Dagblaðið - 15.01.1977, Qupperneq 24
r
Rafmagnsreikningurinn
hækkaði um nærri tíu
milljónir
mælirinn snerist of hægt á annað ár
Endurskoðun á raforkumæl-
ingu í einu flugskýlanna á
Reykjavíkurflugvelli um miðj-
an október síðastliðinn leiddi
til leiðréttingar á rafmagns-
reikningi sem nam sem næst
9,8 milljónum króna til hækk-
unar fyrir nærri tveggja ára
rafmagnshitun í skýlinu.
í ársbyrjun 1975 var tekinn
i notkun nýr rafmagnsmælir I
Skýli IV á Reykjavíkurflug-
velli. Eftir honum var síðan
farið við útskrift reikninga allt
þar til í október sl. Við skoðun
kom þá i ljós að í stað þess að
margfaldá með 160 eins og hinn
nýi staðall gerði ráð fyrir,
margfaldaði hann með 10, eins
og sá sem áður hafði gilt. Voru
þannig gerðir allt of lágir
reikningar fyrir rafmagnsnotk-
unina í skýlinu.
Ljóst var hver skekkjan var
og í hverju hún lá. Var því
auðvelt að færa reikninginn í
rétt horf en naumast báðum til
jafn mikillar ánægju, seljanda
og kaupanda orkunnar, enda
hækkunin eins og fyrr segir
nærri 10 milljónir króna.
BS.
venjan er
15% en nú á
adtaka40%
lýsingum fulltrúa hjá Inn-
kaupastofnun ríkisins eru ekki
fordæmi fyrir þess háttar.
Því má bæta hér við að gár-
ungarnir segja að það hafi riðið
baggamuninn að blikkljósaút-
búnaður bílsins hafi legið i far-
þegasætinu, þegar bíllinn var
tollmetinn, en ekki verið skrúf-
aður á þakið.
-G.S.
Ríkið sjálfu sér verst:
Vill ríflega tvöfaldar
tolltekjur af nýja flug-
vallarslökkvibflnum
Eins og blaðið skýrði frá
fyrir skömmu er nýr slökkvibíll
kominn til landsins fyrir
slökkviliðið á Reykjavíkurflug-
velli og er hann enn í höndum
umboðsaðila þar sem verið er
að ryðverja hann og ganga frá á
annan hátt.
Skv. upplýsingum Guð-
mundar Guðmundssonar
slökkviliðsstjóra á Reykjavík-
urflugvelli flokka tollyfirvöld
bílinn í vörubílaflokk og ber að
greiða af honum 40% toll skv.
því en venjulegir tollar af
slökkvibílum eru hins vegar
ekki nema 15%. Því má bæta
hér við að flugvallarslökkvi-
liðið er rikisrekið.
Að sögn Guðmundar kemur
þessi óvænti mismunur að sjálf-
sögðu eitthvað niður á frekari
tækjakaupum til liðsins sem
fyrirhuguð eru. Samkvæmt
skilgreiningu tollyfirvalda er
bíllinn lítill vörubíll þar sem sá
búnaður, sem kom með honum,
Myndina tók Sv. Þorm. í fyrra-
dag í Fordumboðinu, Sveini
Egilssyni, er verið var að ryð-
verja bílinn og ganga frá hon-
um.
og búnaður sem bæta á við bíl- við að reynt yröi að fá bílinn
inn hér er ekki enn orðinn fast- endurtollmetinn eftir að hann
ur við hann. Bjóst Guðmundur er fullbúinn en samkvæmt upp-
iijálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 15. JAN. 1977
MAGNUS BJARNFREÐSSON —
hér í því hlutverki sem flestir
landsmenn kannast við hann í,
fyrir framan sjónvarpsmyndavél-
ina.
Magnús
Bjarn-
freðsson
í Sölu-
nefndina?
Magnús Bjarnfreðsson, fyrrver-
andi fréttamaður, er nú af mörg-
um talinn líklegastur þeirra sem
til greina koma í stöðu forstjóra
Sölunefndar varnarliðseigna.
Leyndin sem hvílir yfir nöfnum
nokkurra tuga umsækjenda um
þessa stöðu hefur öðru fremur
orðið til þess að vekja umtal og
getgátur um það hver hljóta
muni. Ekki er talinn mikill vafi á
því að stöðuveitingin verði
pólitísk. Varnarmáladeildin er í
utanríkisráðuneytinu og er utan-
ríkisráðherra þannig yfirmaður
hennar.
Magnús Bjarnfreðsson er þjóð-
kunnur maður vegna starfa sinna
við blöð og rikisfjölmiðlana. Hann
er nú bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins 1 Kópavogi. Uppfyllir
hann tvímælalaust ýmis þau skil-
yrði, bæði almenn og pólitisk, sem
leysa þann vanda sem utanrfkis-
ráðherra, Einari Agústssyni, er á
höndum að velja mann Ur stórum
hópi hæfra umsækjenda.
BS
Átta mánaða biðtíma á launum lokið:
Yfirtollverðimir
tveir hættir hjá
tollgæzlunni
— annar skv. eigin ósk — hinum veitt lausn á grundvelli rannsóknar á
meintu tolllagabroti
öðrum yfirtollvarðanna,
sem leystur var frá störfum í
lok maí sl. á meðan rannsakað
var hvort hann hefði framið
tolllagabrot, var veitt lausn frá
störfum að eigin ósk í fyrradag.
Þá var hinn yfirtollvörðurinn
leystur frá störfum í gærmorg-
un.
Þorsteinn Getrsson fulltrúi i
fjármálaráðuneytinu sagði í
viðtali við blaðiö i gær rð þetta
hefði verið gert á grundvelli
niðurstaðna framhaldsrann-
sóknar á meintu tolllagabroti
hans en hið meinta brot er
smygl á áfengi.
Til glöggvunar skal það tekið
fram að ntál þessara tveggja
tollvarða standa ekki í sam-
bandi við hið svonefnda „flösku
í vasann" mál.
Tollverðirnir hafa verið á
fullum launum í þá átta mánuði
sem rannsókn og ákvörðun um
lausn þeirra eða áframhaldandi
starf tók.
Að sögn Þorsteins falla þeir
af launaskrá við næstu mánaða-
mót. Málið er nú í höndum
ríkissaksóknara en eftir frum-
rannsókn fór hann fram á fram-
haldsrannsókn sem einnig er
lokið.
-G.S.
Skjálftum f jölgar en...
Áfram verður
haldið við
Kröfluvirkjun
Sérstakri vörzlu hefur verið
komið á fót á stað ofan við Kröflu-
virkjunarsvæðið, þaðan sem sér
til Leirhnúks, til að stytta við-
bragðstíma ef til eldsumbrota
kemur en skjálftum á svæðinu
hefur fjölgað undanfarna daga og
telja sumir jarðvísindamenn að
ástandið á svæðinu sé viðsjárvert
einmitt nú.
Á fundi samstarfsnefndar um
Kröfluvirkjun, sem haldinn var á
virkjunarsvæðinu i gær, var sú
ákvörðun tekin að breyta ekki
framkvæmdaáætlun eftir að tillit
hafði verið tekið til aukinna
varúðarráðstafana og að loknu
raati á aðstæðum.
Öhagstætt veðurfar á virkj-
unarsvæðinu undanfarið hefur
tafið eitthvað fyrir og er nú
reiknað með að vinnsla geti hafizt
í marz-apríl ef veður tefur ekki
frekar fyrir.
Landris virðist hafa stöðvazt
•þrjá síðustu daga, samhliða að
smáskjálftum hefur fjölgað.
-G.S.