Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.06.1977, Qupperneq 8

Dagblaðið - 06.06.1977, Qupperneq 8
s UrtUDLAWlW. IVIAIXU Xj. O UiXl 15f/ /. vanainn er leystur með sjálfvirkrisorptunnufærslu! STÁLTÆKIsf. sími27510 ALLIR sem búa í fjölbýlis- hiísum kannast við þetta VANDAMÁL... Fiat 128 74. Blár„ ekinn 53 þ. km, ný- sprautaður. Góður bíll. Datsun dísil árg. 71. Grœnn. Toppbíll, ekinn 25 þ. km á vél, nýspraut- aður, nýir demparar o.fl. Óskum eftir Dodge Dart Swinger árg. 71—74. Opið frá kl. 9-7 — Laugardaga kl. 10-4 KJÖRBÍLLINN Sigtúni 3 — Sími 14411 TILBONAR Wí 3 Mítl.lll PASSArWNDIR m %. o:pi© i $ ) C : QJE mÆ Fornt stef með nýmóðins ívafi Gene W'ilder og Roy Kinnear berjasi parna meo merkjum íonaðarmanna í götu einni í Lundúnum. Framleiðandi: Richard A. Roth. Höfundur handrits, leikstjóri og aðalhlutverk: Gene Wilder. Frá 1975 í Nýja bíói. Ef menn skyldu ekki hafa vitað það, þá átti hin fræga söguper- sóna leynilögreglusagnanna, Sherlock Holmes yngri bróður að nafni Sigerson. Þessu er a.m.k. haldið fram í kvikmyndinni ,,hinn færari bróðir Sherlock Holmes". Ekki veit ég hvort Arthur Conan Doyle, hinn upprunalegi höfundur goðsögunnar um Holmes, hefði gengizt við þessú afkvæmi 20th Century Fox kvik- myndafélagsins sem reynir að framleiða kvikmynd í sama anda og sögurnar af Holmes, en með gamansömu ívafi. Heldur er söguþráður þessarar kvikmyndar af ómerkilegra tag- inu og stenzt náttúrlega alls engan samanburð við efnið eftir Conan Doyle. Það er sjálfsagt heldur ekki hægt að ætlast til þess af gaman- og ærslamynd að söguþráðurinn sé upp á marga fiska. En því miður er gamanið í kvikmyndinni ekki alltaf svo skemmtilegt. Talsvert er um útþynnta ofnotaða kvikmynda- brandara, brezka kynlífskímni (sem er þvi miður af lakara taginu) og aðrar gamlar lummur. Þrátt fyrir hina ýmsu vankanta á þessi mynd sér þó ýmsar ljósar hliðar. Og ein ljósasta hliðin er Marty Feldman. Honum stendur enginn á sporði, með þetta stór- kostlega útlit og þessa líka ljúfu saklausu rödd. Það væri senni- lega sama í hvaða mynd Marty Feldman léki, maður yrði til- neyddur til að hlæja. Leikararnir skila sínu yfirleitt með prýði og þekkir maður þar fjölmörg andlit úr engilsaxnesk- um kvikmyndum sem sýndar hafa verið hér síðasta áratuginn, gamalgrónir leikarar sem vafa- laust hverfa margir brátt af sjónarsviðinu, t.d. þeir Leo Mckern og Roy Kinner sem fara brátt að verða of gamlir fyrir þau hlutverk sem hæfa þeim. BH EKKINÚNA FÉLAGI Fyndin misskilningsmynd Ekki núna félagi (Not Now Comrada). ensk mynd frá EMIO gerfl af Martin C. Schute. Handrít Ray Conney. Aflallaikarar Leslie Phillips. Carol Hawkins og lan Lavender. Eg held að mér sé óhætt að segja að ég hef sjaldan hlegið meira í bíói en að myndinni Ekki núna félagi. Hinn brezki húmor, sem við þekkjum orðið vel úr þáttum eins og Hótel Tindastóli, gneistaði þar og ég hef sjaldan séð takast betur. Aðrir kvikmyndahússgestir virtust þó ekki kunna nærri því eins vel að meta hann og ég því oft var ég sú eina sem hló. Myndin hefur verið gerð með skemmtigildið eitt fyrir augum og rangt væri að dæma hana út frá nokkru öðru en skemmtigildi. Hvað gerir það til þó persónurnar séu hvergi til í raunveruleikanum ef hægt er að hlæja að þeim? Söguþráðurinn er í stórum dráttum sá aö rússneski ballett- dansarinn Rudi sem staddur er í Englandi ásamt fleiri dönsurum verður ástfanginn af nektardansmeynni Barböru. Þau leggja á ráðin um flótta Rudis því auðvitað vill hann ekki fara heim til „vondu kommanna". Flóttinn lendir þó i tómum misskilningi og hlægilegum uppákomunt i stíl við Fló á skinni. Til þess komast hjá því að greiða úr misskilningnum notar höfund- urinn auðveldustu leiðina, lætur alla hlaupa út af sviðinu og taka vandantálin með sér. Það er mesti gallinn við myndina. hversu „auðveldur" þessi endir er, betra heföi veriö að mínu mati að greitt væri úr öllu saman. En hvað um það, allur misskilningurinn var óvenju v.el gerður og skemmtilegur. Leikarar voru flestir mjög sæmilegir í hlutverkum sínum þó á köflum væri nokkuð of- leikið. Sérstaklega gerði sá sem lék ballettdansarann sig sekan um ofleik. Hvað sem því líður myndi ég hiklaust ráðleggja öllum þeim sem kunna að meta brezka kímni að sjá Ekki núna félagi. -DS. Til þess að hjálpa Rússanum við flóttann fékkst virðulegur rikis- starfsmaður til þess að skipta á fötum við hann og vitaskuld ruddist löggan inn á þá í þeirri svipan.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.