Dagblaðið - 06.04.1977, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977.
Nóg að gera hjá Lúdó, vinsælustu hljómsveit landsins
ERU 4 LEIÐ ÚT 4 LANDSBYGGÐINA
OG LANGT KOMNIR MEÐ NÝJA PLÖTU
Þaó er áreióanlega ekki
fjarri sannleikanum að full-
yrða, að hljómsveitin Lúdó sé
ein sú alvinsælasta hér á landi
þessa dagana. Því til staðfest-
ingar má nefna að hún leikur
fyrir fullu húsi á Hótel Sögu
tvisvar til fjórum sinnum i viku
og til enn frekari sönnunar má
geta þess að hljómplatan sem
kom út i fyrrasumar hafði um
áramótin selzt í um 7.000 ein-
tökum og hefur áreiðanlega
gengið vel út eftir áramótin.
Nú hyggst Lúdó taka sér frí á
Sögu og halda út á landsbyggð-
ina. Fyrsti dansleikurinn
verður á annan í páskum í
Hótel Hveragerði og síðan
verður leikið á fullu um allt
land í maí og júní. Meðlimir
Lúdó hafa allir spilamennsk-
una að aukastarfi og ætla því að
hvíla lúin bein í júlímánuði en
halda síðan áfram að ferðast
um landið í ágúst og fram í
september er þeir taka upp
þraðinn að nýju i Átthagasal
Hótel Sögu. — A annan i
páskum kemur einnig nýr
maður fram með Lúdó. Sá
heitir Þorleifur Gíslason saxó-
fónleikari, og lék með hljóm-
sveitinni fyrir allmörgum ár-
um.
Dagblaðið ræddi við einn
hljómSveitarmeðlimanna á
mánudaginn, — Elfar Berg
píanóleikara. Hann kvað Lúdó
hafa leikið á Sögu í fjögur ár.
,,Við kunnum vel við okkur
þar," sagði hann. „Átthaga-
salurinn hefur einn bezta
hljómburð sem ég hef kynnzt
hér á landi og fólkið sem við
leikurn fyrir er á öllum aldri og
með afbrigðum hresst. Aðal-
ástæðan fyrir því að við kjósum
að halda kyrru fyrir á sama stað
er samt sú að við erum nú allir
farnir að eldast og orðnir
þreyttir á löngum ferðalögum á
milíi samkomuhúsa."
Ný plata á leiðinni
Þá var Elfar inntur eftir því
hvað væri hæft í þeim orðrómi
að Lúdó hygðist taka upp nýja
plötu. Elfar kvað það meira en
orðróm. „Við höfum verið að
taka upp að undanförnu og er-
um nokkuö langt komnir,“
sagði hann. Hann bætti þvi við,
að nýja platan yrði í svipuðum
anda og sú fyrri, það er með
lögum frá gullaldartímabili
rokksins og rólsins. Sem dæmi
um lög á nýju plötunni nefndi
hann Rock Around The Clock
og The Birds And The Bees. —
Það er Svavar Gests sem
nýju Lúdóplötuna út, eins og þí
fyrri.
Sem sagt, — það er nóg að
gerast hjá vinsælustu hljóm-
sveit landsins scm átti
dæmis vinsælasta lag vikunnar í
Óskalögum siúklinga á síðasta
laugardag. Það geta víst flesti:
farið nærri um hvaða iag
var.
LÚDÓ: Frá vinstri eru Ham
Kragh Ólsen, Elfar Berg Óisen
Berti Möller Ólsen og Stefái
Ólsen Jónsson. Nýr meðlimur
Þorieifur Gislason, bætist við :
annan í páskum.
Fyrsta hljómplata ársins:
RANDVER FER A KOSTUM í
DREIFBÝUSTÓNLISTINNI
villur í Bjössa á mjólkurkarinu.
Textar Ellerts B. Þorvalds-
sonar eru léttir og skemmtileg-
ir og falla vel að lögunum.
Hann beitir stuðlum og höfuð-
stöfum við yrkinguna en verður
á nokkrum stöðum fótaskortur
í bragiþróttinni. Aftur á móti
hafa textar hans það sér til
ágætis að þeir eru lausir við allt
það endemis bull og neyðarrím
sem allt of oft einkennir ís-
lenzka dægurlagatexta.
Sumsé, — Randver er í örri
framför og hefur sent frá sér
skrambi góða plötu sem krefst
ekki annars af áheyrendum en
að þeir hafi gaman af dreif-
býlistónlist.
-ÁT-
Það er hljómplötuútgáfan
Steinar sem er fyrst til að senda
frá sér plötu á því herrans ári
1977. Platan sú heitir Aftur og
nýbúnir og er með söngsveit-
inni Randver frá Hafnarfirði.
Á Aftur og nýbúnir eru tólf
lög, — öll í country & western
stíl, — erlend en með ís-
lenzkum textum. Níu þeirra
hefur Ellert B. Þorvaldsson,
einn Randverjanna samið,
stéttarbróðir hans, Ragnar
Gíslason, einn og einn
er sagður vera eftir alla
meðlimi Randvers. Þar er hins
vegar um að ræða orðrétta þýð-
ingu yfir á ensku á laginu um
Bjössa á mjólkurbílnum og
heitir hann nú Bjössi on the
milkear.
Áður hefur komið út ein
plata með Randver. Óhætt er að
fullyrða að þeim hefur farið
mjög fram síðan sú plata kom
út. Reyndar njóta þeir að þessu
sinni aðstoðar nokkurra ís-
lonzkra landsliðsmanna í hljóð-
færaleik, en sjá urn allan söng
sjálfir. Utkomuna mega allir
vera mjög ánægðir með.
Það er Tórnas Tómasson
bassaleikari sem á veg og vanda
af upptökustjórninni. Tómas
þekkir greinilega hinn sanna
dreifbýlisanda í tónlistinni og
sténdur sig með prýði. Þó hefði
hann átt að lagfæra tvær takt-
Nikulás
Róbertsson:
,W
ekkert
hvað x
„Ég veit ekkert um, hvað ég
tek mér fyrir hendur í framtíð-
inni. Þegar Paradís hætti,
ákvað ég að taka mér hálfs
mánaðar frí og sjá svo til,“
sagði Nikulás Róbertsson
hljómborðsleikari Paradísar í
samtali við DB í vikunni. Niku-
lás dvelur nú á Vopnafirði þar
seni hann bjó áður og hóf tón-
listarferil sinn.
Nikulás sagði að nokkrir
aðilar hefðu haft samband við
sig og boðið sér í hljóm-
sveit. Ilann sagðist hins vegar
ekkerl svar hafa gefið og
ætlaöi að bíða meó það þar til
eftir páska, er hann kemur til
Reykjavíkur aftur.
„Eg íhugaði jafnvel þann
möguleika að hætta spila-
mennsku," sagði Nikulás. „En
eins og ég sagði áðan, þá veit
ég ckkert hvað ég geri.
-ÁT-
Johnnie Taylor/
Rated Extraordinaire
Átti soullag síðasta
árs i Bandaríkjunum
Johnnie Harrison Taylor
heitir hann fullu nafni og er
ættaður frá Arkansas í JJanda-
ríkjunum. Upphaflega helgaði
hann sig „Godspell" tónlist og
fyrsta hljómsveit hans á þeirri
braut var The Five Echos.
Síðar gekk hann til liðs við aðra
„godspell"grúppu, Highway
Qc’s. og áður en langt um leið
tók hann við söngvarastarfinu
af Sam Cooke i hljómsveitinni
The Soul Stirrers.
Það var árið 1967 að Johnnie
gerði samning við hljómplötu-
fyrirtækið Stax og þá fyrst fór
hann að ná einhverjum teljandi
vinsældum. Sarna ár sendi
hann frá sér sína fyrstu LP
plötu — sem nefndist Wanted
One Soul Singer. Ári siðar kom
næsta plata, Who’s Making
Love. Titillagi þeirrar plötu
kóm hann upp i efsta sæti
bandaríska vinsældalistans og
fyrstu fimm vikurnar, sem hún
var á markaðinum, seldist hún i
yfir einni milljón eintaka.
Frá árinu 1967—77 hefur
Johnnie Taylor sent frá sér tólf
LP plötur sem satt að segja
hafa náð misjöfnum vinsæld-
um. Það var reyndar ekki fyrr
en á síðasta ári að hann sló
verulega í gegn. Þá kom hann
með lagið Disco Lady sem
mánuðum saman skreytti toppa
vinsældalista víðs vegar um
heiminn. t árslok ’76 klykkti
bandaríska blaðið Billboard
síðan út með því að kjósa Disco
Lady vinsælasta soullagið í
Bandaríkjunum það árið.
Nýjasta LP plata Johnnie
Taylor er nú nýkomin út og ber
nafnið Rated Extraordinare.
Þessi plata er nokkuð þokkaleg,
og þá aðallega til hlustunar í
góðu tómi því að hún er frekar
róleg. Söngur Johnnies er bæði
ákveðinn og sterkur en eins og
svo margir aðrir söngvarar
finnst mér hann eyða óþarflega
miklum tíma í að syngja fram
og aftur um hina útþvældu og
ódauðlegu ást.
Rated Extraordinaire er
hljóðrituð í United Sound
Systems í Detrcit og einnig i
ÁBC Recording Studio í Los
Angeles. Utsetningar á lögun-
urn annaðist Don Davis og
samdi reyndar flest laganna. —
Umslag plötunnar er mjög vel
gert. Beztu lög eru:
Love Is Better In The A.M.
It Ain’t What Vou Do.
Your Love Is Rated X.
Vilhjálmur Ástrádsson.