Dagblaðið - 20.04.1977, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977.
17
Útgreiðsluborðið, — greítt úr netunum og fiskur rifinn úr. „Úr með fiskinn," er kallað ef ekkl er
dregið nógu hratt og haldið er áfram við að innbyrða trossuna.
áður rúm 10.400. Sóknin nú er
hins vegar meiri en í fyrra sök-
um góðra gæfta.
Meðfylgjandi myndir tók
Anna Fanney Stardal í róðri
með netabátnum Sölva Bjarna-
syni en hún sér um matseldina
þar um borð og er þvi álíka
þýðingarmikil og „karlinn sjálf-
ur“
-G.S.
Netabátarnir eru alls 33 eða
sex færri en í fyrra og troll- eða
botnvörpubátar 43 sem er 11
fleira en í fyrra. Þrír eru á
færum.
Þrátt fyrir allt var heildarafl-
inn frá áramótum til síðustu
mánaðamóta nálægt 10.150
tonnum en var á sama tíma í
f.vrra tæp 9.200 tonn og árið
M
Skipstikin Týra,
iukkugripurinn um borð.
„Karlinn á Sölva Bjarnasyni-BA, sem gerður er út frá Eyjum. Hann
heitir Erlingur Pétursson og situr hér stoltur í brúnni enda búinn
að fá 238 tonn á skömmum tíma. eða síðan hann hætti á loðnunni.
DB-myndir: Anna Fanney, kokkur á Sölva.
'Gestur’ í
Grundarfossi
Engan sakaði í gærdag
þegar nýr kranabíll, tíu hjóla'
trukkur, lyftist skyndilega og
valt um borð í Grundarfoss ,
sem lá við bryggju á Akureyri.
Var verið að lyfta 16 tonna
glerkistu, en hún kræktist
undir lestaropið með þessum
afleiðingum. Myndin sýnir
hinn óvænta „gest“ um borð í
Fossinum.
— DB-mynd F.Ax.
Keflavíkurflugvöllur:
Harður árekstur,
þrír á sjúkrahús
Allharður árekstur varð í
svonefndu Seaveed-hverfi á
Keflavíkurflugvelli í gærdag.
Rákust þar á tvær fólksbif-
reiðar af BMW-gerð og Skoda.
Skall BMW-bifreiðin á vinstri
hlið Skodans og kastaði honum
nokkra metra eftir götunni
Gekk öll hlið Skodabifreiðar-
innar inn, nema annað hurðar-
byrðið, sem féll i götuna. Bæði
fram- og afturrúður Skodans
hrukku úr fölsunum en önnur
var þó heil á eftir. BMW-billinn
skemmdist einnig mjög mikið
en ökumaðurinn slapp
ómeiddur en hann var einn i
bifreiðinni. Þrír menn voru í
Skodanum og slösuðust þeir
allir, en ekki er vitað hve alvar-
ieg meiðsli þeirra voru.
emm.
RÆSISMÁLINU ER L0KIÐ
Ríkissaksóknari hefur
ákvarðað að ekki sé ástæóa til
frekari aðgerða í Ræsismálinu
svokallaða og hefur málið þar
með verið látið niður falla.
Ríkissaksóknari hefur haft
málið til meðferðar og
ákvarðanatöku í rúmlega eitt
ár. Sakadómsrannsókn hófst i
því í febrúar 1975 og var henni
lokið um það bil ári síðar. Var
málið þá sent saksóknara til
frekari meðferðar. Vísaði hann
því til Seðlabankans, sem gaf
umsögn sína í lok apríl í fyrra
og var fljótlega eftir það hafin
framhaldsrannsókn í Saka-
dómi Reykjavíkur. Þaðan
fór málið á ný til ríkissak-
sóknara um mánaðamótin
október/nóvember. Fyrir um
hálfum mánuði varð niðurstaða
ríkissaksóknara sú að ekki væri
ástæða til frekari aðgerða — að
lögbrot hefði ekki verið framið.
Ræsismálið spratt af kærum
bílstjóra sem töldu fyrirtækið
hafa gengistryggt lán til kaupa
á bifreiðum af gerðinni Benz og
slðan reiknað skuldina á gengi
gjalddaga, sem var að minnsta
kosti einni gengisfellingu eftir
að til hennar var stofnað. Ræsir
hf. endurgreiddi og umreiknaöi
þann mismun sem varð við
gengisfellinguna, samkvæmt
sérstöku leyfi.
-OV