Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977. Af skurðarborðinu að skákborðinu aftur Hort drd hvftt - næsta skák f Hamrahlíðarskdl- anumá laugardaginn kemur „Spassky dró síöast frá Hort. Ég ætla því að biðja Hort að draga frá Spassky,“ sagði Guð- mundur Arnlaugsson, yfirdóm- ari í áskorendaeinvíginu, þegar dregið var um lit i næstu skák- inni. Hann fékk Spassky síðan svart peð og hvítt. Spassky bað Hort að halda fyrir augun á meðan hann kom peðunum fyr- ir í krepptum hnefum. Hort sló létt á hægri hnefann. Spassky henti peðinu eins og bolta upp í loftið og greip það síðan. Peðið var hvítt. Hort hefur því hvítt í fyrri skákinni sem tefld verður í Hamrahlíðarskólanum næst- komandi laugardag. Hefst hún kl. 16.30. Verði hún biðskák, verður hún tefld áfram á sama tíma á páskadag. Síðari skákin verður tefld kl. 16.30 á annan í páskum í Hamrahlíðarskólan- um. Fyrirhugað var að framhald keppninnar hæfist á skírdag, þ.e. fimmtud. Að læknisráði bað Hort um að fyrri skákinni yrði frestað til laugardags. Eng- inn efast um að Hort sýnir þarna andstæðingi sínum drengskaparbragð, enda þótt biðin vegna veikinda Spasskys kunni að hafa valdið honum nokkrum óþægindum. Nú hefur Spassky beðið um og fengið frestun þrisvar sinn- um í þessu einvígi og Hort tví- vegis. Samkvæmt reglum P'IDE á hvor keppandi rétt á þrem frestum á skákum í einvíginu. „F’ræðilega séð getur einvíg- ið staðið lengi enn,“ sögðu þeir Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands Islands, og Högni Torfason, varaforseti. „Með tilliti *til þess sem og fjölda annarra atriða, er augljóst að brýn þörf er á því að endurskoða reglurnar um ein- vígi sem þetta,“ sögðu þeir. „Það hefur aldrei komið fyrir áður að einvígi hafi ekki lokið í 12 skákum,“ sagði Guð- mundur Arnlaugsson, yfirdóm- ari. „Það hefur heldur aldrei komið fyrir, að keppandi hafi farið frá skákborðinu á skurð- Spassky og Hort brosa hlýlega um leið og sá síðarnefndi dregur um lit á Hótel Loftleiðum í gær. arborðið,“ sagði Guðmundur. Það er því að vonum að ekki skyldi gert ráð fyrir því fram- haldi, sem raunar er alls ekki séð fyrir endann á. Meðal ann- ars þess vegna verður nú að flytja keppnina í Hamrahlíðar- skólann. Þar er nú unnið að því að koma fyrir sjónvarpsbúnaði til sýningar á skákinni innan- húss. Aðstaða er þar mjög góð. Meðal annars eru þar sæti í keppendasal fyrir 400 manns. Auk þess eru önnur salarkynni til skákskýringa. Það eru páskafríin i skóianum sem leystu húsnæðisvandamálið í næstu tveimur skákunum að minnsta kosti. Heilmiðar á einvigið gilda áfram. Vegna aukins og ófyrir- sjáanlegs kostnaðar af því, hversu einvígið dregst á langinn hækka aðgöngumiðar í 1 þús- und krónur að hverri skák. „Það verður þá sama verð eins og á Morðsögu,“ sagði Einar S. Einarsson. Næsta skák í áskorendaein- víginu hefst því kl. 16.30 næst- komandi laugardag, sem fyrr segir. Þeir Hort og dr. Alster kváð- ust ævinlega mundu minnast dvalar sinnar á Hótel Loftleið- um með þakklæti í huga. Róma DB-mynd Hörður Viihjálmsson. þeir mjög allan viðurgjörning og þjónustu, húsakynni, mat og alla framkomu stjórnar og starfsfólks hótelsins. Kváðust þeir í ræðu og riti koma því á framfæri að Hótel Loftleiðir væri frábær og kjörinn staður til skákmóta og ráðstefnuhalds. Þar kæmust fáir staðir i sam- jöfnuð og naumast tæki því nokkur staður fram. BS. Flestar akleiðir um Suðurland vel f ærar Greiðf ært er norður fland en á NA-landi eru vegir viða óf ærir Búast má við mikilli umferð bíla um Suðurland á frídögum páskahelgarinnar. Vegir hér syðra eru flestir vel færir og greiðfærir. Þó eru leiðir sem ástæða er til að vara fólk við að aka, að sögn Arnkels Einarssonar hjá vegaeftirliti Vegagerðarinn- Það verður mikið um að vera hjá F’erðafélagi íslands um pásk- ana og fólki stendur til boða tvær fimm daga ferðir, auk dagsferða alla frídaga um páska. F’imm daga ferð verður í Þórsmörk, þaðan sem gengið verður á fjöll og merkir staðir skoðaðir. í gær voru skráðir i þá ferð 80-100 manns. Hin fimm daga ferðin er í Öræfa- sveit og allt til Hornafjarðar. Verður gist á Klaustri og að Hroll- augsstöðum. Nóg rými er enn í pessa för. Á skírdag efnir F'erðafélagið til gönguferðar á Vífilfell. Þann dag verður og farið í ökuferð að Þjórs- á sem er stórkostleg um þessar mundir á svæðinu við Urrióafoss vegna klakabanda. Á fiistudaginn langa verður gengið um Svinaskarð. Hefst gönguferöin við Tröllafoss og veröur gengið um Móskarðs- hnjúka og í Kjósina. Sama dag er ar. Er það fyrst og fremst vegur- ínn um Gjábakkahraun til Laug- arvatns sem er ófær og einsleiðin um Uxahryggi. Fólksbílum er einnig varla fært um Grafnings- veg frá Heiðarbæ að Ulfljóts- Vatni. Sú leið er að minnsta kosti mjög torfarin. efnt til ferðar í Kjós, gengið verð- ur á Meðalfell og einnig farin fjöruganga um Hvalfjarðareyri. Á laugardag verður gönguferð á Grimmansfell ofan við Gljúfra- stein. Á sunnudaginn verður farið um Vatnsleysuströnd, gengnar þar fjörur og farið á Keilisnes og upp í Staðarborg sem er serkenni- legur staður og merkur. Á mánudaginn efnir F'erðafé- lagið til göngu á Þríhnjúka og hefst gangan frá bilum sem aka i skíðalandið í Bláfjöllum. Klukkan eitt á mánudaginn verður farið i Dauðadalahella, gengið um Kaldársel og á Vala- hnjúk. Allar ferðir F’í hefjast við Um- ferðarmiðstöðina og er ýmist um morgunferðir að ræða, sem hefj- ast kl. 10.30, eða slðdegisíerðir, sem hefjst kl. eilt. -ASt. Gamla leiðin að Gullfossi vest- an brúarinnar við Brúarhlöð er lokuð en greiðfært vel er er um nýju leiðina hjá Gýgjarhóli og skotfæri má kallast frá Gullfossi niður um Grímsnes. I gær var verið að hreinsa snjó úr Bröttubrekku og einnig veginn um Svínadal. Þarna hafði verið ófært og sömuleiðis fyrir Gils- fjörð. Þessar leiðir átti að opna í gær og er þá akfært í Reykhóla- sveit og sennilega i Kollafjörð. Frá Patreksfirði var vel fært um Barðaströndina og eins til Tálknafjarðar en aðeins stórir bíl- ar komust um Hálfdán til Bíldu- dals. Dynjandisheiði og Hrafnseyrar- heiði voru ófærar en fært var frá Þingeyri til tsafjarðar. Þungfært Áttatíu til hundrað manns taka þátt í fimm daga ferð Utivistar um Snæfellsnes um páskahelgina. Verður lagt af stað á skírdags- morgun en komið til baka á mánu- dag. Allar næturnar verður gist að Lýsuhóli en síðan gengið á jökla og ýmis fjöll og vítt og breitt um allt Snæfellsnes. Utivist efnir einnig til göngu- ferða alla hátíðardagana. Verða það stuttar ferðir sem hefjast var á Botnsheiði til Súganda- fjarðar. Frá ísafirði var vel fært inn um Djúp og í gær var veriö að ryðja veginn allt til Bjarnarfjarðar á Ströndum. Greiðfært er norður í land og fært til Siglufjarðar og verið var að hreinsa snjó af vegi á Öxna- dalsheiði. Fyrir Ölafsfjarðarmúla var hins vegar ófært. Var þar skafrenningur þó brotizt hafi ver- ið þar um á jeppa í gær. F’rá Akureyri er greiðfært um Dalsmynni til Húsavíkur og vel var fært um Mývatnsveg í Mý- vatnssveit. Austan Húsavikur fór veður versnandi. Mokað var á mánudag í Kelduhverfi og um Melrakka- sléttu en það reyndist að mestu klukkan eitt alla dagana og er komið aftur í bæinn og ferðunum lokið.milli klukkan 5 og 6. I allar þessar ferðir er lagt upp frá Um- ferðarmiðstöðinni og er bækistöð Utivistar vestan við húsið, hjá bensínsölunni. A skírdag er farið í góngulerð' um fjörur í Skerjafirði og á föstu- daginn langa er farið út í Gróttu og um fjörur á Seltjarnarnesi. Á laugardaginn verða gengnar unnið fyrir gýg og var þar orðið mjög þungfært í gær. Sama er að segja um vegi í Þistilfirði og I Vopnafirði. Ófært er um Möðrudalsöræfi en fært er frá Egilsstöðum allt að Skjöldólfsstöðum í Jökuldal. Leið- in um Vatnsskarð og Fjarðar- heiði eru ófærar. Akfært var í Fljótsdal en þungfært á Skriðdal. Stórir bílar komust í gær um Oddsskarð en þar fyrir sunnan eru allar leiðir greiðfærar um allt Suðurland. Aurbleytu gætir hvergi á veg- um ennþá, að sögn vegaeftirlits- manna. Var hennar aðeins tekið að gæta á stöku stað fyrir kulda- kastið en allir vegir eru nú aftur samfrosta. -ASt. kræklingafjörur i Hvalfirði og einnig farið í steinaleit. Friðrik Sigurbjörnsson verður leiðsögu- maður í þeirri ferð. Þeir sem ekki vilja ganga fjörur eiga kost á gönguferð á Esju. Á páskadag verður gengið með Viðeyjarsundi. Á annan páskadag verður gengið á Búrfell og um Búrfellsgjá. Verður Jón Jónsson jaröfræðingur leiðsögumaður í þeirri ferð. -ASt. Ótal ferðir á boðstólum hjá Ferðafélagi íslands Um 100 manns með Útivist um Snæfellsnes Gönguferðir verða alla hátíðisdagana um nágrenni Reykjavíkur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.