Dagblaðið - 15.01.1977, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 1977
I
ASGEiR
TÖMASSON
ORKNEYJAR: Ef til vill á Meírakkasléttan eftir að líta út eitthvað
í þessa veruna. Þessi mynd var fyrir stuttu tekin á Orkneyjum,
þeim sögufræga stað. og nú er hráolía farin að streyma í geymana
þar eftir 85 kílómetra langri neðansjávarleiðslu frá Norðursjó. Það
voru Ton.v Benn orkumálaráþherra Bretlands og dr. Armand
Hammer stjórnarformaður fyrirtækisins. sem sér um olíudæling-
una. sem í vikunni opnuðu formlega fyrir rennslið.
FINNLAND: Óvenjulega stórir úlfar hafa að undanförnu flykkzt
yfir tilNorðaistur-Finnlands frá Sovétríkjunum. íbúar þessa land-
svæðis eru dauðhræddir við þessar skepnur og hvað eftir annað
hópast menn saman og fara á veiðar. Illa hefur gengið að veiða
þessa risaúlfa til þessa og á meðfylgjandi mynd. sem er frá 12.
þessa mánaðar. sést fyrsti úlfurinn. eða öllu heldur úlfynjan-. sem
tókst að koma dauðaskoti á.
Erlend myndsjá
PARÍS. FRAKKLANDI: Hér ræðir sendiherra israels í Frakklandi við fréttamenn, áður en hann lagði
af stað til heimalands síns til skrafs og ráðagerða. Þar var umræðuefnið sú ákvörðun Raymónds Barre
forsætisráðherra að sleppa hermdarverkamanninum Abou Daoud úr haldi. — Daoud hélt til Alsír og í
gær neitaði hann gjörsamlega að hafa nokkurs staðar komið nærri morðum á ísraelsku íþróttamönn-
unum i Miinehen.
VADSÖ. Noregi: Tveir norskir fiskimenn veiddu fyrir stuttu risakrabba sem vó 6.3 kilógrömm og
hafði faðmlengd sem samsvarar 1.20 metrum. Sérfræðingar segja að ekki komi annað til greina en að
þarna sé á ferðinni'sjálfur risakrabbinn Kanttsjaka. Þetta er i fyrsta skipti sem svo stór krabbi veiðist
við Noreg og óneitanlega taka þeir sig vel út sjómennirnír með bráðina á milli sín eins og lítið
fósturbarn.
BANDARÍKIN: Eftir fimm daga — þann 20. — sver Jimmy Carter
hnetubóndi og fyrrum ríkisstjóri i Georgia eið og verður eftir það
39. forseti Bandaríkjanna fyrir guðs og manna lögum. Hann hefur
að sjálfsögðu lofað löndum sínum mörgum umbótum og þar á
meðal skattalækkunum. Þessi skopm.vnd af athöfninni birtist í
nýjasta hefti vikublaðsins Time og þar er forseti hæstaréttar látinn
segja við Carter: „He.vrðu mig. Svona á meðan þú ert enn eiðsvar-
inn... ætlarðu raunverulega að lækka skattana á þessu ári?“
CLEVELAND. BANDARÍKJUNUM: Fréttir að utan i vikunni
sögðu frá miklu fannfergi bæði í Evrópu og Bandarikjunum. Hér
sést Clevelandbúi revna að moka snjónum frá bil sinum. Hann er
hins vegar ungur og að þ'vl er virðist vel.gð manni. svo að varla er
hælta á að hann ofreyni sig og fái fyrir hjartað við verk sitt. Það
hefur einmitt komið fvrir f jölda landa hans.