Dagblaðið - 15.01.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977.
3
Spurning
dagsins
Niðurrif hússins við
Aðalstræti 12 yrði mikið
áfall fyrir Grjótaþorpið
Sjónvarpið auglýsir ósómann!
—opið bréf til lögreglust jóra og slökkviliðsst jóra
frá íbúasamtökum Grjótaþorps
Á nýársnótt brann húsið við
Aðalstræti 12 illa. Húsið var
byggt árið 1890 af Matthíasi
Jóhannessen og hefur því sett
svip sinn á Aðalstræti og
Grjótaþorp í rúm 80 ár. Húsið
var góður fulltrúi fyrir
bvggingarstíl kaupstaðarhúsa
síns tíma. Niðurrif hússins yrði
því mikið áfall fyrir Grjóta-
þorpið og götumynd Aðal-
strætis sem í dag er tiltölulega
heilleg ef frá er talið Morgun-
blaðshúsið.
t Grjótaþorpi er þétt byggð
timburhúsa og sambrunahætta
gífurleg, því liggur mikið við að
allar brunavarnir séu í full-
komnu lagi en umrædda nótt
kom í ljós að víða er pottur
brotinn í þcim efnum.
Brunahani er við Bröttugötu
í nokkurra metra fjarlægð frá
Aðalst'ræti 12 en er til átti að
taka á nýársnótt reyndist hann
ónothæfur.
Annar brunahani er í
svipaðri fjarlægð, en við Grjóta-
götu, hann reyndist einnig ó-
nothæfur.
Óeðlilega langur tími léfð
frá því tilkynnt var um brun-
ann þangað til slökkvistarf var
komið í fullan gang. Slökkvi-
starf gekk með eindæmum
treglega sökum mannfæðar og
áberandi skipulagsleysis. Mest-
an óhug sjónarvotta vakti hve
erfiðlega slökkviliðinu gekk að
ná í vatn. Svör slökkviliðsins
voru á þá leið að frosið hefði
verið í nærliggjandi brunahön-
um! Kannski slökkviliðið geri
ekki ráð íyrir eldsvoðum í
frosthörkum!
Engar nauðsynlegar bruna-
varnir voru á efri hæðum
hússins við Aðalstræti 12, s.s.
reykskynjarar, slökkvitæki o.
fl. Ástand rafmagns er í algjör-
um ólestri í mörgum húsum í
hverfinu. í Aðalstræti 12 var
hluti af raflögnum frá árinum
1920-1930.
Eins og áður segir er sam-
brunahætta gífurleg í Grjóta-
þorpi. Lögreglan fór í nærliggj-
andi hús umrædda nótt og
hvatti fólk til að yfirgefa
staöinn vegna yfirvofandi
hættu á útbreiðslu eldsins.
Vakti það furðu viðkomandi
ibúa að ekki var því boðið húsa-
skjól né aðstoð við björgun hús-
muna.
Lögregluvakt var við húsið
Aðalstræti 12 fram ti! kl. 17.00 á
nýársdag. Þá var vaktinni hætt
þrátt fyrir margítrekaða beiðni
íbúa hússins og annarra er áttu
hagsmuna að gæta í sambandi
við atvinnurekstur þar. Svör
lögreglunnar voru á þá leið að
þeim bæri ekki skylda til að
vakta húsið lengur en vörpuðu
jafnframt fram þeirri
spurningu hver mundi borga þá
vakt ef af yrði.
Málalyktir urðu þær að engin
lögregluvakt var en aðstand-
endur íbúa stóðu vörð fram til
kl. 04.30 aðfaranótt 2. janúar.
Eftir þann tíma var framið inn-
brot í húsið og ýmsum munum
stolið.
Viljum við beina þeirri
spurningu til lögreglustjóra
hvort hinn almenni skattborg-
ari eigi ekki rétt á vernd lög-
reglunnar í tilfellum sem þess-
um.
Einnig beinum við eftirfar-
andi spurningum til slökkvi-
liðsstjóra:
1. Er slökkviliðinu ekki skylt að
fylgjast með ástandi brunahana
og láta framkvæma viðgerð taf-
arlaust ef þörf krefur?
2. Er ekki eðlilegt að eldvarnar-
eftirlitið fylgist með bruna-
vörnum og hafi vald til að
skylda húseigendur til að hafa
nauðsynlegar brunavarnir í
húsum sínum?
3. Er til of mikils mælst að
eldvarnareftirlitið fylgist með
því, að raflagnir séu í full-
komnu lagi? (En eins og allir
vita er lélegt ástand raflagna
einn skæðasti brunavaldur-
inn.)
Með von um greinargóð svör.
íbúasamtök Grjótaþorps.
Svör við fyrirspurn íbúa-
samtaka Grjótaþorps
1. Er slökkviliðinu ekki skylt
að fylgjast með ástandi bruna-
hana og láta framkvæma
viðgerð tafariaust ef þörf kref-
ur?
Skv. lögum ber sveitarfélögum
að hlutast til um, að nægilegt
vatn sé fyrir hendi tii slökkvi-
starfs. Sveitarstjórnir þeirra
sveitarfélaga sem standa að
Slökkviliði Reykjavíkur hafa
falið vatnsveitustjórum sínum
þetta mál og hafa þeir á hendi
eftirlit og viðhald bruna-
hananna.
2. Er ekki eðlilegt að eldvarna-
eftirlitið fylgist með bruna-
vörnum og hafi vald til að
skylda húseigendur til að hafa
nauðsynlegar brunavarnir í
húsum sinum?
Það hefur margsinnis komið
fram, að skv. lögum er eld-
varnaeftirlit á íslandi (eins og
á öðrum Norðurlöndum) ein-
skorðað við atvinnufyrirtæki,
verksmiðjur, birgðastöðvar
fyrir olíu og bensín, verkstæði,
skóla, samkomuhús, sjúkrahús,
hótel og aðra vinnustaði. Hins
vegar er ekki skylda húseig-
enda né eldvarnaeftirlits að
halda uppi reglubundnu eftir-
flýjanlegum nauðþurftum.
Það er nú orðið tæplega
lesin svo sem ein saga,
leikrit eða fluttur samtals-
þáttur aó ekki séu þessir hlutir
um hönd hafðir. Getur ekki
sjónvarpið, ef það vill, sett um
það reglur hvernig menn koma
fram í þáttum þess? Er þetta
blessað fólk svo vanbúið frá
náttúrunnar hendi, að það geti
ekki verið tóbakslaust í
nokkrar mínútur? Hefði ekki
þátturinn af Halldóri Guðjóns-
syni orðið jafngóður, þó að
hann hefði sleppt því að púa
reyknum framan í áhorfendur?
Mér virtist honum ekki veita af
munninum til annarra hluta,
meðan á samtalinu stóð og svo
hefur verið með fleiri.
Vonandi sér sjónvarpið sóma
sinn í því, í samvinnu við æðstu
menntastofnun landsins, að
vera ekki farvegur ómenningar
og auvirðilegra lifnaðarhátta.
Baráttan gegn tóbakinu
stendur ekki fyrst og fremst við
neytendurna, en flestir þeirra
vilja vera láusir við það, heldur
móti framleiðendum þess, um-
boðsmönnum þeirra og seljend-
um. tóbaksauðvaldinu, er rær
að því öllum árum að sem
flestir re.vki. Gott fól.k. Tökum
höndum saman og vinnum gegn
því.
Guðjón Bj. Guðlaugsson.
liti í íbúðarhúsnæði, en aldrei
hefur eldvarnaeftirlit neitað
neinum sem óskað hefur eftir
að láta skoða eigið húsnæði um
slikt.
3. Er til of mikils mælst. að
eldvarnaeftirlitið fylgist með
því að raflagnir séu í full-
komnu lagi? (En eins og allir
vita er lélegt ástand raflagna
einn skæðasti bruna-
valdurinn).
Skv. lögum er rafmagnsveitu
skylt að hafa reglubundið eftir-
lit með rafkerfum húsa eftir
ákveðnum reglum, þar sem
mannvirkjum er skipt í þrjá
flokka m.a. vegna brunahættu.
Það hafa ekki komið fram
opinberlega frá slökkviliðinu
nein svör um að frosið hafi
verið í brunahönum við brun-
ann í Aðalstræti enda alrangt.
Loks vil ég benda íbúasamtök-
um Gcjótaþorps sem og öðrum á
að ef leita þarf upplýsinga hjá
siökkviliðinu þá er slökkvistöð-
in opin allan sólarhringinn all-
an ársins hring og upplýsingar
veittar í sima 22040. En hins
vegar er neyðarnúmer okkar
11100.
Slökkviliðsstjórinn í Reykja-
vík
Rúnar Bjarnason.
Ilalldor Guójonsson — puaði I raman í áhorfendur og auu lýsli tóhakseitriö á sinn hált. segir lesandinn.
Þá er þáttur útvarps og sjón-
varps óafsakanlegur og maður
freistas! til að halda. að þar sé
beint eða óbeint fjárvon að
haki. Við öll hugsanleg tæki-
færi er borið fram vín og tóbak
eins og um sjálfsagðan hlut
væri að ræða og notkun þess
lætt inn i vitund fólks sem óum-
Gerírðugóð
Erlingur Hannesson: Já, það er
hægt að fá t.d. buxur sem eru tvö
þúsund krónum ódýrari en
venjulega.
Pálmey Kristjánsdóttir^ Eg fer
eiginlega aldrei á útsölur, ég
kaupi bara það sem mér lízt á og'
ég þarfnast.
Svanhildur Guðmundsdóttir: Ég
kaupi nú bara vörur, sem ég þarf
á að halda, hvort sem þær eru á
útsölu eða ekki.
Asa Björg Asgeirsdóttir: Já, þaö
er miklu ódýrara. Maður getur
fengið tvennar buxur fyrir það
sama og einar kosta, sem eru ekki
á útsölu.
Droplaug Ölafsdóttir: Eg fer nú
ekki oft á útsölur, en það er hægt
að finna margt miklu ódýrara á
þeim og gera góð kaup í sumum
tilfellum.
Margrét Kristjánsdóttir: Það
getur verið að hægt sé að gera góð
kaup, en þá finnst mér það sér-
staklega eiga við um barnaföt.