Dagblaðið - 20.04.1977, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977/
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Lokastaðan
íl.deild
Lokastaðan í 1. deild:
Valur 14 12 0 2 317-262 24
Víkingur 14 11 0 3 357-312 22
FH 14 8 2 4 329-313 18
Haukar 14 7 3 4 304-282 17
ÍR 14 5 2 7 311-325 12
Fram 14 4 2 8 286-317 10
Þróttur 14 2 4 8 273-308 8
Grótta 14 0 1 13 285-336 1
Hörður Sigmarsson, Haukum,
varð markakóngur ísiands-
mótsins í 1. deild með 111 mörk.
Þróttur og KR, sem varð í öðru
sæti í 2. deild, munu keppa um
sæti í 1. deild næsta keppnistíma-
bil.
Beckenbauer
ekki valinn
Franc Beckenbauer, fyrirliði
vestur-þýzka landsliðsins, var í
gær í fyrsta skipti síðan hann
varð iandsliðsmaður ekki valinn í
vestur-þýzka landsliðið. Þetta var
„stóra bornban" í Þýzkalandi í
gær, en Þjóðverjar munu leika
við Norður-íra og Júgóslava í
næstu viku. Beckenbauer, sem er
31 árs, hefur leikið 103 iandsleiki
og aðeins þrír leikmenn í heimin-
um hafa leikið fieiri landsleiki í
knattspyrnu. Pela 110 fyrir
Brazilíu, Bobby Moore 108 og
Bobby Charlton 106 fyrir Eng-
land.
Í fyrstu sögðu fréttastofur í
gær, að Bekcenbauer hefði verið
settur út úr þýzka landsliðinu
vegna þess að hann sé á förum til
New York Cosmos. Liðið bauð
Beckenbauer 570 milljónir ísl.
króna fyrir samning, en keisarinn
sagði strax að hann mundi ekki
leika með Cosmos fyrr en eftir
heimsmeistarakeppnina 1978, svo
þýzki landsliðsþjálfarinn Helmut
Schön hefursett Beckenbauer úr
liðinu vegna þess, að hann hefur
átt slaka leiki að undanförnu með
liði sínu Bayern Munchen.
Borðtennis
hjá KR-ingum
Tvíliðaleiksmót KR fór fram í
félagsheimili KR þann 15. mars
sl. Allt tóku 18 pör þátt í mótinu.
Urslit urðu þau, að Tómas
Guðjónsson KR og Gunnar Finn-
björnsson Erninum sigruðu
Hjálmar Aðalsteinsson KR og
Ragnar Ragnarsson Erninum í
úrslitalik, 21-11, 21-18 og 21-17.
t þriðja sæti urðu Olafur Ólafs-
son og Birkir Gunnarsson Ernin-
um.
Punktamót KR í 2. flokki fór
fram í félagsheimili KR 22. mars
sl. 14 keppendur tóku þátt í
mótinu.
Urslit urðu þau að Tómas
Guðjónsson KR sigraði etir
harðan og spennandi úrslitaleik
við Gunnar Finnbjörnsson,
Erninum. í þriðja sæti varð
Stefán Konráðsson, Gerplu.
Punktamót KR í 3. flokki fór
fram í íþróttahúsi Seljtarnarness
27. mars sl. AIIs tóku 32
keppendur þátt í mótinu.
Sigurvegari varð Gunnlaugur
Hjartarson, Erninum, bar hann
öruggt sigurorð af öllum and-
stæðingum sínum. í öðru sæti
varð Kristján Jónasson Víkingi
og í þriðja sæti varð Magnús
Eiríksson, Erninum.
Samhliða 3. flokks mótinu á
Selt jarnarnesi var haidið stúlkna-
mót KR fyrir stúlkur yngri en 17
ára.
Alls tóku 6 stúlkur þátt í
mótinu.
Sigurvegari varð Sigrún
Bjarkadóttir Borgarfirði. Hún
sigraði alia andstæðinga sína. í
öðru sæti varð Ragnhildur
Sigurðardóttir, Borgarfirði og í
þriðja sæti Hafdís Asgeirsdóttir
KR.
Islandsmeistarar Vals í meistaraflokki karla 1977. Aftari röð frá vinstri: Ægir Ferdinandsson, formaður Vals, Agúst Ögmundsson liðs-
stjóri, Björn Björnsson, Karl Jónsson, Þorbjörn Guðmundsson, Gísli Blöndal, Jón Pétur Jónsson, Stefán Gunnarsson, Bergur Guðnason,
Þorsteinn Einarsson, llilmar Björnsson þjálfari og Örn Höskuidsson formaður handknattleiksdeildar Vals. Fremri röð: Steindór Gunn-
arsson, Bjarni Guðmundsson, Jön Breiðfjörð, Jón H. Karlsson, fyrirliði, Garðar Kjartansson, Gunnsteinn Skúlason, Jóhannes Guðmundsson
og Ólafur Guðjónsson.
VALSMENN SIGRUÐU
Með 24 mörkum gegn Fram í
gærkvöld og 24 stigum í 1. d.
tryggðu Valsmenn sér íslands-
meistaratitilinn 1977 — sigur,
sem nokkuð lengi hefur verið
innan seilingar. Lið Vals er mjög
vel að meistaratigninni komið.
Það var áberandi bezta liðið í
upphafi mótsins — og hélt sinni
stefnu með litlum áföllum. Aðall
Valsliðsins er jafnræði meðal
leikmanna — sterk vörn og góð
markvarzla lengstum. Ekki vafi á
þvi, að Valur átti jafnasta liðinu á
að skipa — og baráttuvilji þess,
vilji til að sigra á mótinu, var
þungur á metunum.
En baráttulaust féll Islands-
meistaratitillinn ekki í hlut Vals-
manna í gærkvöld í leiknum við
Fram. Lið Fram sýndi einn sinn
bezta leik á mótinu í gær — en
það varð liðinu að falli öðru
fremur, að leikmenn Fram eru
ekki í jafngóðri æfingu og Vals-
menn. Það var ekki fyrr en loka-
kafla leiksins, sem Valur náði
yfirhöndinni. Þá var varnarleikur
Vals bráðsnjall og leikmenn
liðsins breyttu stöðunni úr 16-16 í
24-20 síðustu fimmtán
mínúturnar. Skoruðu því þá átta
mörk gegn aðeins fjórum
mörkum Fram.
Leikmenn Fram mættu til leiks
tvíefldir eftir stórsigur Fram-
stúlknanna á Val í leiknum á und-
an. Greinilegt, að þeir ætluðu sér
nú meiri hlut en í leikjum liðsins
að undanförnu. Þetta kom Val
talsvert á óvart. Hinn öruggi
sigur, sem leikmenn liðsins hafa
jfíaust búizt við, lét á sér standa.
Jafnt var 1-1, 2-2, en siðan komst
Fram í 4-2, 5-3, 6-4, og 7-5, en
Valsmönnum tókst að jafna í 7-7.
Síðan sáust allar jafnteflistölur
upp í 11-11, en Fram skoraði
síðasta markið í fyrri hálfleik.
Staðan því 12-11 fyrir Fram í hálf-
leik.
Valsmenn mættu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik. Skoruðu tvö
fyrstu mörkin og breyttu
stöðunni í 13-12. fyrir Val. En
leikmenn Fram höfðu enn ekki
gefizt upp. Þeir jöfnuðu og kom-
ust aftur yfir í 15-14. Siðan jafnt
15-15 og 16-16, en þá var allt
púður þrotið í herbúðum Fram.
Valsmenn skoruðu næstu fimm
mörk og úrslit voru ráðin. Sigur
Vals í höfn — og um leið Islands-
meistaratitillinn.
Lið Vals stóð vel fyrir sínu í
gær. Þorbjörn Guðmundsson
beztur framan af — en siðan tók
Jón Karlsson við aðalhlutverkinu.
Bjarni Guðmundsson driffjöður í
sókninni — Stefán Gunnarsson í
vörn. Hins vegar voru stór-
skytturnar Jón Pétur Jónsson og
Gísli Blöndal ekki eins atkvæða-
miklir og að undanförnu. Hjá
Þróttur tók stig af
meisturum Víkings!
— íReykjavíkurmótinu íknattspyrnu ígær
Þróttur tók stig af Reykja-
víkurmeisturum Víkings á
Melavellinum í gær. Leik liðanna
í meistaraflokki Reykjavíkur-
mótsins í knattspyrnu lauk án
þess að mark væri skorað. Ef
nokkuð var voru Þróttarar nær
sigri. Leikmenn liðsins höfðu
mun meiri baráttuvilja og voru
fljótari á knöttinn. Bæði lið fengu
sín tækifæri. Þróttur framan af.
Víkingur í lokin.
Þálfari Víkings Haydoch gerði
ýmsar breytingar á liði sínu
nteðan á leiknum stóð. Reyndi
marga leikmenn og greinilegt, að
hann leggur lítið upp úr sigri i
mótinu. Frekar að kynna sér
getu leikmanna fyrir átökin á
Islandsmótinu, en það hefst 7.
maí. Eftir þessi úrslit í gær
stendur Fram langbezt að vigi í
mótinu, en staðan er þannig:
Fram
Víkingur
Valur
Þróttur
KR
Armann
Fram var Andrés Bridde beztur
bæði í sókn og vörn. Pálmi Pálma-
soji og Arnar Guðlaugsson stóðu
vel fyrir sínu og pilturinn ungi,
Jón Árni Rúnarsson var drjúgur i
sókninni í fyrri hálfleik.
Mörk Vals i leiknum skoruðu
Jón Karlsson 7 (4 víti), Þorbjörn,
Jón Pétur og Gísli þrjú hver
Steindór Gunnarsson og Bjarni
tvö hvor, Gunnsteinn Skúlason,
Stefán Gunnarsson og Björn
Björnsson eitt mark hver. Fyrir
Fram skoruðu Arnar 4, Pálmi 4
(eitt víti), Jón Árni 4, Andrés 2,
Gústaf Björnsson 2, Sigurbergur
Sigsteinsson og Pétur Jóhannsson
eitt hvor. Dómarar Kjartan
Steinbach og Kristján örn.
Stjörnuhlaup
Annað Stjörnuhlaup FH var
háð 16. apríl. I karlaflokki voru
hlaupnir 5 km. Agúst Asgeirsson,
ÍR, sigraði á 15:42.5 mín.
Sigurður P. Sigmundsson, FH,
varð annar á 15:50.5 mín. Haf-
steinn Óskarsson, IR, þriðji á
16:34.0 mín. og Erlingur Þor-
steinsson, FH, fjórði á 17:26.0
mín. Eftir tvö stjörnuhlaup er
Ágúst með flestar stjörnur níu.
Vegalengdin hjá konum var 2
km. Þar sigraði Thelma Björns-
dóttir, UBK, á 8:15.0 mín. Guðrún
Árnadóttir, FH, varð önnur á
8:30.0 mín. Annar Haraldsdóttir,
FH, þriðja á 8:50.0 mín. og Bára
Friðriksdóttir, FH, fjórða á 8:55.0
min. Þar hefur Thelma hlotið 10
stjörnur, Guðrún átta.
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
fer fram á morgun, sumardaginn
fyrsta. Keppt verður i sjö aldurs-
flokkum. Hinn 7. maí verður
þriðja og siðasta Stjörnuhlaup FH
í ár og verða þá hlaupnar tvær
mílur f karlaflokki, en 1000
metrar i kvennaflokki á braut.
Þjálfi ræðir við sálfræðinginn
(^tímanum, Þjálfi
Hann lagast með
ég þarfnast hans í lið
Spörtu. Læknir hans
segir fótinn góðan
; Vandamál 1 I Bommi.
hans nú er ekki, ■ þú mættir
likamL.^i tíöJ
Bara til að vita hvort ég
get gengið án stafsins
viiisak
C' King Fcatu-es Syndicata Inc 1975 WorU