Dagblaðið - 22.06.1977, Side 24
frjálst, úháð dagblsð
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNl 1977.
Blotnaði duglega í
höfuðborgarbúum
fgær:
Fjórðungur
mánaðarúr-
komuá
tólf tímum
Rigningin og rokið fór víst
okki framhjá höfuðborgar-
búum í gær. Úrkoman
reyndist líka töluverð eða 10
mm á tólf tímum frá 6 í
gærkvöldi til 6 í morgun. Er
þetta hvorki meira né minna
en fjórðungur af meðal-
úrkomu í júnímánuði! Meira
rigndi þó á Keflavíkurflug-
velli. Þar rigndi 21 mm á
sama tíma.
Útlit er fyrir rigningu um
meirihluta landsins en spáð
er skúraveðri á vestanverðu
landinu seinnipartinn í dag.
Það er kannske óþarfi að
taka fram að það verður
yfirleitt þurrt veður eða að
minnsta kosti lítil úrkoma á
Norður- og Austurlandi.
A.Bj.
Vörubfll
ofan í
Svínafellsá
Vörubifreið frá Raf-
magnsveitum Ríkisins lenti
út í Svínafellsá í Öræfum
seint í gærkvöldi. Bifreiðin
kom, hlaðin einangrurum,
akandi að brúnni og skipti
það engum togum, þegar
hún var komin út á brúna
miðja beygði hún skyndilega
til hliðar, braut handriðið og
ók út í ána. Lenti bíllinn á
hvolfi úti í ánni, bifreiðar-
stjórinn hentist út úr bíln-
um og rankaði við sér
skömmu seinna, svo til
ómeiddur. Gat bifreiðar-
stjórinn, Vilhjálmur
Magnússon frá Egilsstöðum,.
farið heim til sín eftir að
læknir hafði saumað saman
skurð á fæti hans.
Talið er að bilun í stýris-
búnaði bifreiðarinnar hafi
valdið slysinu. Bílstjóra-
húsið lagðist alveg saman og
var stýrið gengið inn i bíl-
stjórasætið. Má búast við að
bílstjórinn væri inun verr
farinn ef hann hefði verið
bundinn í öryggisbelti. -BH.
Hafnarfjörður:
300manns bíða
eftir síma í eitt ár
„Þeir sem sækja um síma
núna geta sennilegast fengið
hann í júnímánuði 1978,“ sagði
Magnús Eyjólfsson stöðvar-
stjóri Pósts og síma í Hafnar-
firði er hann var inntur eftir
biðtímanum eftir nýju símtæki.
Ástæðuna kvað Magnús vera þá
að númer þau er Hafnar-
fjarðarstöðin hefur á að skipa
væru uppurin og ekki væri von
á viðbót við stöðina fyrr en að
ári.
Sl. haust kláruðust númerin
og bíða nú um 300 manns eftir
að fá síma í Hafnarfirði. Um
síðustu áramót var pöntuð
viðbót við símstöðina frá L. M.
Ericsson í Sviþjóð en þar er
hinn vanalegi afgreiðslufrestur
um 13 mánuðir.
Þegar nýja viðbótin kemur á
næsta ári fjölgar símanúmerum
í Hafnarfirði um 1000 og vonast
yfirvöld Pósts og síma til að það
dugi í tvö til þrjú ár.
-BH.
Þrengslavegur mjókkaður
fyrir 14 milljónir króna í ár
mjókkun alls vegarins á að vera lokið fyrir haustið 78
Þrengslavegurinn milli
Svínahrauns og Ölfuss, er nú
lokaður þar sem unnið er að
mjókkun hans á allnokkrum
kafla. Næsta sumar á svo að
klára það sem eftir er.
Hefur þetta vakið nokkra
undrun austanmanna og sneri
blaðið sér til Jóns Birgis Jóns-
sonar, deildarverkfræðings hjá
Vegagerð ríkisins til að
spyrjast nánar fyrir um þetta.
Hann sagði að á sínum tíma,
þegar ákveðið var að byggja
Þrengslaveginn, hafi verið
miðað við að hann yrði
aðalvegur austur fyrir fjall og
hafi hann því verið byggður
líklega um 10 metra breiður.
Það var fyrir tíð Jóns í þessu
starfi.
Þá væri það með þennan veg
eins og aðra malarvegi, að hann
væðist út, eða breikkaði enn
með tímanum, og hafi hann
sumstaðar verið orðinn mjög
breiður.
Vegna þess og eins þar sem
búið væri að byggja nýjan
aðalveg austur um Hellisheiði,
þyrfti vegurinn ekki að vera
eins breiður og upphaflega var
ætlað. Yrði hann því
mjókkaður í 7,5 til 8 metra og
hækkaður þar sem á þyrfti að
halda miðað við reynslu af snjó-
þy.ngslum undanfarinna ára.
Áætlað væri að vinna fyrir eitt-
hvað um 14 milljónir króna í ár
að þessu. Að lokum sagði hann
þetta spara stórfé í viðhaldi
vegarins þar sem yfirborð hans
minnkaði svo mjög.
-S.G.
I Grjótaþorpi:
Kaff i í garðinum á
góðviðrisdögum
Hreppsnefndin í Grjótaþorpi
ákvað það á fundi sínum aö mál
væri að Hafizt væri handa og lag-
fært í þorpinu. Ibúar í Grjóta-
þorpi tóku því til óspilltra
málanna við að snyrta og hafa
gert lítinn og snyrtilegan garð
þar sem áður var ruslahaugur og
ónýtt bílhræ. Þar er nú búið að
hlaða upp garða -og tyrfa. A
góðviðrisdögum er þvi upplagt að
fá sér sæti í garðinum og leggja á
borðin, sem íbúarnir hafa komið
þar fyrir.
Þorsteinn Eggertsson, sem er
einn af hreppsnefndarmönnum
og kunnur fyrir texta sína sem
hann samdi fyrir hljómsveitina
Hljóma á sinum tíma, sagði að
menn hefðu það á stefnuskrá
sinni að reyna að koma í veg fyrir
að hverfið yfirfylltist af bilum.
Þar stæðu nú bílar allan daginn,
svo ekki væri hægt að þverfóta i
Grjótaþorpi. Hann sagoi einnig að
ef eldur kæmi upp í hverfinu,
kæmist slökkviliðið alls ekki að
mörgum húsum, 'því að bílum
væri lagt um allt og flestum ólög-
lega.
„Þetta er rétt að byrja hjá
okkur og við höfum hugsað okkur
aö sýna fram á að með samstilltu
átaki er hægt að gjörbreyta
umhverfinu hér. Helzt viljum við
auðvitað losna alveg við bílana og
gera skemmtilegan afgirtan garð
þar sem stæðin eru núna, t.d.
fyrir krakkana að leika sér í."
sagði Þorsteinn Eggertsson. -KP.
>
Tveir úr hreppsnefndinni: Þor-
steinn Kggertsson og Helgi
Magnússon í garðinum bak við
Kjaiaköttinn. — DB-mynd
llörður Vilhjálmss.
Verð-
launa-
kirkjan
í Breið-
holti
Á myndinni sjáum við likan
fyrirhugaðrar kirkjubyggingar
Breiðholtssafnaðar sem ætlunin
er að rísi í ,,mjóddinni“ svo-
nefndu, sem er auða svæðið i
horninu sem myndast milli Breið-
holtsbrautar og Reykjanesbraut-
ar.
Efnt var til samkeppni um
kirkjubygginguna og urðu þar
hlutskarpastir arkitektarnir
Guðmundur Kr. Guðmundsson og
Ferdinand Alfreðsson. Voru
fyrstu verðlaun 700 þúsund
krónur.
Alls voru sendar inn 19 tillögur
og ætla má að samtals hafi um 40
manns unnið að tillögugerðinni.
BH(DB-mynd Sv..)