Dagblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 6
fi SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Tónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn 21. apríl kl. 20.30. Stjórnandi SAMUEL JONES Einleikari JOHN LILL Efnisskrá: Þorkell Sigurbjörnsson — Ríma (nýtt verk). Beethoven — Pianókonsert nr. 3. Samuel Jones — Let Us Now Praise Famous Men. Borodin — Polovtsian dansar. Aógöngumiðar í Bókabúð Lárusar Blöndals, Skólavörðu- stíg og Bókav. Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti. Auglýsing Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t., Líftryggingafélagsins Andvöku og Endurtryggingafélags Samvinnu- trygginga hf. verða haldnir fimmtu- daginn 2. júní nk. að Hótel Sögu, Reykjavík og hefjast kl. 10 f.h. Dagskrá samkvæmt samþykktum fé- laganna. Stjórnir félaganna. Stöður hjúkrunarfræðings og Ijósmóður við heilsugæslu- stöðina í Ólafsvík eru lausar til umsóknár nú þegar. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Heilbrigðis- og tryggingamólaróðuneytið 19. apríl 1977. Vanirpressmienn óskast strax. Uppl. ísíma50877 L0FT0RKA SF. íslenska járnblendifélagið h/f óskar að ráða viðskiptafræðing eða mann með hliðstæða menntun til starfa að Grundartanga við Hvalfjörð. Um er að ræða starf við bókhald, reikningshald og kostnaðareftirlit. Umsóknir sendist skriflega til skrif- stofu félagsins að Lágmúla 9, Reykja- vík. —UPPSALAKVÖLD.---------------------------------- 500 ára afmælis Uppsalaháskóla minnst í Norræna hús- inu, fimmtud. 21. apríl ki. 20.30. Dagskró: Tore Frangsmyr, dósent v/Uppsalaháskóla ræðir um háskólann og tengsl hans við ísland. Kvikmyndasýning. Glúntasöngvar — Stefán Sörensson og Valdimar Örnólfs- son syngja við undirleik Guðmundar Jónssonar. í sýningarsal í kjallara: „Samspil orðs og myndar", Halldór Laxness, Asger Jorn o.fl. opin kl. 14—19 til 24. apríl. í bókasafni: Norrænar þýðingar á verkum Halldórs Laxness. Allir velkomnir NORRÆNA HÚSIÐ DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977. - Bandaríkjamenn hika við að senda Pakistönum táragas —miklar óeirðir í Pakistan ígær Stór táragassending, sem átti að fara frá Bandaríkjunum til Pakistan fyrir nokkru, hefur ekki enn verið send, — vegna þess ástands sem ríkir hjá kaupandanum um þessar mundir. Talsmaður Banda- ríkjastjórnar sagði að leyfi til að senda táragasið hafi verið veitt 15. marz síðastliðinn eða áður en óeirðirnar hófust. V „Astandið hefur breytzt svo mjög á þessum fimm vikum, síðan útflutningsleyfi fyrir táragasinu var veitt, að við verðum að hugsa okkur vand- lega um áður en við látum það af hendi,“ sagði hann. — Tára- gasið er að verðmæti 68.000 dollara. Stuðningsmenn Bhuttos, for- sætisráðherra Pakistan, fóru í heljarmikla göngu í gær i borg- inni Lahore til að lýsa yfir stuðningi við hann og Þjóðar- flokk hans. En þó að stuðnings- gangan væri stór, söfnuðust andstæðingarnir saman I enn voldugri fylkingu. Göngurnar tvær mættust og allt fór í bál og brand. Hnifum var veifað og, vitað er um einn mann sem lézt af hnífsstungu. Milli 180 og 190 manns hafa nú látið lífið í óeirðunum sem blossuðu upp I Pakistan eftir þingkosningarnar sem haldnar voru um miðjan marzmánuð. Verkalýðsleiðtogar í stærstu borg landsins, Karachi, hafa boðað til allsherjarverkfalls í landinu frá og með deginum í dag. VORLEYSINGAR í ST. L0UIS Það fór ekki hjá þvi, að eftir mikla úrkomu og aðrar veðurhörkur viðs vegar um Bandarikin, yrðu vorleysingarnar ekki neitt smáræði loksins þegar þær kæmu. I St. Louis vona menn að flóðin, sem þar eru um þessar mundir, séu hin eina og sanna vorleysing og ekki eigi eftir að bregða til hins verra aftur. — Borgarbúar taka því lifinu með ró, lesa blöðin og hlakka til sumarsins. Hótelbruni íTexas: TALIÐ ER AÐ UM ÍKVEIKJU HAFIVERIÐ AÐ RÆÐA — 23 fórust í eldinum Ottazt er að tuttugu og þrír sjö manns ómeiddir. Nú standa brunarústunum. — Tjónið er hafi látið lífið í hótelbruna í aðeins tveir veggir eftir uppi í metið á um 700.000 dollara. bænum Galveston í Texas. Mótmælaakstur í Valencia — krafizt lögleióingar allra spænskra flokka Eidurinn kom upp í gær- morgup. Björgunarsveitir hafa fundið átta lík og vinna nú af kappi við að grafa í bruna- rústunum eftir fimmtán til viðbótar sem enn er saknað. Slökkviliðið í Galveston fullyrðir að allt bendi til að kveikt hafi verið í hótelinu. Enginn hefur þó enn verið handtekinn vegna þess. Meðal þeirra sem létust voru fimm börn — þar af þrjú syst- kin. Af þeim 47 manns sem gistu á hótelinu sluppu aðeins Yfir hundrað manns voru handteknir í borginni Valencia á Spáni í gærkvöld. Þá söfn- uðust menn saman á ökutækj- um sinum og hófu mótmæla- akstur til að krefjast þess að allir stjórnmálaflokkar Spánar yrðu lögleiddir. Akstur þessi var skipulagður af tólf spönskum vinstriflokkum. Alls voru það um fjörutíu bílar sem tóku þátt í akstrinum. Bílstjórar þreyttu flautur sínar og sumir hrópuðu slagorð i gjallarhorn. — Heimildir herma að lögreglan hafi skemmt nokkra bíla er hún sundraði hópnum. Bílstjórar allra bílanna voru handteknir og margir aðrir. Þeirra á meðal voru nokkrir meðlimir Spænska kommúnistaflokksins.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.