Dagblaðið - 06.04.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977.
3
2V
SKÍÐAMÓT ALLS EKKIGRÓDAVÆNLEG
— misskilningur ígrein um skíðamót íBláfjöllum
31-3’77
Vegna greinar „Keppanda" í
Dagblaðinu mánudaginn 28.
marz sl. óska undirritaðir að
eftirgreint komi fram.
1 fyrsta lagi er þess að geta að
Reykjavíkurmót í svigi eldri en
12 ára hefur ekki ennþá farið
fram. En við þykjumst sjá að
„Keppandi" eigi við svigmót ÍR
sem fór fram um helgina 12. og
13. marz.
Því miður eru flestar
staðreyndir og allar tölur rang-
færðar svo stórlega í grein
„Keppanda“ að erfitt er um vik
að svara henni beint, en helztu
staðreyndir eru þessar.
I grein „Keppanda“ er sagt
að keppendur í mótinu hafi
verið liðlega 200, en hið rétta er
að þeir voru 130, þ.e. 50 12 ára
og yngri, sem greiddu kr. 300,- í
keppnisgjald hver, en þeir eldri
sem voru 80, greiddu kr. 500.-
hver, en gjald þetta er ákvarðað
af Skíðaráði Reykjavíkur. Það
mun samdóma álit þeirra sem
þekkja til kostnaðar við að
halda skíðamót að tekjur af
þeim hrökkva tæpast fyrir
beinum kostnaði og reyndist
svo einnig um þetta mót.
Mótið hófst báða dagana
stundvislega kl. 13 eins og
auglýst hafði verið og gekk i
alla staði samkvæmt áætlun.
Á laugardaginn voru
keppendur 50 og fóru þeir
báðar ferðir í sömu braut, enda
voru skilyrði mjög góð
og brautin í góðu lagi alla
keppnina, sem sest bezt á því að
aðeins 4 luku ekki keppni. Á
sunnudaginn voru keppendur
80 og keppt í tveimur brautum.
I fyrri brautinni kepptu 36 og í
hinni seinni 44. Aðstæður allar
voru verri en hinn fyrri daginn,
brotafæri sem grófst nokkuð.
Mat brautarstjóra var þó það að
brautirnar skánuðu heldur
þegar á leið keppnina, og var
þvf ákveðið að leggja ekki nýjar
brautir milli ferða.
Varðandi brautarverðina
upplýsist að sá yngsti var 13 ára
og teljum við að hann hafi verið
fullfær í starfið og hafi meira
vit á brautum og brautar-
lagnginu en „Keppandinn" sem
greinina reit, megi dæma hann
af skrifum sínum.
Mótstjórar svigmóts I.R.
Sigurður Einarsson,
Þorbergur Eysteinsson.
Sjónvarpsdagskráin
léleg undanfarið ““
Bergljót Aðalsteinsdóttir,
Eyjabakka 7 skrifar:
Mig langar til að koma því á
framfæri hvað mér finnst
sjónvarpið hafa verið lélegt,
undanfarna mánuði.
Það mætti halda að einungis
væru framleiddar sjónvarps-
myndir í Bretlandi og Banda-
ríkjunum. Eru ekki þrír eða
fjórir brezkir myndaflokkar í
gangi um þessar mundir,
enginn þeirra þess virði að
horfa á.
Það er skrýtið að fá ekki að
sjá myndir frá öðrum löndum.
Ég minnist þess að hafa séð
myndir frá öðrum löndum hér
áður fyrr, m.a. austantjalds-
löndum og voru þær mjög
fróðlegar margar hverjar og
frábrugðnar.
Þá vil ég einnig gagnrýna
fréttii' sjónvarpsins en þar þykir
mér gæta hlutdrægni. Pað er
sem einstaka lönd séu lekin
fyrir og á þeim staglazt æ ofan
í æ, en látið sem önnur séu ekki
til. Lönd eins og Brazilía og
Argentína eru alveg skilin út-
undan likt og þar sé ekkert að
gerast. Manni finnst stundum
sem annarleg öfl liggi þarna að
baki, en vonandi er svo ekki.
Að endingu: Margir hafa
saknað íslenzkra leikrita í sjón-
varpinu. Hvers vegna eru ekki
Atriði úr leikriti Haildórs Laxness, Veiðitúr í óbyggðum.
fleiri slík frumsýnd lengur. Það a.m.k. eiti nýtt leikrit væri sýnt
var til skamms tima venja að á hverjum vetri. Fór kannski of
mikiö fé í Lénharð eða hver er
ástæðan?
Morð og skothríð með
f jölskyldumyndinni!
BEG hringdi:
Ég var að koma frá því að
horfa á Bensa í Hafnarbíói, og
er myndin sannarlega fyrir alla
fjölskylduna. En mér finnst
ófært hjá kvikmyndahúsinu að
sýna sýnishorn úr næstu mynd
með myndinni um hundinn
Benda, því þar er alltof mikið
um morð og skothríð sem ekki
eru við hæfi barna sem koma að
sjá Bensa.
Hríngið
ísíma
83322
kl. 13-15
eða skrifið
Spurning
dagsins
Hverju spáirðu um
úrsiitin í áskor-
endaeinvíginu?
Sigtryggur Sigtryggsson blaða-
maður á Morgunblaðinu: Það
verður að telja að Hort hafi meiri
möguleika þegar tillit er tekið til
vt-ikinda Spasskys.
Gunnar Steinn Pálsson blaða-
maður á Þjóðviljanum: Eg vil
engu spá um úrslitin. Annars
finnst mér Hort vera maður á
uppleið.
Haukur Már Haraldsson blaða-
maður á Alþýðubiaðinu: Eg hefi
gamla tröllatrú á Spassky og spái
honum því sigri. Þetta er alls ekki
fræðileg skoðun eða rökstudd en
ég • hefi ekki misst trúna á
Spasský.
Gunnar Salvarsson biaðamaður á
rimanum: Eg spái því að Hort
vinni. Þeir eru auðvitað mjög
jafnir, eins og dæmin sanna. Ég
hefi samt trú á því að Hort hafi
það, — sérstaklega ef einvígið
dregst eitthvað á langinn.
Gunnar Andrésson ljósmyndari á
Timanum: Eg held með Spassky
og óska þess að hann vinni. Hann
hefur átt við bæði Hort að striða
og svo veikindin. Hann á samúð
mína.
Björn Bjarman ril- og skákdálka-
höfundiir: Vinningi hjá Hort