í borginni. Það sem af er þessu ári hafa fimm menn verið drepnir og 16 særðir í götubardögum glæpa- flokkanna í Osaka. Níu ára drengur banar föður sínum Níu ára gamall drengur í Jóhannesarborg í Suður- Afríku varð föður sínum að bana með búrhníf þegar fjöl- skylduslagur hófst á heimilinu í fyrrakvöld. Lögreglan í borginni hefur skýrt svo frá, að drengurinn, sem ekki er nafngreindur. liafi komið móður sinni til hjálpar þegar i faðirinn, 36 ára, reyndi að kyrkja hana. Drengurinn, sem er í algjöru tauga- og tilfiningalosti nýtur nú læknismeðferðar og er talið ólíklegt að hann muni koma fyrir rétt. Fangar finnast dauðir í klefum sínum Tveir bræður í lögregluliði Buenos Aires-borgar í Argentinu hafa framið sjálfs- morð í fangaklefum lögreglunnar í borginni La Plata, þar sem þeir voru i haldi, að því er segir í opinberum tilkynningum lög- reglunnar þar. í tilkynningu, sem gefin var út á laugardagskvöld sagði að annar, Benito Esteban Badell, hefði hengt sig í klefa sínum fyrr um daginn. Hann var í varðhaldi á meðan verið var að yfirheyra hann um meint tengsl við vinstrisinnaða skæruliðahreyfingu. Bróðir hans, Julio Anibal Badell, lézt á miðvikudaginn, þegar har.:1. stökk út um glugga á þriðju hæð á lögreglu- slöðinni í La Plata, að því er sagði í annarri tilkynningu Bræðurnir hiifðu verið í haldi um nokkurra daga skeið, að þvi að haft er eftir heimildum innan lögreglunnar. Yfirheyrslurnar yfir þeim hafa leitt til þess að fjiildi annarra liigreglumanna hefur verið handtekinn. Ródesía: Hundrað þósund fögnuðu Muzorewa Meiri mannfjöldi en nokkru sinni fyrr hefur sézt saman- kominn í Ródesíu fagnaði Abel Muzorewa, biskup og leiðtoga innfæddra blökkumanna, þegar hann kom til Salisbury í gær eftir sextán mánaða sjálfkjörna útlegð í nágrannaríkjunum. Verður nú erfitt að hnekkja fullyrðingum hans um að hann sé réttskipaður leiðtogi blökkumanna í landinu. Talið er að móttökurnar, sem Muzorewa fékk frá 100 þusund syngjandi, dansandi og hróp- andi bræðrum sínum, geti skipt sköpum í þeirri þróun, sepi nú er að hefjast i Ródesíu með samþykki hvítra um að láta af völdum innan tveggja ára. Aðstoðarutanríkisráðherrar Bretlands og Bandarikjanna koma til Salisbury í dag frá Pretóríu í Suður-Afríku til viðræðna við Ian Smith for- sætisráðherra. Þar til Muzorewa sneri heim hafði Joshua Nkomo verið talinn helztur leiðtogi blökku- manna í Ródesíu. Nkomo og Muzorewa eru í forsæti tveggja andstæðra fylkinga Afríkanska þjóðarráðsins (ANC) en svo Hér virða ródesíönsk hjón, ásamt tveimur hermönnum, fyrir sér gat á húsi þeirra hjóna. Hjónin búa á bóndabæ, um fjörutíu mílur sunnan landamæra Mósambík og Ródesíu. Gat þetta myndaðist í eldflaugaárás, þeirri þriðju sem bærinn hefur orðið fyrir síðastliðin tvö ár. — Enginn slasaðist í árás þessari. virðist sem Nkomo hafi tekizt betur að afla sér fylgis og áhrifa á alþjóðavettvangi. Margir eru þeirrar skoðunar, að hann verði fyrsti blakki forsætisráðherra Ródesíu. KRAFIZT AFSAGNAR RÁÐHERRA FORDS Ford Bandaríkjaforseti fékk í gær fjölda krafna um að land- búnaðarráðherra hans, Earl Butz, yrði sagt upp störfum. Ástæðan til þess er sú, að ráðherrann lét dónaleg orð falla í garð negra, vegna mistaka Repúblikana- flokksins við að ná negrum á sitt band í forsetakosningunum. Það var reyndar John Dean, sérstakur ráðgjafi Nixons í forsetatíð hans, sem sagði frá orðum Butz. Fréttaskýrendur vestra telja að áhrifin af orðum Butz geti orðið svipuð og viðtalið við Jimmy Carter sem birtist í Playboy á dögunum. Sumir segja, að nú hafi Ford endanlega misst af Carter í baráttunni um forsetatignina. Butz hefur ekki verið vísað úr embætti, en talsmaður Hvíta hússins hefur sagt, að hann biðjist mikillega afsökunar á orðum sínum. Talið er að Ford missi milljónir atkvæða frá svörtum, ef hann rekur Butz ekki. Þess er þó einnig að geta að ráðherrann er mjög vinsæll í landbúnaðarríkjum Banda- ríkjanna. r r ------- Daga langa w I gondóla... Miklar sögur ganga nú af hljómleikum Paul McCartney og Wings á Markúsartorginu í Feneyjum 25. fyrra mánaðar. Paul fer ekkert aftur og gömlu töfrarnir leyna sér ekki. Áður en hljómleikarnir hófust fór Paul með Lindu kerlu sina og aðra félaga í Wings í skemmti- siglingu með gondóla. Fjöldi manns fylgdist með frá síkis- bökkunum — og i bátnum aftarlega til hægri eru rót- ararnir, sem ekki fá að sigla með stjörnunum. TÍKIN PALMA KEMUR VH> HJÖRTU SOVEZKRA LESENDA Tíkin Palrna hefur með tryggð sinni snert hjörtu milljóna sovézkra hunda- elskenda. Um tveggja ára skeið hefur hún beðið þess á flugvelli í Moskvu að húsböndi hennar snúi aftur. Oft eltir hún flugvélar langt út eftir flugbrautunum. Kosomolskaja Pravda, mál- gagn æskulýðssamtaka kommúnistaflokksins, skýrði frá þvi i gær að blaðinu hefðu bori/.t mikið af bréfum með boðmn um peninga og hjálp siðan sagan um Palma var fyrsl sögð í blaðinu f.vrir hálfum mánuði. En ntaðurinn, sem skildi tíkina sína eftir á Vnukovo- flugvelli í Moskvu og steig um borð í Il,vushin-18 flugvél. hefur enn ekki gefið sig fram, sagði blaðid. Tíkin. sem flugvallarstarfs- menn hafa gefið nafnið Palma, hljóp til skamms tíma á eftir hverri einustu Iljushin-18 út flugbrautirnar. Síðan bjó hún mn sig undir vinnuskúr verka- mannanna nærri flugstöðvar- byggingunni. Ilún kemur fram Ur skýli sínu til aó renna augunum yfir þá sem koma og fara. Kosmolskaja Pravda sagði frá þvi í gær aö tveir aðilar hefðu komið til Moskvu og taliö sig eiga hundinn. en það revnd- ist i hvorugt skiptið rétt. Niu ára göniul skólastúlka sendi fimni rúblur, eða um 1200 krónur, sem fratnlag til matar- kaupa handa Palma. Annar lesandi bauð l'ram 50 rúblur og vildi það láta verða stofnfram- lag lil bvggingar minnismerkis utn tikina trygglyndu. Flugvallarstarfsmenmrnir, sem gefa tíkinni að éta. hafa byggt fínt hundahús og girðingu, en hún kærir sig ekki um pjatt og prjál og vill ekki koma þar nálægt, að sögn blaðsins. Ef til vill lýkur sögunni um Palma ekki hamingjusamlega. sagði blaðið að lokum. og lýsti Intndinuin. sem tákni fyrir trygglvndi og viðvörun lil fólks eins og eiganda hans. sem „yfirgefur elskandi og Ifðandi skepnur. sem enn trúa á þá '

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.