Dagblaðið - 15.01.1977, Side 22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 1977.
22
f Bíóauglýsingar eru á bls. 20
Útvarp
Sjónvarp
9
nei ég er löngu orðinn
þrevltur á að halda ekki öll
þau loforö sem ég hef
Kefið." segir Pétur Péturs-
son útvarpsþulur um að
stíf-a á stokk og strenfí.ja heit
um áramót.
Útvarpið íkvöld kl.
21.45: „Kokkteilboð
og bindindi”
Að stíga á
stokk og
strengja heit
,,Ja. létt tal, maður er nú
sjálfur ekki dómbær á slíkt,
þetta eru bara svona hug-
leiðingar. Mér dettur í hug í
þessu sambandi gamall
kunningi, hann Kiddi Stein-
dórs (átti bifreiðastöð
Steindórs). Hann var í smá-
hlutverki hjá Leikfélagi
Reykjavíkur þegar hann
sagði Haraldi Á. og þessum
gömlu köppum að hann væri
búinn að semja leikrit. Hann
var spurður hvað það tæki
langan timaaðsemja. „Svona
10 mínútur jafnveí allt upp í
hálftima 'ef* horft er út um
gluggann og gengið um
gólf." sagði hann. Þetta
sýndi að hann tileinkaði sér
snemma leiksviðstækni."
Pétur Pétursson sagði
þetta er við ræddum við
hann um Kokkteilboð og
bindindi.
Hann bætti við að menn
hefðu gjarnan þau áform
fyrir hver áramót að stíga á
stokk og strengja ýmis heit.
..Nei. nei, góða bezta, ég
gerði það ekki, ég er orðinn
svo þreyttur á því að halda
ekki öll þau loforð sem ég
hef gefið fram að þessu en
ég hef þá von að þjóðinni
gangi þetta betur. Nú segir
stjórnin aó allt gangi svo vel
og Matthías fjármálaráð-
herra segir að við séum
orðin svo hófsöin.Fjárhagur
inn sé betri og Guð rriá vita
livað tneira. Vonandi tekst
(illum að standa við heit-
strengingarnar frá áramót-
unum."
Og sem dæmi um stórhug
i öllum framkvæmdum
nefndi Pétur prest nokkurn
á Suðurlandi sem lét stjórn-
mál til sín taka. Hann átti
sextugsafmæli. Presti fannst
að heldur stæði á kokkteiln-
um hjá konu sinni og varð að
orði: ..Heyrðu kona, af
hverju heldurðu að ég haf
gefið þér þvottavélina?"
Kona hans setti náttúrlega
kokkteilinn þegar i vélina og
fara sögur af þvi að hann
hafi blandazt þar vel og ekki
slaðið frekar á þessum guða-
veigum til gesta.
EVI
Það eru Gordon MacRae og Shirley Jones sem fara með aðalhlutverkin í kvöld.
Hringekjan
Sjónvarpið íkvöld
kl. 21.55:31/2 stjörnu
söngvamynd (Carousel)
Það ættu flestir að muna eftir
The Partridge Family, mynda-
'flokknum sem sýndur var hér fyr-
ir nokkrum árum. 1 mynd
kvöldsins leikur Shirley Jones
annað aðalhlutverkið en hún lék
einmitt í myndaflokknuro. Mót-
leikari hennar er einnig þekktur
leikari, aðallega úr söngvamynd-
um. Þessir leikarar léku einnig
saman í Oklahoma, mynd Rpdgers
og Hammersteins.
Hringekjan er einnig söng-
leikur eftir þessa höfunda. Sagan
gerist um síðustu aldamót og er
um raupsaman sirkusmann og
unga feimna stúlku og hinar
raunalegu afleiðingar þess er
hann ætlar að sjá fyrir barni
þeirra.
Kvikmyndahandbókin gefur
myndinni 3‘4 stjörnu, sem þýðir
að myndin sé góð. Það er
skemmtilega sungið og fallegt
umhverfi.
-EVI
Útvarpið annað kvöld
kl. 21.35:
Sólstafir
Guðmundur Ingi
Kristjánsson sjötugur
Guðmundur Ingi Kristjánsson
skáld á Kirkjubóli, sem ekki er
aðeins skáld, heldur og bóndi,
kennari, þekktur á stjórnmála-
vettvanginum ásamt ýmsu fleiru
varð sjötugur þann 15. jan. síðast-
liðinn.
Útvarpinu þótti því til hlýða að
minnast þessara merku tímamóta
hjá Guðmundi Inga. Það gerir
Gils Guðmundsson alþingismaður
með lestri úr kvæðabókum hans,
en hann hefur gefið út fjórar
ljóðabækur og byrjar nafn þeirra
allra á Sól.
Þá syngur einnig Tónlistar-
félagskórinn Sólstafi eftir Ólaf
Þorgrímsson við ljóð Guðmundar
Inga.
-EVI
Guðmundur Ingi Kristjánsson
skáld hefur látið til sin taka á
hinum ýmsu vettvöngum þjóðlífs-
ins.
Laugardagur
15. janúar
7.00 Morgunútvarp VeOurfroKnir kl. 7.ÍK).
8.15 ok 10.10. Morgunlaikfimi kl. 7.15
oji 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15. (og t'or-
UStU«r. dagbl.). 9.00 oj> 10.00. Morgun
bœn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl.
8.00: Sigrún Sijíurrtardóttir les
..Ævintýri konunKsins" eftir A. van
Se.ven í þýóinKu Gerðar o« Ölafs 8.
Ma«nússonar. Tilk.vnningar kl. 9.30.
Létt Iök milli atrióa. Bamatimi kl.
10.25: Kaupstaöirnir á islandi: Grinda-
vík. Agústa Björnsdóttir sér um tim-
ann. Meðal efnis er staóarlýsinjí
Svavars Arnasonar oj* tónlist eftir Sír-
valda Kaldalóns. íslonzk tónlist kl.
11.15.
lundi Ijóðs or hljóma*4 lagaflokk op. 23
eftir Siguró Þóróarsön vió Ijóó Davíós
Stefánssonar/ Ciisli Magnússon leikur
fimm litil pianóIöR eftir SÍRuró Þóró-
arson/Karlakór Re.vkjavíkur s.vnRur
Iör eftir Kmil Thoroddsen or BjöiRvin
Guómundsson; Páll P. Pálsson stjórn-
ar./SÍRríóur E. Magnúsdóttir syngur
Iör eftir Eyþór Stefánsson. Skúla
Halldórsson or Sveinbjörn Svein-
björnsson: Magnús Blöndal Jóhanns-
son leikur á pianó.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Veóurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 A seyöi. Einar Örn Stefánsson
stjórnar þættinum.
15.00 I tonsmiðjunni. Atli Heimir Sveins-
’son sér um þáttinn (9).
16.00 Fréttir
16.15 Veóurfregnir. íslenzkt mál. Jón
Aóalsteinn Jónsson cand. mag. talar.
16.35 Létt tónlist frá norska útvarpinu.
Útvarpshljómsveitin leikur undir
stjórn öivind Berghs.
17.30 Framhaldsleikrit barna og ungl-
inga; ..Brnöurnir frá Brekku" eftir
Kristian Elster. Reidar Anthonsen
færói i leikbúning. Þýðandi Sigurður
Gunnarsson. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson. — (Aóur útvarpaó i ársbyrj-
un 1965). Persónur og leikendur i
öórum þætti/
Ingi..................Arnar Jónsson
Leifur............Borgar Garðarsson
Pétur ...........Valdimar Helgason
Aórir leikendur: Ævar R. Kvaran.
Guómundur Pálsson. Karl Sigurósson.
Emelía Jónasdóttir. Valdimar Lárus-
son gr Benedikt Arnason.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veóurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Sjómennska viö Djúp. Guðjón Frió-
riksson ræóir vió Halldór Hermanns-
son skipstjóra á ísafirói.
20.00 Göngulög aö fomu og nýju. Þýzkir
tónlistarmenn flvtja. Guðmundur
Gilsson kynnir.
20.30 „Hrensnaguðinn'Y smásaga eftir
Évgení Évtusjenkó. Guórún Guólaugs-
dóttir les þýóingu sína.
21.10 Tónlist eftir Heitor Villa-Lobos.
Nelson Freire leikur á pianó.
21.45 Kokkteilboð og bindindi. Pétur
Pétursson flytur hugleiðingu.
22.00 Fréttir.
22.15 Veóurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
fHID
Laugardagur
15. janúar
17.00 iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.35 Emil í Kattholti. Sænskur mynda-
flokkur byggóur á sögum eftir Astrid
Lindgren. Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
19.00 iþróttir.
Hló.
20.00 Fróttir og veöur.
20.25 Auglýsingar oa daaskrá.
20.35 Fleksnes. Norskur gamanmynda-
flokkur. geróur í samvlnnu við sænska
sjónvarpió. Peningana og lífið. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson. (Nordvision —
Norska sjónvarpiö).
21.0Ó Hjónaspil. Spurningaleikur. Þátt-
takendur eru félagar 1 Dyravarða-
félagi Islands og eiginkonur þeirra.
Milli spurninga skemmta Þrjú á palli.
Þuríöur Sigurðardóttir og Ragnar
Bjarnason. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
21.55 Hringekjan. (Carousel). Bandarísk
dans- og söngvamynd frá árinu 1956.
Höfundar Richard Rodgers og Oscar
Hammerstein yngri. Aðalhlutverk
Gordon McRae og Shirley Jones.
Sagan gerist um sióustu aldamót.
Ungur maóur deyr á voveiflegan hátt.
Hann fer til himna. þar sem hann
segir ævisögu sina. Þýóandi Ragna
Ragnars.
00.00 Dagskrárlok.
Sjónvarpið íkvöld kl. 18.35:
Myndaflokkur fyrir börn
Emil í Kattholti
Hinn vinsæli barnaþáttur
,,Emil frá Kattholti" er á dasskrá
í dag. Hann er byggður á sögum
eftir Astrid Lindgren. Flestir
lcanna.st við Línu langsokk eftir
hana.
Upp á ýmsu er fundið hjá Emil
en allt er þetta græskulaust
garnan og endar vel.
Sögumaður er Ragnheiður
Steindórsdóttir, þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. -EVÍ
Sjónvarpið f kvöld kl. 20.35: Fleksnes
PENINGANA 0G LÍFIÐ
Vinur okkar Fleksnes hafði
lengi verið í fríi frá skjánum á
okkar kalda Fróni þangað til á
laugardaginn og eins og hans er
von og vísa skemmti hann
•áhorfendum prýðilega.
Þessi norski leikari var vel í
holdum þegar við sáum hann á
árunum en hefur bætt við sig
enn fleiri kílóum, svo að hann
verður enn kátbroslegri.
Ekki veitir af að létta dag-
skrá sjónvarpsins svo að við
skulum vona að Fleksnes haldi
áfram að sjást sem lengst.
Annars voru ensku þættirnir
Maður til taks prýðileg dægra-
stytting líka.
Þátturinn í kvöld heitir
Peningana og lífið. Þýðandi er
Jón Thor Haraldsson.
-EVI
Það er hann Fleksnes. hinn
gamalkunni norski gamanleik-
ari. sem skemmtir okkur i
kvöld.