Dagblaðið - 06.06.1977, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 1977.
3
Enginnhefur
unnið íslands-
meistarann enn
Jón L. Arnason 16 ára Islands-
meistari í skák hyggst í sumar
efna til fjöltefla í Reykjavík og
nágrenni á vegum Skáksambands
Islands. Má vafalaust rekja fjöl-
teflisáhuga þann er nú ríkir hér á
landi til heimsmetsins sem Hort
setti í fjöltefli hér fyrr í vetur.
Jón hóf fjölteflin á Seltjarnar-
nesi á la.ugardag. Þar vann hann
17 skákir en gerði eitt jafntefli.
1 gær tefldi hann í Hagaskóla.
Þar vann hann 16 skákir en gerði
tvö jafntefli.
Næstu fjöltefli eru sem hér
segir og eru póstsvæðanúmer
látin ráða hverfaskiptingu i
höfuðborginni:
I Miðbæjarhverfi (póstnr. 101)
11. júní í Casa Nova. I Hlíða- og
Teigahverfi (póstnr. 105) 12. júní
í Laugalækjarskóla. t Smáíbúða-,
og Fossvogshverfi (póstnr. 108) í
Skátaheimilinu við Grensásveg. í
Langholts- og Vogahverfi
(póstnr. 104) 19. júní í Voga-
skóla. í Breiðholtshverfi (póstnr.
109) 25. og 26. júní sennilega í
Fellahelli. öll fjölteflin hefjast
kl. 14. Fjölteflin eru öllum opin
gegn 500 kr. gjaldi. Þátttöku ber
að tilkynna í síma 18027 þrjá
síðustu morgna fyrir hvert fjöl-
tefli. Allir þátttakendur fá sér-
stakt viðurkenningarskjal.
- BH
Ásakanir um „fjármálasoðaskap” Kröflunefndar:
Viðskiptin við Bflaleigu
Akureyrar voru upp á
10 milljdnir — ekki 41
—og brennivín var ekki keypt fyrir þr jár milljonir, segir
FÁ MJÓLK SEM ORÐIN ER
OF GÖMUL TIL NEYZLU
Mjólkurmál Vestmannaey-
inga hafa lengi verið í miklum
ólestri. Vonir voru bundnar við
að Herjólfur hinn nýi gæti þar
bætt nokkuð um og flutt mjólk-
ina bæði nýja og kalda til Eyja.
Þær vonir hafa þó enn sem
komið er ekki rætzt og nú fá.
Vestmannaeyingar mjólk sem
er orðin of gömul til neyzlu.
Önnur matvara er nokkuð
undir sömu sök 'seld en minni
skaði hlýzt þó af því.
Bæjarráðið í Eyjum hefur af
þessum málum þungar áhyggj-
ur og hefur gert ályktun þess
efnis að málunum verði kippt í
lag svo fljótt sem þess er nokk-
ur kostur. DS.
Sdlnes Kröflunefndarformaður
Jón G. Sólnes, formaður
Kröflunefndar, segir það helber
ósannindi Vilmundar Gylfasonar
að Kröflunefnd hafi undirritað
„gríðarstóran samning" við Bíla-
leigu Akureyrar, eins og Vil-
mundur segir í kjallaragrein
sinni í Dagblaðinu sl. föstudag.
Birtir Vilmundur staðfestar tölur
um 41 milljón kr. viðskipti
nefndarinnar og Orkustofnunar á
tveimur árum, 1975 og 1976.
„Þarna var enginn samningur
gerður," sagði Jón G. Sólnes,
þegar DB sneri sér til hans í gær
vegna greinar 'Vumundar og
þeirra ásakana sem í henni
birtast. „Viðskipti Kröflunefndar
Vestmanna-
eyingar
úthaldsgóðir
ískemmt-
anahaldinu
Hin hefðbundnu hátíða-
höld sjómannadagsins fóru
þokkalega fram í Vest-
mannaeyjum samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
Þó var gífurleg ölvun í
bænum um helgina, sérstak-
lega á föstudagskvöld, enda
hafði verið óvenjumikil sala
í áfengisútsölunni þann dag.
Ekki urðu þó teljandi
árekstrar eða slys, aðeins
nokkrir pústrar í heima-
húsum — flytja þurfti eina
tvo á slysadeild eftir að þeir
höfðu dottið heima hjá sér
vegna ölvunar.
„Það er mikið úthald sem
fólk hefur,“ sagði vakthaf-
andi lögregluþjónn í Vest-
mannaeyjum í samtali við
DB i gær. „Um klukkan hálf
sjö í morgun var fölk enn á
götunum."
Veður var gott í Eyjum
um helgina, stillt en nokkuð
kalt í gær og sólarlaust
framan af degi.
I gærkvöldi áttu að vera
sjómannadansleikir í
tveimur danshúsum og ráð-
gert að dansa til kl. 4 um
nóttina!
- A.Bj.
við Bílaleigu Akureyrar voru allt
önnur en Vilmundur Gylfason
lætur liggja að. Ég skal nefna
nákvæmar tölur um þessi við-
skipti. 1975 greiddi Kröflunefnd
Bílaleigu Akureyrar eina milljón,
sex hundruð.og tuttugu þúsund,
níu hundruð fjörutíu og eina
krónu (1.620.941,00). 1976
greiddi nefndin átta milljónir
fimm hundruð sextíu og sjö
þúsund þrjú hundruð fimmtíu og
eina krónu. Þetta fé á að hafa
verið notað til að kaupa víxilat-
kvæði fyrir Jón Sólnes. Annars
kemur' þetta manni ekki á óvart
frá mönnum sem hafa atvinnu af
rógi og persónuníði."
Vísaði Jón þar til eftirfarandi
klausu í grein Vilmundar um við-
skiptin við Bílaleigu Akureyrar:
„Um viðskipti af þessu tagi er
ekki nema eitt að segja: Þetta er
þjófnaður af almannafé. Víxlaat-
kvæðin verða með hverju árinu
frekari til fjárins."
Jón G. Sólnes sagði þessar tölur
auðveldlega sýna að það væri ekki
Kröflunefnd, sem átt hefði mikil
viðskipti við Bílaleigu Akureyrar,
heldur Orkustofnun. „Þeir eiga
31 milljón af þessu," sagði Jón.
„Og ég skrjfaði ekki undir það.
Taldi Jón 10 milljón króna bif-
reiðakostnað Kröflunefndar á
tveimur árum „vel forsvaranlegt
miðað við öll þessi umsvif sem
eru mest fyrir þær vísindalegu
kröfur sem hafa verið gerðar."
Fréttamaður DB spurði Jón
Sólnes einnig um risnukostnað
Kröflunefndar í reikningum
1976, en hann er tilgreindur um
þrjár milljónir. Alþýðublaðið
talar um „þriggja milljón króna
brennivínskostnað" í slúðurdálki
sínum i gær. Jón kvaðst ekki hafa
hugmynd um hver risnu-
kostnaður Kröflunefndar hefði
verið á síðasta ári. „En þetta er
miklu meira en bara brennivin,"
sagði formaður Kröflunefndar.
„Víst höfum við keypt brennivín,
mikil ósköp, en ekki fyrir neinar
þrjár milljónir."
Jón sagði hafa verið gestkvæmt
við Kröfluvirkjun, þar sem
Kröflunefnd hefur aðalbæki-
stöðvar sínar, og það væri ekki
gott að geta ekki gert vel við gesti,
„eins og til dæmis ef ráðherrar
koma með einhverja fylgifiska,
það er erfitt að neita þeint um
mat.“ Jón sagði einnig að þar sem
erfitt væri oft að útvega mörgum
mat í einu hefði oft verið boðið
upp á drykk í staðinn. „Og það má
þó segja það um brennivínskaup,
þeir peningar skila sér í ríkiskass-
ann aftur."
ÓV
Stórkostlegt
tilbo&
á framköllun—örugglega það bezta
Ný litfilma l||k INTERCOLORII:
Myndaalbúm
Með hverri framköllun fáið þér án Og hér er aukabónus: Þér fáið i hvert
nokkurs aukagjalds nýju Intercolor II sinn mjög skemmtilegt vasamynda-
litfilmuna sem tryggir bjartari og albúm án aukagjalds.
betri litmyndir en nokkru sinni fyrr.
Allarmyndir
framkallaðor á
^rnaitt Í3
nýja matta pappfrinn sem atvinnuljós-
myndarar nota til að tryggja bezta
árangur.
Sjáið verðlistann:
Við bjóðum yður örugglega beztu kjör-
in og beztu þjónustuna. Og við ábyrgj-
umst það!
Framköllun 20 myndir.
Verðlisti með litfilmu og vasamynda-
albúmi innifaiið:
Venjulegt búðarverð:
2.890
0KKAR VERÐ
2.450
Verzlið h já okkur, það borgar sig
myndiójgn
ASTpORV
Hafnarstræti 17 og Suðurlandsbraut 20