Dagblaðið - 04.10.1976, Síða 16
1«
DAGBLAÐIi). M ANUDAGUR 4. OKTÓBER 1976.
Iþróttir
Vináttumót
Norðurlanda
f • r j r
i |udo
JSÍ gekkst fyrir júníoramóti í
judo í Laugardaishöilinni sunnu-
daginn 3. október. Mótið var
haldið ú sama tíma og Norður-
landamót ungra judomanna átti
að fara fram hér á landi, en sem
kunnugt er þá hættu Svíar og
Finnar við þátttöku í mótinu af
fjárhagsástæðum að því er þeir
sögðu. Norðmenn og Danir
hættu þá einnig við þátttöku.
Þetta gerðist þegar undirbúningi
mótsins var lokið og aðeins 10
dögum áður en mótið átti að
hefjast.
Á mótinu í Laugardalshöllinni
var keppt í tveimur aldursflokk-
um eins og gera átti á Norður-
landamótinu: annars vegar
unglingar 15—17 ára og hins-
vegar piltar 18—20 ára. í síðar-
talda flokknum fengu einnig að
keppa karlar sem ekki hafa hær'ri
gráðu en 4. kyu.
Úrslit urðu sem hér segir:
Yngri júníorar (15—17 ára)
Þyngri flokkur:
1. Egill Ragnarsson, JFR
2. Stefán Ragnarson, Isaf.
3. Sigurður Hauksson UMFK
Léttari fiokkur:
1. Þórarinn Ólafsson UMFK
2. Ketilbjörn Tryggvason JFR
3. Rúnar Guðjónsson JFR
Eidri júníorar
Yfir 86 kg.:
1. Jóhann Guðmundsson JFR
2. Kristmundur Baldursson
UMFK
3. Karl R. Gíslason JFR
80—88 kg.:
1. Viðar Guðjohnsen Á
2. Finnur M. Finnsson tsaf.
3. Jón B. Bjarnason JFR
Undir 80 kg.:
1. Jónas Jónasson Á
2. Guðni Georgsson UMFK
3. Hilmar Jónsson Á
Mót þetta var tileinkað vináttu
og samvinnu Norðurlandaþjóð-
anna, sem því miður er oft meiri í
orði en á borði.
pumn
ÆFINGASKÓR
NÝKOMNIR
Sportvöruverzlun
Ingólfs
Óskarssonar
Hólagarði Breiðholti
Simi 75020
Klapparstíg 44
Sími 11783
þróttir
Iþróttir
Iþróttir
Meistarar F
11 morka 1
en ÍR slapp með skrekkinn — skoraði
20-19 eftir að hafa haft yfir 17-6 í
Brynjóifur Markússon — var iðinn í fyrri hálfleik og skoraði mörg
mörk úr hraðaupphlaupum. Hér er hann á ferðinni — FH-ingar sitja
eftir. DB-mynd Bjarnleifur,
Handknattleikur er skemmti-
leg íþrótt, þar sem ógerlegt er að
segja fyrirfram hvernig úrslit
muni ráðast. Hraði ieiksins
heiilar áhorfendur — og’einmitt í
hraða leiksins gerast óvænt atvik.
— Leikir geta tekið furðuleg-
ustu stefnur.
Já, ágæti lesandi, leikir geta
tekið furðulegustu stefnur. En
hvað myndir þú kalla leik — rétt
eins og átti sér stað í gærkvöld er
ÍR og FH leiddu saman hesta sína
í Hafnarfirði? ÍR hafði algjöra
yfirburði í fyrri hálfleik svo að
vart stóð steinn yfir steini hjá FH.
Staðan í leikhléi var 17-6 — já,
staðan var 17-6 fyrir ÍR —
nýkomið upp úr 2. deild, gegn
íslandsmeisturum FH.
En í síðari hálfleik snerist
dæmið gjörsamlega við — nú var
það FH sem sundurspiiaði and-
stæðinga sína svo, að vart stóð
steinn yfir steini. FH skoraði
hvert markið á fætur öðru og er
aðeins tvær mínútur voru eftir
hafði FH tekizt að jafna, 19-19. Já,
FH hafði skoraði 13 mörk gegn 2
ÍR. ÍR missti síðan knöttinn er
Pálmi P. slökkti
Ijósin á Gróttu!
— skoraði 12 mörk, þegar Fram sigraði Gróttu 25-21
Fram — með Pálma Páimasyni
í broddi fylkingar — virtist
stefna í stórsigur gegn Gróttu í 1.
deildinni í Laugardalshöll i gær-
kvöld. Það týrði varla á Gróttu
allan fyrri háifleikinn — Fram
gekk á lagið. Skoraði þrjú fyrstu
mörk leiksins og hafði náð sjö
marka forustu í Ieikhléi. En i
síðari hálfieik datt leikur Fram-
liðsins alveg niður — bókstaflega
engin ógnun langtímum saman.
Grótta minnkaði muninn án þess
þó nokkru sinni að ógna sigri
Fram. Lokatölur 25—21 fyrir
Fram og varnarieikur og mark-
varzla hjá báðum liðum var oftast
ákaflega slök.
Leikmenn Gróttu reyndu að
taka Pálma Pálmason úr umferð,
en tókst það ákaflega illa. Pálmi,
þessi sterki leikmaður, sem af
einhverjum ástæðum var ekki
valinn i íslenzka landsliðið á dög-
unum, skoraði og skoraði og i
leikslok hafði hann skörað nær
helming marka Fram-liðsins eða
12. Átta þeirra skoruð úr vitaköst-
um — og þar brást hann aldrei.
Fram byrjaði mjög vel —
Pálmi, Arnar og Guðmundur
Sveinsson skoruðu á fyrstu mín-
útunum, en bræðurnir í Gróttu-
liðinu, Þór Ottesen og Björn
Pétursson svöruðu með tveimur
mörkum. Það var sannarlega stór-
skotahríð framan af — meira en
mark á mínútu og Fram seig
framúr. Var komið með sjö marka
forustu eftir 21 mín. 12—5. Grótta
var ekki heldur alltaf heppin i
leik sínum — til dæmis átti
Halldór Kristjánsson þrjú
stangarskot á stuttum tíma, Eins
og knötturinn vildi ekki í Fram-
markið frá honum. Þessi sjö
marka munur hélzt að mestu út
hálfleikinn og Fram-liðið lék oft
skinandi vel, enda mótstaða
Gróttu ekki mikil.
I>að kom þvi lá óvart hve lcikur
Fram féll niður í meðalmennsku í
síðari hálfleiknum — oft mikið
kæruleysi. Fram skoraði aðeins
tvö mörk fyrstu 10 mín. — en
fyrstu 10 mín. í fyrri hálfleiknum
hafði Fram skorað átta mörk.
Munurinn minnkaði. Einkum var
Árni Indriðason, fyrirliði og þjálf-
ari Gróttu, iðinn við að skora í
síðari hálfleiknum. Þrívegis
minnkaði Grótta muninn í þrjú
mörk, 19—16, 20—17, og 21—18
— en þá loks tóku leikmenn.
Fram sig á. Skoruðu næstu þrjú
mörk og öll spenna var úr sög-
unni.
Fram hefur mörgum góðum
leikmönnum á að skipa og liðið
á að blanda sér í baráttuna um
íslandsmeistaratitilinn ef rétt er
á málum haldið. Páimi, Arnar,
Guðmundur Sveinsson og Andrés
Bridde er sterkir leikmenn — og
liðið hefur nokkrum efnilegum
ungum mönnum á að skipa. Lið
Gróttu er ekki sannfærandi, þó
þar séu góðir einstaklingar eins
og Árni og Björn. En það er
ekkert nýtt hjá Gróttu að byrja
illa í 1. deildarkeppninni — en ná
sér svo vel á strik, þegar líða
tekur á leiktimabilið.
aðeins ein minúta var eftir. —
FH-ingar brunuðu upp, og Geir
Hallsteinsson var kominn í dauða-
færi en þá var honum hrint svo
hann missti jafnvægíð. Skot hans
geigaði, iR-ingar náðu knettinum
— brunuðu upp, Hörður
Hákonarson stökk inn í vítatéig-
inn og skoraði. En, Hörður steig
greinilega á línu er hann skoraði
mark sitt! Já, ágæti lesandi, hvað
myndir þú kalla slíkan leik? Ég
kalla hann delluleik — aldrei
áður hef ég séð neitt svipað. Ég
held að slíkt hljóti að vera eins-
dæmi,
En allt um það — IR fór með
tvö stig úr Firðingum gegn
íslands og bikarmeisturum FH.
Sannarlega óvænt úrslit. FH
byrjaði ákaflega illa — reyndir
leikmenn gerðu sig seka um
ótrúlegustu mistök og hvað eftir
Fejenoord
og Roda
efst
Úrslit i hollenzku knattspyrn
unni um helgina:
Breda — Eindhoven
Ajax — VVV Vanlo
Sparta — Twente
Haag — Utrecht
PSV Eindhoven — Telstar
Haarlem — Go Ahead
AZ ’67 — Fejenoord
Graafschap — Amsterdam
4- 1
1-0
1-1
0-3
5- 2
0-0
1-1
1-5
0-0
NEC — RODA
Fejenoord og Roda eru efst
með 15 stig, Ajax hefur 14,
Haarlem 12, Sparta 11 og PSV 10
stig.
Mörk Fram skoruðu Pálmi 12
(8 víti), Arnar Guðlaugsson 4,
Guðmundur Sveinsson 3, Jón
Árni Rúnarsson 2, Andrés, Pétur
Jóhannesson, Gústav Björnsson
og Birgir Jóhannsson eitt hver.
Mörk Gróttu skoruðu Árni 7 (4
víti), Björn 5, Þór 5, Gunnar
Lúðvíksson 3 og Hörður
Kristjánsson eitt. Leikinn dæmdu
Magnús Pétursson og Valur
Benediktsson. —hsím.
Fyrstí sigur Göppii
en lið Dankersen 1
— Við í Dankersen-iiðinu átt-
um raunverulega aldrei mögu-
leika'á því að bjarga stigi í leikn-
um gegn Rheinhausen á laugar-
daginn. Rheinhausen er mjög
sterkt lið á heimavelii eins og
sigur gegn Gummersbach í fyrstu
umferðinni og nú gegn Danker-
sen gefur til kynna. Aðeins
tveggja marka munur var þó í
lokin, 20—18 fyrir Rheinhausen,
en liðið vann auðveldari sigur en
þessar tölur gefa til kynna, sagði
Axel Axelsson, þegar Dagblaðið
ræddi við hann i gær.
Þetta er fyrsti tapleikur
Dankersen í Bundeslígunni — en
Göppingen, liðið, sem Gunnar
Einarsson leikur með, vann sinn
fyrsta sigur á laugardag. Það var
á heimavelli gegn Leuternshaus-
en. 18—14. Nánari fréttir höf-
um við ekki af leiknum —
Gunnar Einarsson hefur enn ekki
fengið síma.
Við hjá Dankersen reyndum í
byrjun að taka einn leikmann
Rheinhaus’en úr umferð, sagði
Axel ennfremur. Það heppnaðist
illa — og vörn okkar opnaðist illa
i staðinn Rheinhausen gekk á
lagið og náði fljótt góðri forustu. I
leikhléinu var staðan 10—5 og
liðið hafði fimm til sex marka
forustu fram í miðjan síðari hálf-
leikinn. Þá kom góður leikkafli
hjá okkur og munurinn minnkaði
í 16—14. En við gátum ekki f.vlgt
þessu eftir. Rheinhausen komst
fjórum mörkum yfir á ný og úrslit
voru ráðin. þó svo Dankersen
minnkaði nokkuð muninn í lokin,
sagði Axel.
Markvörður Rheinhausen er
tröll af manni — 2.16 m. og þad
var lítið gaman fyrir Ölaf H. Jóns-
son að reyna að skora hjá honum
af línunni. Maðurinn bókstaflega
fyllir út í markið. Þó skoraði
Ölafur þrjú mörk í leiknum — tvö
þeirra eftir línusendingar frá
mér, sagði Axel, sem einnig sagð-
ist hafa verið ánægður með sinn
leik. Hann skoraði tvö mörk í
leiknum — úr tveimur skottil-
raunum. Kramer skoraði 3 mörk