Dagblaðið - 15.01.1977, Síða 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977.
SÆNSKUR SÖNGVARII
FYRSTA SÆTI í KLÚBBNUM
—tveir íslenzkir listar birtir á næstunni
Akveðið hefur verið að plötu-
snúðar Klúbbsins sjái í framtíð-
inni um útreikning á vinsælda-
lista sem sýni þau lög sem fólk
biður helzt um og eru vinsælust
í diskóteki staðarins. Eins og
einhverjir lesendur Dag-
blaðsins hafa vafalaust tekið
eftir birtust nokkrum sinnum
vinsældalistar sem reiknaðir
voru út á veitingahúsinu
Sesari. Eftir að síðasti plötu-
snúður Sesars. Johnny Mason,
hélt til síns heima var fyrirsjá-
anlegt að slíkt félli niður en nú
hafa plötusnúðar Klúbbsins
sem sag! falliz! á að hefja vin-
sældalistagerð.
Nýr enskur plötusnúður er
nú kominn á Sesar. Hann heitir
Bennv King og hefur einnig
bóðizt til að gera Sesarslista í
framtíðinni. Eftir nokkrar
vikur getum við því birt tvo
íslenzka vinsældalista.
Fróðlegt verður að bera þá
saman þvi að á öðrum staðnum
verða að mestu tekin fyrir ensk
lög en þeir Klúbbmenn halda
sig meira við bandaríska tón-
list. Islenzku vinsældalistarnir
birtas! í framtíðinni á föstudög-
um en þeir brezku og banda-
rísku á laugardögum.
En snúum okkur þá að lista
dagsins í dag. I efsta sæti er
sænskur söngvari, Harpo að
nafni, með lagið Movie Star.
Þetta lag er orðið að minnsta
kosti ársgamalt en tók hins
vegar ekki að njóta neinna vin-
sælda hér á landi fyrr en seint á
síðasta ári. — Movie Star er nú
komið á íslenzka hljómplötu
með hljómsveitinni Deildar-
bungubræðrum.
Á síðasta vinsældalista
Johnny Mason var Daddy Cool
vinsælasta lagið. Það er nú í
öðru sæti í Klúbbnum. I næstu
viku kemur í ljós hvort það er á
upp- eða niðurleið.
Tvö íslenzk lög eru nú á lista.
Það eru Blue Jean Queen með
Magnúsi Thor og Eikarlagið
Stormy Monday. — Einhverra
hluta vegna virðast íslenzk lög
falla illa i kramið hjá diskótek-
aðdáendum í Klúbbnum.
Magnús Thor og Eik virðast þó
hafa fundið náð fyrir augum
þeirra. -ÁT.
ÍSLAND — Klúbburinn — 8. janúar 1977:
1. Movie Star...............................Harpo
2. Daddy Cool............................Boney M.
3. Dance Little Lady, Dance...........Tina Charles
4. Nice & Slow..............................Jesse Green
5. Car Wash..................................Rose Royce
6. Blue Jean Queen ...................Magnús Thor
7. Peter Gunn............................. Deodato
8. You Should Be Dancing .................Bee Gees
9. Disco Duck..........Rick Dees & His Cast Of Idiots
10. Music Man......................Eddie Kendricks
11. Stormy Monday ..............................Eik
12. Summer Affair/Winter Changes....Donna Summer
13. Lowdown .............................Boz Scaggs
14. Jam-J'am-Jam (all Night Long) ..People’s Choice
15. Take The Heat Off ...................Boney M.
16. The Rubberman Band...................Spinners
17. Shake Your Booty.....KC And His Sunshine Band
18.1 Wish ..........................Stevie Wonder
19. Dancing Queen............................Abba
20. Take All Of Me ...................Tina Charles
NEI, AUÐVITAÐ ERUM VIÐ EKKI
AÐ TALA UM SAMA HLUTINN...
Síðasta föstudag birtist enn
eitt bréfið frá 453031 um
Gunnar Þórðarson þar sem
hann svaraði jafnframt bréfrit-
ara 0840-1241. Hér skrifar 0840-
1241 aftur og virðist það vera
lokabréf hans í þessari deilu.
„Nei, auðvitað erum við ekki
að tala um sama hlutinn, nema
að þvi setn snýr að viðurkenn-
ingu þinni á Gunnari Þórðar-
syni sem miklum tónlistar-
manni og góðum dreng. Ég var
hihs vegar aö tala við þig um
þig og hæfileika þína til að
kveða upp útlegðardóm yfir
einum eða öðrum.
Þvi er nú eitt sinn þannig
varið að smekkur manna er
misjafn og það sem einum
þykir gott hrellir annan. Þú
fellur í þá gr.vfju að telja þig
óskeikulan og að þinn smekkur
skuli vera leiðarljós allra sem
tónlist unna — hafir fengið þá
gáfu í vöggugjöf. En þú, með
Yfirlýsingfrá Celsíusi:
„Við vorum ekki ráðin í Klúbbinn”
llljónisveilin Celsíus hefur
beöiö Dagblaðið um aö koma
eftirfarandi yfirlýsingu að:
,.Sá atburður átti sér stað
fimintudagskvöldið 6. janúar að
hljómsveitin Celsíus var aug-
lýst á dansleik í veitingahúsinu
Klúbbnuin án þess aö nokkur
fótur væri fvrir þeirri auglýs-
ingu. Eigi þekkjum við ástæð-
una fyrir þessum mistökum en
alla vega hefur borið á því að
ýmsir, sem sóttu veitingahúsið
þetta kvöld, ásaka okkur með-
limi Celsíusar ranglega fvrir að
hafa brugðizt.
Viröingarfyllst.
Celsius.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON pianóleikari Celsiusar. A miðviku-
daginn birtist mynd af hljömsveitinni er hún vann titilinn Bjart-
asla von ársins 1976. Þá vantaði Kristján inn á myndina en viö
baúitm úr þvi hér meö. DB-mynd Ragnai .'l'h.
þín 22 ár að baki (13 03 54) átt
eftir að læra mikið og ég vona
að þú hafir þegar lært nokkuð
af frumhlaupi þinu.
Ef hver einstaklingur fylgdi
þínu fordæmi og staðhæfði með
heldur ósmekklegu orðavali að
sinn smekkur hlyti að vera sá
eini rétti væri aldrei friður né
rúm í dagblöðum vegna skit-
kasts og rógs á fólk sem ekkert
hefur til unnið annað en að
reyna að koma á framfæri því
sem listsköpunargáfa og þrá
hvetur það til að gera. Þar
komum við einmitt að innihaldi
þess sem deila mætti um. Mín
skoðun er sú að listamaður
standi frammi fyrir því að
hljóta dóm þjóðarinnar, þegar
hann lætur verk sitt fara frá
sér. hvort sem það er ljóð, lag,
mynd cða ritverk.
Sá dómur er fyrst og fremst
dómur almennings. Ef almenn-
ingi líkar framlag listamanns-
ins er honum umbunað með þvi
að verk hans eru keypt. Ef
ekki. þá getur hann reynt aftur.
Við sem höfum íylgzt með
popptónlist á þessu landi á
undanförnum árum höfum
heyrt margt og æði misjafnt aö
gæðum. Sumt flokkast undir
skemmtitónlist. annað kallast
framúrstefnutónlist og enn
annaö eftiröþunartónlist. Hvað'
hverjum líkar verður að vera
tnat hvers og eins og þá er það
dómur fjöldans sem ræður
mestu um framvindu mala h.já
listamanninum.
En að einhver einstakl.ingur
geti komið með verk á markað
og sagt sjálfur: ,.Eg er lista-
maður". er ekki mögulegt. Slík!
er þó gert í ríkum mæli og þess
eru allt of mörg dæmi að sliku
hafi verið trúað.. — samanber
úthlutun listamannalauna. En
nóg um það. Eg tel sjálfan mig
ekki mann til að dæma tón-
listarlegt framlag eins eða
neins og læt það því öðrum
eftir. En ég á hinn eigin smekk
og nýt tónlistar engu sfður en
hver annar. Ef margir hafa
smekk svipaðan mínum, eins og
dæmin sanna reyndar. þá tekst
hvorki þér. 453031. né neinum
GUNNAR ÞORÐARSON tón-
listarmaöur. Enn birtist eitt
bréfið i deilunni um tilverurétt
hans sem tónlistarmanns.
öðrum að troða Gunnar Þórðar-
son niður í svaðið.
Eg nenni ekki að eyða tíma í
að hlusta á annað en það sem
mér líkar og enn síður eyði ég
peningum í plötur manna eða
hljórrisveita sem mér líka ekki.
Utvarpið lækka ég ef slíkir eru
á ferð. En að ég sé þess umkom-
inn að reka menn úr landi fyrir
það eitt að ég kunni ekki að
meta þá. Nei — svo fullorðinn
er ég orðinn að ég veit mín
takmörk. Fyrsta svar mit! við
frumhlaupi þínu, 453031, var til
þess ætlað að koma þér niður á'
jörðina. Mér virðist það hafa
tekizt að hluta að minnsta kosti
og það sætti ég mig við.
Eina óska á ég þér þó til
handa. Láttu ljós þitt skína
þegar þú ert í hjarta þínu þess
fullviss að þú hafir hlotið
þroska til að setja fram skoðan-
ir sem eru marktækar, enda
munu persónuvíg ekki verða
efst á baugi í málflutningi þín-
um þá. — Og þetta með, að ég
hysji upp um mig þínar
brækur, nei. því sleppi ég.
Kveðja,
0840-1241."
Children
Of TheWorld:
Raddir
Gibb-
bræðr-
anna
eru
sérlega
góðar
Það ætti að vera óþarfi að
fara að rekja allan feril hljóm-
sveitarinnar Bee Gees heldur
læt ég mér nægja að stikla á
stóru tvö ár aftur í tímann.
Gibb-bræðurnir Robin, Barry
og Maurice héldu árið 1975 upp
á 20 ára feril sinn í hljóm-
sveitarbransanum. Það var árið
1955 sem þeir hleyptu fyrst af
stokkunum hljómsveit í Astra-
líu og kölluðu þeir hana Gibb
Brothers. I tilefni þessa áfanga
gáfu þeir út hljómplötu sem
bar nafnið Main Coursc. Þetta
var fyrsta plata Bee Gees með
diskóteklögum. Hún hlaut
geysilega góðar viðtökur og lög-
in Jive Talking og Nightes on
Broadway slógu í gegn svo um
munaði. Þá varð lagið Wind Of
Changes einnig vinsælt.
Nýjasta plata Bee Gees og
jafnframt önnur plata þeirra
eftir að hljómsveitin tileinkaði
sér diskó-línuria nefnist
Children Of The World. Platan
var gefin út hjá Robert Stig-
wood Organisation (RSO) á
miðju síðasta ári og hafa tvö lög
á plötunni náð miklum vin-
sældum um allan heim. Þau eru
You Should Be Dancing og
Love So Right.
Children Of The World er
mun betri en Main Course.
Raddir þeirra Gibb-bræðra eru
vel kunnar og njóta sín sérstak-
lega vel á plötunni. — Á henni
eru tíu lög sem öll eru samin og
útsett af þeim bræðrum í sam-
einfngu. Hljóðritun fór fram á
tímabilinu janúar til júní á
síðasta ári í Griteria á Miami og
í Le .Studio í Quebec í Kanada.
Þess má geta að í laginu You
Should Be Dancing aðstoðaði
Stephen Stills lítillega.
Beztu lög Children Of The
World (sem útleggst á íslenzku
Heimsbörn) eru að mínum
dómi You Should Be Dancing.
Love So Right. Lovers. Love Me
og Subway.
Ekki veit ég uin áhuga ís-
lerizkra unglinga á svonefndum
aðdáendaklúbbum. Til gamans
fylgir hér með heimilisfang
Bee Gees-klúbbsins í Dan-
mörku ef einhver hefði áhuga á
að skrifa honum. Heimilisfang-
ið er:
Bee Gees Official Fan Club
Örstedsgade 52. 1.
-DK- 7100 Vejle
Danmark.
Vilhjálmur Astráösson.