Dagblaðið - 06.06.1977, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 06.06.1977, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MANUDA.GUR 6. JUNl 1977. I 4 Iþróttir Iþróttir Íþróttír Iþróttir Blikarnir hafa hækkað flugið! —og unnu auðveldan sigur á Fram 4-1 á laugardag Reykjavíkurmeistarar Fram verða varla úr þessu með i keppninni um íslandsmeistara- titilinn í knattspyrnu í ár. Aðeins eitt stig úr fjórum síðustu leikj- unum er sorgleg uppskera Fram- liðsins að undanförnu. Enn eitt tap á laugardag gegn velleikandi liði Breiðabliks á gullfallegum grasvellinum í Kópavogi. Blikarnir sigruðu með 4-1 og höfðu þann neista, sem til þurfti. Léku oft skemmtilega saman og unnu verðskuldaðan sigur. Sigur, sem þó var í stærra lagi.— Leik- menn Fram hefðu auðveldlega átt að komast hjá þremur markanna. Breiðablik hins vegar að skora í öðrum tilfellum. Fram, án síns bezta manns, Péturs Ormslev, sem var í leik- banni, var slakt í þessum leik. Aðeins bakverðirnir Rafn Rafns- son, sem er að verða sterkasti maður liðsins, og Símon Krist- jánsson léku af eðlilegri getu. Blikarnir, sem byrjuðu einnig illa gengu á lagið og náðu yfir- höndinni í síðari hálfleik. Einar Þórhallsson var yfirburðamaður í liðinu, en Gunnlaugur Helgason, Sigurjón Randversson, sem • Alexander Grigoryev, Sovét- ríkjunum, setti nýtt Evrópumet i hástökki á móti i Riga í gær. Stökk 2.30 metra. Það er einum sm betra en eldra metið, sem Olympíumeistarinn Jacek Wzsola, Póllandi, átti. kominn er í hóp beztu leikmanna Breiðabliks, Þór Hreiðarsson og Jón Orri Guðmundsson stóðu einnig vel fyrir sínu. Fyrri helming fyrri hálfleiks skeði bókstaflega ekkert mark- vert. Leikurinn á núllpunkti hjá báðum liðum. Á 23. mín. urðu Ásgeiri Elíassyni á mistök. Ætlaði að gefa knöttinn aftur til Árna markvarðar Fram — en spyrnti of laust. Ölafur Friðriksson náði knettinum. Árni hljóp á móti hon- um, en Ólafur lyfti knettinum lag- lega yfir hann í markið. 1-0 og við markið hresstust leikmenn beggja liða. Blikarnir voru nærri að skora aftur áður en Fram jafnaði á 38. mín. Ásgeir átti stór- snjalla sendingu á Rúnar Gíslason út á hægri kant. Rúnar gaf vel fyrir og eftir misheppnað úthlaup markvarðar Blikanna, Olafs Hákonarsonar, féll knötturinn hjá Súmarliða Guðbjartssyni sem ýtti honum í markið 1-1. Loka- minútur hálfleiksins sóttu Blikarnir stíft. Varnarmennirnir Gunnlaugur og Einar áttu góð færi, sem þeir nýttu ekki — og Fram virtist ætla að sleppa. Ás- geir náði knettinum og gat gert hvað sem var við hann. En þetta var ekki dagur Ásgeirs. Hann spyrnti beint til Heiðars Breiðfjörð og spyrna hans frá vítateigsbrúninni — utarlega — lenti neðst í markhorninu við stöngina fjær. Feti frá jörðu og Steen Hedegaard ætlar sér að kasta yfir 60 m í kringlukasti í landskeppninni. Á laugardag kastaði hann 58.40 m og bætti árangur sinn um f jóra metra. _ DB-mynd Bjarnleifur. Oskar keppir í öllum greinum — í landskeppninni við Dani íköstum íslenzka landsliðið í lands- keppnina i köstum við Dani á miðvikudag hefur verið valið. Tveir menn frá hvorri þjóð keppa í keppni fullorðinna, en einn í ungliflgakeppninni. Landsliðið er þannig. Kúiuvarp. Hreinn Halldórsson, KR, og Óskar Jakobsson, ÍR. Kringlukast. Erlendur Valdi- marsson, KR, og Öskar Jakobs- son, ÍR, og þeir keppa einnig báðir i sleggjukasti. Spjótkast. Óskar Jakobsson og Stefán Hallgrímsson, KR. Unglingakeppnin. Kúluvarp. Óskar Reykdal, HSK, kringlukast Þráinn Haf- steinsson, HSK, spjótkast Einar Vilhjálmsson, UMSB, og sleggju- kast Asgeir Þór Eiriksson, ÍR. Danir mæta með sína beztu menn í keppnina nema hvað spjótkastarinn Bent Larsen handknattleikskempan kunna — kemur ekki. Dönsku landsliðsmennirnir komu til Reykjavíkur í gær, en landskeppnin verður á miðviku- dag og fimmtudag á Laugardals- vellinum. Hefst kl. 8.15 báða dagana. í liðinu eru: Kúluvarp Michael Henningsen, sem bezt á 17.82 m en hefur varpað 16.89 m í ár. Kjeld Nielsen (15.85 m) I unglingaflokki Jan Hansen (13,65). Kringluka'st Hedegaard og Peder Jan Hansen (56.40). Spjót Karsten Kraghlund, sem bezt á 74.72 m. en hefur kastað 67.10 m í ár og John Solberg (69.94) Unglingakeppnin Gunnar Jensen (66.91). Sleggjukast. Peder Jarl Hansen (59.06) og Kjeld Andreasen (54.70). Arni kom engum vörnum við. Gullfallegt mark Heiðars — en varnarmistök upphafið. I síðari hálfleiknum lék Fram undan snarpri norðangolu og bjuggust þá flestir við, að Ieik- menn liðsins mundu hressast. En það var öðru nær. Rétt í byrjun var þungi I sókn Fram, en ekki skorað — og síðan náðu Blikarnir yfirtökunum. Léku oft skínandi skemmtilega og létu knöttinn vinna. Samleikur í fyrirrúmi. Liðið lék sem samstæð heild, hvað ekki var hægt að segja um leik- menn Fram. Sennilcga áttu Blikarnir að fá víti á 59. mín. þegar Sigurbergur Sigsteinsson braut á Sigurjóni Randverssyni innan vítateigs, þegar Sigurjón var að komast i dauðafæri. Dómarinn Rafn Hjaltalín var á annarri skoðun. Um miðjan hálf- leikinn kom Gústaf Björnsson hjá Fram í stað Ásgeirs — og Vignir Baldursson í stað Sigurjóns, Vinstri, hægri..og Kópavogsvöilurinn er eins og fínasta dansgólf. DB-mynd Bjarnleifur. meiddur, hjá Blikunum nokkru síðar. Og Vignir hafði ekki verið nema nokkrar sekúndur á vellin- um, þegar hann skoraði stórfall- egt mark. Fékk knöttinn á víta- teigslínunni og knötturinn söng í netmöskvum Fram-marksins. Efst í hægra markhornið. Óverjandi. Þar með var sigur Blikanna í höfn en á lokamínútunni ætlaði Símon Kristjánsson að gefa aftur til Árna. Spyrnan var allt of laus. Jón Orri náði knettinum og skoraði auðveldlega fjórða mark Blikanna. Slæmt hjá Símoni — og sorglegt fyrir hann, því að öðru leyti hafði hann átt sinn bezta leik með Fram á keppnistíma- bilinu. Blikarnir hafa nú hækkað flugið mjög í síðustu leikjum — eða frá tapinu slæma í Kópavogi gegn Þór. Það verður gaman að fylgjast með þeim í komandi leikjum. Þaó er kjarni í Kópa- vogsliðinu. -hsím. Víkingur jafnaði úr vrti á lokamínútunni —og Akurnesingar töpuðu fyrsta stiginu á heimavelli Akurnesingar misstu sitt fyrsta stig á heimavelli í 1. deildar keppninni, þegar þeir fengu Víkinga í heimsókn á laugardag. Jafntefli varð 1-1 og voru það nokkuð sanngjörn úrslit eftir gangi leiksins — en litlu munaði, að Akurnesingar fengj,u bæði stigin, því það var ekki fyrr en minúta var til ieiksioka að Víkingar skoruðu sitt mark. Þá var dæmd vítaspyrna á Akur- nesinga og úr henni skoraði Eiríkur Þorsteinsson, fyrirliði Víkings, örugglega. Leikurinn var ekki' mikil skemmtun fyrir áhorfendur, enda leiðindaveður á Akranesi. Hvasst og stóð vindurinn þvert á völlinn — grasvöllinn — og var mest leikið sjávarmegin. Ef knötturinn fór úr leik lenti hann oft langt niður í fjöru. Satt bezt að segja bjóst ég við betri leik milli þessara liða — en enn vantar einhvern neista í framlínu Akurnesinga. Víkingar léku sterka vörn og voru ekki minna með knöttinn. Hins vegar tókst þeim afar illa að skapa sér marktækifæri — nokkuð, sem hefur einkennt Ieik liðsins í allt vor. Fjórða jafntefliö í fimmta leik liðsins í tslandsmótinu varð staðreynd — eftir fjögur jafntetli í fimm leikjum liðsins á Reykja- víkurmótinu. Hins vegar fengu Akurnesing- ar nokkur sæmileg færi í leiknum. — Þeir reyndu þó of mikið háspyrnur inn í vítateig Víkings og varnarmenn Víkings áttu þær allar. Pétur Pétursson fékk gott færi á 15. mín. og á 40. mín. skoraði hann fyrir Akur- nesinga. Karl Þórðarson tók horn- spyrnu og Pétur skallaði í mark. Algjörlega óverjandi og fallegt mark, en yfirleitt einkenndist fyrri hálfleikurinn af miðjuþófi. . Framan af síðari hálfleiknum sóttu Vikingar meir með Óskar Tómasson og Eirík Þorsteinsson sem beztu menn — en mark- tækifærin létu á sér standa. Síðasta stundarfjórðunginn hressust Skagamenn aftur og tvisvar á stuttum tíma fékk Kristinn Björnsson sæmileg færi, sem hann misnotaði. Síðan Karl, en það rann einnig út í sandinn. Á 89. mín. kepptu þeir Jóhannes Bárðarson, Víking, og Björn Lárusson, ÍA, að knettinum innan vítateigs. Björn felldi Jóhannes og dómarinn, Arnar Einarsson, Akureyri, sem komst allvel frá leiknum, dæmi á stundinni víta- spyrnu á Akurnesinga. Það var réttur dómur og úr spyrnunni jafnaði Eiríkur. Þar við sat og Akurnesingar höfðú tapað stigi í sínum fjórða heimaleik í 1. deild- Jón á Stað Alfreðsson var áber- andi bezti maður á vellinum í leiknum og auk hans áttu Jón Gunnlaugsson og Guðjón Þórðar- son sterkan leik í vörn Akur- nesinga. Framlínan var hins veg- ar bitlaus. I liði Víkings báru þeir Óskar og Eiríkur af — og Kári Kaaber kom á óvart í vörninni. -KI' Armann og Þróttur, Neskaup- stað, léku í 2. deild íslandsmóts- ins i knattspyrnu sl. laugardag á Laugardalsvelli. Ármann sigraði 3-0. 1 fyrri hálfleik var leikurinn mjög jafn á báða bóga og fátt um góð tækifæri til bess að skora. i seinni hálfleik Komu liðin ákveðin til leiks á ný. En það var ekki fyrr en 15 min. voru eftir af leiktímanum, að Armann fékk vítaspyrnu og skoraði Jón Hermannsson örugglega. Nokkr- um mín. síðar skoraði Viggó Sigurðsson og á siðustu mín. leiksins fengu Þróttarar þriðja markið á sig, en þar var að verki Sveinn Guðmundsson. h.jóns. EINSTAKLINGSFERÐIR Samvinnuferðir Austurstræti 12 Rvk. simi 27077

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.