Dagblaðið - 20.04.1977, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977.
9
NÚ HEITIR HRAÐ- OG ÞJÓÐ-
BRAUT STOFNBRAUT OG
LANDSBRAUT ÞJÓÐBRA UT
„Stofnbrautir eru að meginefni
til þeir vegir sem i fyrri vegalög-
um voru kallaðir hraðbrautir og
þjððbrautir og þeir vegir sem nú
eru kallaðir þjððbrautir voru
áður kallaðir landsbrautir," sagði
Snæbjörn Jónasson vegamála-
stjóri er DB spurði hann um þessi
veganöfn sem eru í nýsettum
vegalögum og ástæðuna fyrir
nafnbreytingunni.
„Þannig er í nýju vegalögunum
nú talað um tvo flokka vega í stað
þriggja áður. Hraðbrautirnar sem
eru einkanlega á Suður- og Vest-
urlandi fengu megin fjárveiting-
una úr vegasjóði en aðrir lands-
hlutar áttu ekki jafn greiðan að-
gang að sjóðnum.
Þannig er ætlunin að fjárveit-
ingunni verði réttlátar skipt og
ýmsar leiðir sem hafa verið horn-
reka fái ríflegri fjárveitingu I
framtíðinni.
I Vestfirðinga- og Austfirðinga-
fjórðungi voru tiltölulega litlar
hraðbrautir en stofnbrautir eru
um allt land,“ sagði Snæbjörn.
— Er ætlunin að setja varan-
legt slitlag á þessar stofnbrautir í
náinni framtíð?
„I lögunum stendur að stetnt
skuli að því að setja varanlegt
slitlag á vegi sem hafa eitt þúsund
bíla umferð á dag yfir sumarmán-
uðina.“
— Er ekki minna viðhald á
vegum með varanlegu slitlagi?
„Það er mjög útbreiddur mis-
skilningur meðal manna að þegar
varanlegt slitlag sé komið á vegi
sé viðhaldið ekki neitt. Ef við
tökum Hafnarfjarðarveginn sem
dæmi, en það er vegur sem hefur
umferð upp á 20—30 þús. bíla á
dag er viðhaldskostnaðurinn gíf-
urlega mikill. Svo margir bílr
slíta veginum hreinlega upp og
nýtt slitlag er mjög dýrt en reynzt
hefur nauðsynlegt að setja nýtt
slitlag á veginn."
— En t.d. vegurinn austur yfir
fjall?
„Þar er umferð miklu minni og
slíkur vegur endist í nokkur ár án
viðhalds en nú þegar erum við
farnir að þurfa að gera við hann,
en slitið fer að sjálfsögðu eftir
umferðinni um veginn," sagði
Snæbjörn.
Vegamálastjóri sagðist ekki
geta sagt hvað hver km af vegi
með varanlegu slitlagi kostaði.
Það fer eftir þvi hvernig landið á
vegarstæðinu er, hve langt þarf
að aka með efni til vegagerðarinn-
ar, tölu ræsa og ýmsu fleira sem
taka verður tillit til.
A.Bj.
Það er regin misskilningur að
vegir með varanlegu slitlagi þurfi
ekki viðhald. Það er mjög dýrt, en
hlns vegar liða oftast nokkur ár
þangað til þarf á viðhaldi að
halda. Þetta er fyrsta hraðbrautin
sem gerð var á Islandi, — Kefla-
vikurvegurinn. DB-mynd Ragnar
Th. Sigurðsson.
Hiín amma
gamla ferðast
alltaf með...
Þær eru margar ömmurnar sem eru létt-
ar í lund. t þeim hópi er hún þessi á
myndinni. Hún ekur alltaf með sendi-
ferðabílnum af Volkswagen-gerð, en
hefur þó gripið til þess ráðs að aka á
eigin farartæki af dýrri og sportlegri
gerð. — DB-mynd Hörður. >
Gerðist leikari eftir barneignir og beinbrot.
Forsíðuviðtal við Margréti Helgu Jóhannsdóttur
leikara.
Straumrof fyrr og nú. — Frásögn og myndir •
frá uppfærslunni '34 og '77.
Karlsson mengast í álveri.
íslenzk sumartízka kynnt í máli og myndum.