Dagblaðið - 05.05.1977, Page 7
DAC.BLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1977.
7
Ludwig Erhard, fyrrum kanslari, erlátinn:
Náði V-Þýzkalandi upp
iír hörmungum stríðsins
Ludwig Erhard, fyrrum
kanslari Vestur-Þýzkalands,
lézt í sjúkrahúsi í Bonn í
morgunsárið, áttræður að aldri.
Hann mun hafa látizt úr hjarta-
slagi. Talsmaður sjúkrahússins
kvað hann hafa þjáðst af
blóðrásarkvilla að undanförnu.
Dr. Erhard varð efnahagsráð-
herra V-Þýzkalands árið 1949.
Þá var meirihluti landsins enn í
rúst eftir síðari heimsstyrjöld-
ina. Með óbilandi trú á einka-
framtakið og starfsemi sinni
tókst honum að ná landinu upp
úr skítnum og volæðinu. Árið
1963, er hann tók við kanslara-
embættinu af dr. Konrad
Adenauer, var V-Þýzkaland
orðið eitt af bezt stæðu löndum
heimsins.
Kanslaraár dr. Erhards urðu
aðeins þrjú, — hann sagði af
sér embætti i stjórnmála-
kreppu árið 1966. Eftir það sat
hann á þingi sem óbreyttur og
um tíma var hann formaður
flokks kristilegra demókrata.
Erhard var lagður inn á
sjúkrahús 1 Bonn í marzlok.
Hann hafði verið meðvitundar-
laus síðan í gærdag. Lík hans
verður jarðsett við hlið konu
hans, Luise, á bökkum
Tegernseevatns í Bayern.
ÁSGEiR
TOMASSON
S/ö vestrænir fréttamenn í haldi í Zaire
Stjórnarherinn í Zaire hefur
nú i haldi sjö evrópska blaða-
menn. Þeir eru sagðir hafa komizt
ólöglega inn í Zaire, — með upp-
reisnarmönnum frá Angola.
Stjórnin hefur fullyrt að þeir
væru í tygjum við uppreisnarher-
inn.
Fréttamennirnir verða leiddir
innan tveggja daga fyrir erlenda
blaðamenn í landinu, svo og er-
lenda sendiherra, til að fá úr
skorið hvort þeir séu raunveru-
legir blaðamenn eða njósnarar.
Zairemenn hafa enn ekki látið
uppi, hverjir blaðamennirnir sjö
eru en grunur leikur á að tveir
þeirra séu frá v-þýzka tímaritinu
Stern, einn frá Observer hinum
brezka og fjögurra manna lið frá
spænska sjónvarpinu.
Hreinasta heppni var að menn-
irnir sjö voru ekki skotnir á staðn-
um er þeir voru handteknir. Eng-
inn þeirra var með nauðsynlega
pappíra á sér sem heimila land-
vistarleyfi í Zaire.
Vanar saumastiílkur
óskast
BLÁFELDUR
Siðumiíla 31
Laus staða
Laus er til umsóknar staða læknis við heilsugæslustöð í
Borgarnesi.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 1977. Staðan veitist frá 15.
júní 1977.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamólaráðuneytið
3. maí 1977.
Utboð - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í
byggingu Engidalsskóla. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings Strandgötu 6, gegn 30 þús-
und króna skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð á sama stað föstudaginn
20. maí kl. 14.
Bœjarverkfrœðingur
Nýkomið:
Tækifæris-
mussur
Tækifæris-
buxur
Mikið úrval
Elízubúðin
Skipholti 5
Erlendar
fréttir
Vegir myndlistarinnar eru órannsakanlegir:
LENDIR CHURCHILL í HÓPI
MEÐ GÖMLU MEISTURUNUM?
Olíumálverk þau sem Sir
Winston Churchill, fyrrum for-
sætisráðherra Breta, málaði í
lifanda lífi virðast ætla að verða
afkomendum hans dýrmætur
arfur þegar fram líða stundir. Nú
eru á einni sýningu saman kontin
50 af verkum hans og eru þau
metin á meira en eina milljón
sterlingspunda.
Sýningu þessa opnaói Charles
Bretaprins í gær. Hún er upp sett
i tilefni af aldarfjórðungs valda-
afmæli Elisabetardrottningar.
Fyrir nokkru voru boðin upp
nokkur af málverkunt Churchills
heitins. Eitt þeirra seldist fyrir
48.000 sterlingspund, — 33.000
meira en búizt hafði verið við!
Sérfræðingar segja, að verk for-
sætisráðherrans fyrrverandi veki
meiri athygli en jafnvel verk
gömlu meistaranna.