Dagblaðið - 06.04.1977, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1977.
11
SADAT/CARTER:
HERNAÐARAÐSTOÐ
ER TIL ATHUGUNAR
Sadat Egyptalandsforseti,
sem nú á viðræður við Carter,
forseta Bandaríkjanna, hefur
K
Sadat, forseti Egyptalands,
þykir hafa komið ár sinni vel
fyrir borð i viðræðunum við
Carter.
farið fram á hernaðaraðstoð frá
Bandaríkjamönnum og segja
ráðamenn í Washington að
beiðni hans verði tekin til
athugunar.
Egypzki forsetinn flýgur
heimleiðis í dag eftir að hafa
unnið málstað Araba greiflileg-
an skilning og náð persónulegu
sambandi við Carter.
Á blaðamannafundi í gær,
sagði Sadat fréttamönnum að
hann hefði átt vinsamlegar
viðræður við Bandaríkjaforseta
og lagt fram lista yfir það sem
hann vildi kaupa af vopnum en
þar á meðal eru herþotur.
Viðræður forsetanna eru al-
mennt taldar marka tímamót í
umræðum um deilurnar fyrir
botni Miðjarðarhafs, enda er
það skoðun beggja á málinu að
forsendan fyrir því að einhver
lausn fáist, að sé sú að sérstakt
ríki Palestínumanna verði sett
á laggirnar.
LIBANON:
VINSTRIMENN
SÆKJAÁKAFTÁ
Vinstri sinnar og Palestínu-
menn hafa sagt að þeir hafi
hrundið árás hægri manna í
einhverjum mestu bardögum
sem orðið hafa í Líbanon síðan
friður komst á eftir að her-
sveitir Sýrlendinga tóku að sér
friðargæzlu i nóvember sl.
I bardaganum í gær, sem
meðal annars var háður með
stórskotaliði, var skotið yfir
landamærin til tsraels í suður-
hluta Líbanons og segja
Palestínumenn að ísraelsmenn
hafi svarað með því að styðja
skothríð hægri manna.
Markmið árásar hægri
manna var að vinna á ný stöðv-
ar sínar á fjallinu Taybeh, sem
þeir unnu sl. föstudag, en voru
síðan hraktir þaðan í návígis-
bardögum við hermenn
Palestínumanna ög vinstri
sinna.
H
Um tíma þótti friðvænlega
horfa í Líbanon, eins og sjá má
á þessari mynd, er sýnir friðar-
gæzlumenn við störf sín við
landamæri Líbanons og ísrael.
Nú er hins vegar allt komið I
bál og brand og búast menn
við hinu versta.
F-16 þotan er gölluð
Verulegir gallar, sem gætu
haft alvarlegar afleiðingar,
hafa komið í ljós í F-16 herþot-
unum bandarísku, samkvæmt
heimildum frá Washington.
Sérstök þingnefnd sem fylgzt.
hefur með smíði þotunnar
hefur hvatt varnarmálaráð-
herrann, Harold Brown, til þess
að láta endurskoða hluta af þot-
unni og bendir honum á aó láta
ekki bandamenn Bandaríkja-
manna í Evrópu ýta á eftir sér
með smíði þotunnar.
Hefur prófunum með hana
verði flýtt að undanförnu en
síðan átti hún að fara í fjölda-
framleiðslu.
Danmörk, Holland, Belgía og(
Noregur ætla að kaupa fjölda
af þessum flugvélum og hefur
vopnasala sú verið nefnd
vopnasala aldarinnar.
Italía:
Synisósíal-
istaleiðtoga
ræntínótt
Lögreglan i Napolí kom
fyrir vegartálmunum um aila
borgina í gær og heldur uppi
víðtækri leit að syni fyrrum
leiðtoga sósíalista á Italíu,
Francesco de Martino, sem
rænt var í gær.
Guido de Martino, sem er 34
ára kennari, var rænt skammt
frá heimili föður síns rétt fyrir
miðnætti í nótt og er mann-
ránið talið vera af stjórnmála-
legum orsökum.
DANMÖRK:
Prentara-
verkfallið
breiðist út
Deila prernara við blaðaútgef-
endur hjá Berlinske Tidende
hefur enn harðnað. Nú hafa
flestir prentarar í Danmörku
farið í samúðarverkfall og er svo
komið að flest dagblöð og viku-
blöð koma ekki lengur út í land-
inu.
Deilurnar hjá Berlingi hafa
staðið í tæpa tvo mánuði en þær
hófust erútgefendurþartilkynntu
breytingar á prentunartækni sem
hafa myndu í för með sér upp-
sagnir fjölda prentara við blaðið.
Töldu prentarar að þeir fengju
ekki nægan aðlögunartíma að
þessum breytingum og fór deilan
í hart.
Eins og kunnugt er, er mikiö
atvinnuleysi í Danmörku og segja
prentarar að þeir verði einfald-'
lega settir á guð og gaddinn of
þeim verður sagt upp
h . nurvrvui
9 000.000 —
4 500 000 —
1 800 000 —
13.500 000 —
25 200 000 —
83 160 000 —
1 000.000
500 000
200 000
100 000
50 000
10 000
135
504
8 316
137 160 000
900 000
8 982
18 —
50 000
9 000
An endurnýjunar áttu ekki
möguleika á vinningi.
Við drögum næst
þann 13. apríl.
Gleymdu ekki að endurnýja!
138 060 000 —
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLAIMDS
Tvö þúsund milljónir í boói