Dagblaðið - 12.04.1977, Side 32
HUS
— en ekki haf ðist það
átakalaust
Dráttarbíll á vegum G.G.
flutti tvo snjóbila til þess aó
draga skála fyrir Jöklarann-
sóknafélagið á Esjufjöll aðfara-
nótt sl. föstudags. Jökla-
rannsóknafélagið á annan snjó-
bílinn, en hinn á Hjálparsveit
skáta í Reykjavík. Skálastæðið
er við svonefnda Tjaldmýri
undir Skálatindi í Esjufjöllum.
Snjóbílarnir lentu í erfiðleik-
um í brattri brekku og vírinn
sem hélt húsinu slitnaði og
hafðist það því ekki upp. Haft
var samband við Björn Ölafs-
son og hann kom með tvo
snjóbíla, Grendil og Nagg, og
með aðstoð hans tókst að draga
A VATNAJOKUL
•jSi u ^ss.
húsið upp brekkuna.
Húsið er mjög vandað og
tekur 14-20 manns í gistingu.
Séistaklega var vandað til
niðursetningar hússins, þar
sem hús, sem stóð á svipuðum
slóðum, fauk fyrir nokkrum
árum. Um uppsetningú hússins
sáu Gunnar Guðmundsson og
Stefán Bjarnason.
Mjög gott veður var, sérstak-
lega á föstudag, og komst hitinn
upp í 20 stig. Skíðaland í Esju-
fjöllum er með eindæmum gott
og færi sérstaklega gott nú.
Húsið er i eigu Jöklarannsókna-
félagsins og geta menn fengið
að gista og greitt gjaldið í
Reykjavík. Á Höfn í Uornafirði
er hægt að fá leigða • > s-jjoíla
upp á jökulinn. Esjufjöll .narka
skilin milli Breiða-
merkurjökuls og Vatnajökuls.
VV/JH.
Egilsstadir:
Flugvél í
árekstri við
slökkvitæki
Harla óvenjulegt flugslys
varð á Egilsstöðum á skírdag.
Ók þar lítil flugvél frá Flug-
félagi Austurlands á hand-
slökkvitæki, sem flugvallar-
starfsmenn höfðu skilið eftir
úti á miðri flugbraut, og komst
ekki í loftið á eftir.
Slökkvitæki þetta er á vagni,
sem ekið hafði verið út á
brautina þegar flugvél frá Fí
lenti þar skömmu áður, en
varð síðan eftir þegar Flug-
félagsvélin fór í loftið á ný.
Litla vélin var að koma úr
flugi þegar slökkvitækið varð
skyndilega fyrir hreyfli
hennar. Bognaði hann við
áreksturinn.
Litla vélin var tiltölulega
nýlega komin úr tímafrekri
viðgeró eftir að hanni hlekkt-
ist illa á í Borgarfirói eystra í
fyrra.
Flugvirki úr Reykjavík kom
til Egilsstaða á laugardaginn
með nýja skrúfu og komst
vélin í loftið skömmu síðar.
ÓV
Ennfinnst loðnan:
Pollurinn fullur af loðnu og
dauður fiskur um allar fjörur
Eins og flestum landsmönnum mun vera kunnugt álitu fiskifræðingar að loðnuveiði væri lokið á þessari
vertíð. Svo þarf þð ekki að vera. Friðgeir Axfjörð fréttaritari DB á Akureyri hafði i gær samband við
biaðið og sagði Pollinn vera fullan af loðnu og smábátar hefðu fengið allt að 300 tUnna afia. Fjaran á
Akureyri er krökk af loðnu sem rekið hefur á land. DB-mynd F. AX. DS.
GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSS0N UM TILLÖGUR ATVINNUREKENDA:
,,Styrkþegahugsunarháttur”
„Þeir gáfu í skyn, að þeir gætu
hugsað sér hækkun til hinna
lægstlaunuðu, en þá kæmu frá
ríkinu ráðstafanir, sem bættu hag
atvinnuveganna, svo sem niður-
felling iaunaskatts," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambandsins,
í morgun um tillögur atvinnurek-
enda í samningunum.
„Þetta er styrkþegahugsunar-
háttur,“ sagði Guðmundur. „Þá
skortir reisn.“
„Nú ætti ríkisstjórnin , ef hún
væri frísk, að demba á borðið
aðgerðum," sagði hann.
Guðmundur sagði ennfremur,
að atvinnurekendur hefðu lagt til
að vinnutími yrði lengdur. Nú
væri reiknað með 40 stunda
vinnuviku, mínus kaffitímar, en
atvinnurekendur vildu, að vinnu-
tíminn yrði 40 stundir fyrir utan
kaffitíma. Baldur Guðlaugsson,
lögfræðingur Vinnuveitendasam-
bandsins, sagði í morgun, að
kjarninn í tillögum atvinnu-
rekenda væri að taka frekar tillit
til unnins tíma, greiða síður kaffi-
tíma en hækka þá kaupið sem því
svaraði fyrir þann tíma, sem unn-
in væri. Þegar talað væri á öðrum
Norðurlöndum um 40 stunda
vinnuviku, væri átt við 40 unnar
stundir, en hér væri miðað við 40
stundir að frádregnum kaffi-
tímum, sem gerði 37 stundir og
fimm mínútur unnar á viku.
Fleiri tillögur atvinnurekenda
rynnu í sama farveg.
Guðmundur J. Guðmundsson
sagði, að atvinnurekendur vildu
frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRlL 1977.
þrjá
hætta að greiða fyrstu
veikindadagana.
Samningafundir voru ekki um
páskana, en riú búa menn sig
undir lengri fundi en verið hafa.
Næsti allsherjarsamningafundur,
eða sameiginlegur „stórráðs-
fundur," eins og samningamenn
segja, verður á fimmtudag.
Fundir atvinnurekenda og sér-
sambandanna halda áfram á
meðan.
HH
Stálu,
drukku
ogoku
próflausir
Um klukkan 3 í nótt stöðvaði
lögreglan bifreió í Reykjavík
sem í voru tveir ungir piltar.
Kom strax í ljós að þeir voru
ölvaðir við aksturinn. Við
nánari athugun kom einnig
fram að þeir voru réttinda-
lausir til aksturs og að bif-
reiðin var stolin. Til að kóróna
feril sinn um nóttina bættist
fjórða afbrotið við. Þeir brut-
ust inn hjá Bifreiðum og land-
búnaðarvélum til að stela far-
kostinum. Piltarnir sátu inni í
nótt og mál þeirra átti að taka
fyrir í morgun. -ASt.
Meistarar
íbridge
Hörður Arnþórsson, skrif-
stofustjóri, og Þórarinn Sig-
þórsson, tannlæknir, urðu
íslandsmeistarar í tvímenn-
ingskeppni í bridge á páska-
dag. Sigruðu með umtalsverð-
um yfirburðum. Hlutu 334
stig. Þeir eru einnig núverandi
íslandsmeistarar i sveita-
keppni og spila fyrir Bridge-
félag Reykjavíkur. I öðru sæti
urðu Valur Sigurðsson og Jón
Alfreðsson, Akranesi, en Jón
er sem kunnugt er fyrirliði
Akurnesinga í knattspyrn-
unni. Þeir hlutu 267 stig. í 3ja
sæti urðu bridgemennirnir
kunnu, Símon Símonarson og
Stefán Guðjohnsen, BR, með
240 stig. 44 pör tóku þátt I
úrslitakeppninni um helgina,
en um 1000 manns hófu upp-
haflega keppni. Nánar verður
sagt frá keppninni í bridge-
þætti blaðsins. Undankeppni
sveitakeppni íslandsmótsins
var einnig háð um páskana, en
átta sveitir munu keppa um
íslandsmeistaratitilinn I mal.
hsimt
Þórarinn — Hörður
Nýttstríð
sveitar-
félaga og
rákissjóðs:
Ríkið stendur ekki við samn-
inga um viðhald skólahúsnæðis
Enn eitt striðið er nú komið
upp milli fjármálaráðuneytis-
ins og sveitarfél. Hefur sveitar
félögum gengið illa vægast sagt
að innheimta úr greipum
ríkisins samningsbundnar
greiðslur vegna viðhalds skóla-
húsnæðis. Var gerður um það
samningur milli fjármála-
ráðherra og Sambands ísl.
sveitarfélaga 1975 að ríkið
greiddi sem svarar kr. 1.370 á
hvern íbúa sveitarfélags til
viðhalds skólahúsnæðis í hin-
um ýmsu sveitarfélögum.
Árni Emilsson, sveitarstjóri í
Grundarfirði, tjáði DB að hann
hefði undanfarna mánuði leitað
eftir greiðslu þessarar
upphæðar hjá fjármálaráðu-
neytinu en við innheimtu-
aðgerðir hefur honum verið vís-
að frá einum embættismannin-
um til annars og svör embættis-
mannan.na verið hin furðuleg-
ustu.
Árni kvaðst hafa reynt að.
hefja vangoldnar greiðslur
ríkissjóðs hjá Kristjáni
Thorlaciusi deildarstjóra í fjár-
málaráðuneytihu en stöðugt
verið vísað á Halldór V.
Sigurðsson ríkisendur-
skoðanda.
Ríkisendurskoðandi hefði
jafnoft verið undrandi að
málinu skuli vera vísað til hans
og telur það í verkahring
Kristjáns að vísa á greiðslur af
þessum rótum. Milli þessara
háu embættismanna gengur
boltinn og ekkert fæst greitt.
Árni Emilsson sveitarstjóri
kvað það hlægilegt að slíkir
embættismenn skuli vísa hvor á
annan i stað þess að inna
samningsbundnar greiðslur af
hendi. Hér er ekki um mikla
uppha-ð að ræða fyrir ríkissjóð
en fámenn sveitarfélög munar
um slíkt. Hjá Grundfirðingum
nemur þessi upphæð um 1100
þúsund krónum og er hún
ógreidd fyrir árið 1975.
Árni sagði að ríkissjóður
væri afar erfiður sveitarfélög-
um varðandi allar greiðslur.
I?eningum sveitarfélaga væri
haldið eins lengi í rikissjóði og
nokkur kostur væri til mikils
ama og óþæginda fyrir sveitar-
félögin.
ASt.