Dagblaðið - 04.10.1976, Qupperneq 18
18
IMCULAÐH). MANUDACUR 4. OKTOBER 1976.
íþróttir
Iþróttir
Best rekinn af velli—f yrsta
tap Fulham í átta leikjum
George Best var rekinn af
leikvelli, sex mörk voru skoruð
á St. Andrews í Birmingham, á
MaineRoad íManchester, á The
Hawthorns í West Bromwich,
fimm mörk voru skoruð á High-
bury í Lundúnum, á Garrow
Road í Norwich — já, það voru
mörg mörk skoruð á Englandi
um helgina. í 1. deild voru
skoruð 37 mörk í 11 leikjum —
það finnst Englendingum
mikið. Og nú trónir Manchester
United efst á tindi 1. deildar
eftir góðan sigur á Elland Road
í Leeds. — Ungu strákarnir
hans Docerty sigruðu Leeds
2—0 — og nú eru Manchester
United, Manchester City,
Liverpooi og Middiesbrough
efst og jöfn með 11 stig —
United hefur bezta marka-
töluna.
En þrátt fyrir að United tróni
nú efst á toppi 1. deildar þá var
það engu að síður George Best
sem eignaði sér allar fyrirsagn-
ir í brezku pressunni. Og það út
af atviki, sem Best sjálfur vill
sjálfsagt gleyma sem fyrst.
Hann var rekinn af leikvelli
þegar Southampton og Fulham
mættust á The Dell 1 Southamp-
ton. Bikarmeistararnir South-
ampton unnu sinn fyrsta sigur
á leiktimabilinu og Fulham
tapaði 1—4 — já, Fulham
tapaði sínum fyrsta leik í átta
leikjum.
Leikmenn Southampton
fengu sannkallaða óskabyrjun
þegar Ted MacDougall skoraði
eftir aðeins 2 mínútur. Þannig
var staðan í leikhléi og
Southampton lék skínandi vel
— já, greinilegt að rafmagnað
andrúmsloftið á The Dell lyfti
leikmönnum liðsins upp.
Völlurinn var troðinn — allir
vildu sjá Best og Marsh 1 leik,
sem fyrr.
Á 22. mínútu síðari hálfleiks
tók McCalliog aukaspyrnu —
lyfti knettinum beint á kollinn
á Mel Blyth, sem skallaði knött-
inn 1 netið 2—0. Leikmenn
Fulham urðu æfir — vildu
meina að ekki hefði verið rétt
að aukaspyrnunni staðið. Þeir
þyrptust 1 kring um dómarann
allir sem einn — og út úr þvög-
unni gekk George Best —
honum hafði verið vísað að leik-
velli fyrir Ijótan munnsöfnuð.
Leikmenn Fulham léku því
10 það sem eftir var leiksins
En skömmu síðar gerðist
annað umdeilt atvik. Svo virtist
sem brotið væri á varnarmönn-
um Southampton á vítateigs-
horninu. Rodney Marsh sendi
knöttinn á John Mitchell, sem
skoraði. „Hann hefur gefið
mark. Þetta er tóm vitleysa.
Það var greinilega brotið á
varnarmönnum Southampton."
hrópaði þulur BBC, sem lýsti
leiknum. Já, dómarinn var
mjög slakur — það voru þulir
BBC sammála um. Hvað eftir
annað dæmdi dómarinn furðu-
legustu dóma. Þulir BBC sögðu,
að svo virtist sem dómarinn
tæki alltaf rangar ákvarðanir.
En leikmenn Southampton
misstu ekki stjórn á skapi sínu.
Þeir héldu áfram að leika
knattspyrnu. Á 27. mínútu átti
McCalliog aftur góða sendingu
á kollinn á Mel Blyth og þessi
hávaxni varnarmaður skoraði
aftur. Staðan 3—1 — já þrjú
mörk höfðu verið skoruð á
aðeins 5 mínútum og George
Best rekinn af velli. Ted
MacDougali — þessi snjalli
markaskorari — skoraði síðan
fjórða mark á 35. minútu —
skömmu áður hafði Marsh
einnig yfirgefið leikvöllinn,
meiddur. Já, lið Fulham var í
rústum. F.vrsti ósigur liðsins í
átta leikjum var staðreynd —
fyrsti sigur Southampton á
keppnistímabilinu i 2. deildinni
staðreynd. Southampton —
Manchester City og west Ham mættust á Maine Road í Manchester. City sigraði 1-0- 'Þessi mynd er
tekin á Upton Park í Lundúnum, er liðin mættust á síðasta keppnistímabili. Mike Doyle — fyrirliði
City skallar að marki — en Pat Holland náði ekki að komast fyrir. Billy Jennings og Rodney Marsh,
sem á laugardag lék í Southampton fyrir Fulham fylgjast með.
bikarmeistararnir frá síðast-
liðnu vori komust þannig af
botni 2. deildar.
En áður en við höldum
iengra skulum við llta á úrslit á
Englandi á laugardag.
1. deild:
Arsenal — QPR 3-2
Birmingham — Derby 5-1
Bristol City — Ipswich 0-2
Coventry — Leicester 1-1
Liverpool — Middlesbrough 0-0
Leeds — Manchester United 0-2
Manch. City — West Ham 4-2
Norwich — Newcastle 3-2
Sunderland — Everton 0-1
Stoke — Aston Villa 1-0
WBA — Tottenham 4-2
2. deild
Bolton — Blackpool 0-3
Carlisle — Charlton 4-2
Chelsea — Cardiff 2-1
Hull — Nottm. Forest 1-0
Hereford — Wolves 1-6
Millvall — Bristol Rovers 2-0
Notts County — Oldham 1-0
Orient — Blackburn 0-1
Sheff. Utd. — Burnley 1-0
Plymouth — Luton 1-0
Southampton — Fulham 4-1
Middlesbrough hefur verið
mjög gagnrýnt á Englandi fyrir
neikvæða knattspyrnu — leik-
menn leggjast í vörn og ekkert
er hugsað um sóknina. Enda er
svo, að liðið hefur aðeins skorað
5 mörk I deildinni — ekkert á
útivelli. Já, furðulegt.
Middlesbrough fór til Liver-
pool og lék á Anfield við Liver-
pool — sem fyrir leikinn var í
efsta sæti 1. deildar. Og
Middlesbrough pakkaði vörn-
ina — 10 leikmenn í vörn —
lengst af í eigin vítateig. Síðan
var einn dólandi fyrir utan
tetginn — þó ekki langt undan
ef hans skyldi þarfnast, eins og
fréttamaður BBC orðaði það.
Liverpool tókst ekki að brjóta
niður þetta varnarvirki og
Middlesbrough hélt heim með
dýrmætt stig — og liðið hefur
nú jafnmörg stig og Liverpool
og Manchesterliðin tvö.
Manchester United fór til
Elland Road í Leeds — og hinir
ungu leikmenn fengu sann-
kallaða óskabyrjun. Eftir
aðeins 10 mínútur var staðan
2—0 Manchesterliðinu í vil.
Gordon Hill lék upp kantinn og
gaf fyrir — Gordon McQueen
skallað frá en beint fyrir fæt-
urna á Gerry Daly, sem
skoraði með góðu skoti. Þetta
var á 7. mínútu — og aðeins
þremur mínútum síðar var Hill
aftur á ferðinni. Hann lék á
McQueen og sendi knöttinn á
Daly, sem aftur sendi á Steve
Coppen og hann skoraði —
2—0. Leeds United náði sér
aldrei á strik eftir þessi óvæntu
áföll og United hélt til
Manchester með dýrmæt stig —
og efsta sætið I 1. deild.
Hitt Manchesterliðið — City
lék á Maine Road við West
Ham. Liðið hafði tapað tveimur
leikjum i röð — I fyrri viku
fyrir United og síðan Juventus
í Torínó. Þrjár breytingar voru
gerðar á liðinu frá leiknum við
United. Mike Docherty —
sonur Tommy, framkvæmda-
stjóra United, var settur úr
liðinu eftir hina slöku frammi-
stöðu gegn United. Peter
Barnes kom inn en hann var
meiddur á laugardaginn og
ungur leikmaður, Gerry Owen,
einnig. Þetta hreif —
City lék stórvel en það var þó
ekki fyrr en undir lok fyrri
hálfleiks að City skoraði og þá
var Owen að verki.
I síðari hálfleik opnuðust
flóðgáttir West Ham. Denis
Tueart skoraði — en West Ham
tókst að minnka muninn er
Alan Taylor skoraði. En City
hafði ekki látið staðar numið —
Tueart og Asa Hartford komu
Cit.v í 4—1 en Mike Doyle —
f.vrirliði City skoraði sjálfs-
mark en það breytti litlu. City
sigraði örugglega 4—2.
Arsenal er aðeins stigi á eftir
forystuliðunum. Liðið sigraði
QPR í Lundúnum 3—2. QPR
náði forystu með stórgóðu
marki Dave Thomas — en Pat
Rice jafnaði skömmu síðar.
Þannig var staðan í leikhléi —
1—1. Phil Parkes — mark-
vörður QPR meiddist I upphafi
síðari hálfleiks og David Webb,
miðvörður liðsins fór í markið.
Það færði QPR litla gæfu —
alveg að ástæðulausu þá bein-
línis gaf Webb Arsenal horn-
spyrnu og Brady skoraði en
David Webb hefði átt að verja
— gat aðeins hjálpað knett-
inum yfir marklínuna. Frank
MacLintock — fyrrum Arsenal
leikmaðurinn jafnaði er hann
skoraði með skalla og því virtist
stefna í sanngjarnt jafntefli.
En aðeins fimm mínútum fyrir
leikslok sendi Brady á Stapel-
ton — sem skorði 3—2. Sann-
gjarnt hefði verið jafntefli.
Nú, en svo við förum hraðar
yfir sögu þá var leikur WBA og
Tottenham furðulegur. Totten-
ham keypti Peter Taylor í fyrri
viku fyrir 200 þúsund pund og
lék hann sinn fyrsta leik með
Tottenham í West Bromwich.
Taylor átti skínandi leik í fyrri
hálfleik og skoraði gott mark.
Áður hafði Chris Jones skorað
fyrir Tottenham og staðan í
leikhléi var 2—0 fyrir
Lundúnaliðið. En það dugði
ekki — þrjú mörk á
skömmum tíma breyttu stöð-
unni gjörsamlega. Já, WBA
svaraði heldur en ekki
f.vrir sig. Tony Brown. Miek
Martin og Rav Treacy skor-
uðu o^ komu WBA yfir.
Mick Martin bætti siðan við
öðru marki rétt undir lokin og
innsiglaði sigur WBA sem
undir stjórn Johnn.v Giles er
— Manchester United trónir nú efst á toppi
1. deildar og City i öðru sœti. Middlesborough lék með
10 í vörn á náði i stig á Anfield
aðeins tveimur stigum á eftir
forystuliðunum.
Colin Todd kom mjög á óvart
í vikunni er hann fór fram á að
verða seldur frá Derby County.
Virðast brestir nú að vera koma
fram hjá liðinu og enn hefur
Derby ekki unnið leik. Á
laugardag mátti liðið þola mjög
slæmt tap á St. Andrews í
Birmingham. 1—5 Kenny
Burns skoraði fjögur mörk
fyrir Birmingham — John
Connolly hið fimmta. Charlie
George svaraði fyrir Derby —
já, og í leikhléi var Colin Todd
tekinn útaf. Það gengur flest
gegn Derby um þessar mundir.
Norwich skoraði þrjú mörk I
fyrri hálfleik gegn Newcastle.
Martin Peters skoraði tvö —
eitt viti og nýi leikmaðurinn,
Viv Busby hið þriðja. Leik-
menn Newcastle svöruðu með
tveimur mörkum I síðari hálf-
leik — þeir Tommy Craig og
Alan Gowling minnkuðu mun-
inn en ekki tókst Newcastle að
jafna.
Sunderland stillti upp
þremur nýjum leikmönnum á
Roker Park í Sunderland gegn
Everton. Þeim Jim Holton, Bob
Lee og Alan Foggon — en
fjórði leikmaðurinn, sem
Sunderland keypti — Barry
Siddall lék ekki þar sem Jim
Montgomery lék I markinu.
Þetta dugði ekki — liðið lék
eins og 11 einstaklingar en ekki
eins og liðsheild og tap óhjá-
kvæmilegt. Ron Goolash
skoraði fyrir Everton á 7.
minútu beint úr hornspyrnu og
Sunderland er nú autt og yfir-
gefið á botni 1. deildar með
aðeins fjögur stig — og enn án
sigurs. Bristol City tapaði
sínum fyrsta heimaleik — gegn
Ipswich. Þeir Trevor Whymark
og Roger Osborne skoruðu
mörk Ipswich. Leicester gerði
jafntefli — eins og venjulega,
hið sjöunda í níu leikjum liðs-
ins en liðið sigraði Stoke I vik-
unni og vann þar með sinn
fyrsta sigur.
Og — Hull sigraði Notting-
ham Forest í 2. deild 1—0. Og
hvað með það? Jú, Billy
Bremner skoraði fyrir sitt nýja
félag en hann var seldur frá
Leeds til Hull fyrir 40 þúsund
pund.
Brighton og Crystal Palace
skildu jöfn í 3. deild 1—1.
Brighton er nú efst I 3. deild
ásamt Shrewsbury og Reading
með 12 stig.
Að lokum sKulum viu líta á
stöðuna á Englandi.
1. deild:
Manch. Utd.
Manch. City
Liverpool
Middlesbrough
Everton
Arsenal
WBA
Ipswich
Loicester
Stoke
Aston Villa
Birmingham
Newcastle
QPR
Bristol City
Tottenham
Norwich
Leeds
Derby
West Ham
Sunderiand
2. deild:
Chelsea
Wolves
Blackpool
Millvall
Bolton
Fulham
Hull
Sheff. Utd.
Oldham
Notts. County
Nottm. Forest
Brístol Rovers
Chariton
Plymouth
Luton
Burnley
Hereford
Blackbum
Cardiff
Southampton
Oríent
15-8
13-8
11-6
5-3
13-7
14-10 10
12- 9 9
14- 13 9
7- 8 9
6- 9 9
15- 9
13- 9
11-10
11-13
9-9
8- 14
6-11
8-12
7- 14
6-14
5-12