Dagblaðið - 04.07.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. M ANUDAGUK 4. JULÍ 1977.
7
VINSTRISTEFNA OG VEÐURSPÁR
„Aðeins meira til vinstri, —
nei, neinei.... aðeins austar,
eilítið austar...“ Fyrir-
skipanirnar hljómuðu gegnum
skóginn á Hallormsstað. Hvað
var að gerast? Jú, við komumst
brátt að þvi. Flokkur starfs-
manna Skógræktarinnar var
þarna að vinna við að planta
trjám í þráðbeina röð — og
maðurinn sem gaf þessar há-
pólitísku fyrirskipanir reyndist
vera kollega blaðamannanna,
Þorgrímur Gestsson.
„Við köllum þetta að gefa
flokkslínuna,“ útskýrði Þor-
grímur og brosti.
I þessum hópi flokkslínu-
manna var annar merkur
maður, Hrafn heitir hann
Sveinbjarnarson, veðurglöggur
með afbrigðum. Sigurður
Blöndal sagði okkur þá sögu til
sannindamerkis um þetta að í
vetur hefði Hrafn sagt sem svo:
„Vorið kemur mánudaginn 15.
mai klukkan tvö“. Þarna
skakkaði ekki miklu, vorið kom
bókstaflega sex klukkutimum
fyrr þennan sama dag. Þá tók
við dýrðartími, suðræn sól og
18-20 stiga hiti, en svo snerist
hann í norðanbálið. Hrafn hafði
víst líka spáð því hvenær
batinn kæmi og það stóðst líka.
Veðurstofan ætti að hafa slíkan
mann í þjónustu sinni, eða hvað
finnst ykkur, lesendur góðir?
En það eru ekki bara karl-
Þær vinna við að hiúa að plöntunum í Hallormsstaðaskógi, góð
sumarvinna sem unga fólkið áHéraði fær, enda bera þær þess vott
að hafa bakazt í sólskininu. DB-invndir R. Th. Sig.
Þorri (Þorgrímur Gestsson) fremstur á myndinni, næstur honum,
með alpahúfu og í stuttbuxum, er Hrafn veðurspámaður Svein-
bjarnarson.
menn að vinnu í skógræktinni
þessa dagana. Þar eru ungar og
fríðar stúlkur sem áreiðanlega
hafa hressandi áhrif á trjágróð-
urinn.
Við látum fylgja þessu grein-
arkorni myndir af stúlkunum
hans Sigurðar Blöndals í
Hallormsstaðaskógi.
-JBP-
Færeijjar
Þaö sem gerir Færeyjaferö aö ævintýri er hin
mikla náttúrufegurö, ásamt margbreytilegum
möguleikum á skemmti- og skoóunarferöum um
eyjarnar, og síöast en ekki síst hiö vingjarnlega
viðmót fólksins.
Ef þú ert einhvers staóar velkominn erlendis - þá
er þaö í Færeyjum.
Giænlaiul
Ferö til Grænlands - þó stutt sé - er engu lík. í
Grænlandi er stórkostleg náttúrufegurö og sér-
kennilegt mannlíf, þar er aö finna hvor tveggja í
senn nútíma þjóðfélag eins og viö þekkjum þaö -
og samfélagshætti löngu liðins tíma.
Stórskemmtilegar feröir
sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa
og félagasamtök.
Spyrjiö sölufólk okkar, umboösmenn eöa
feröaskrifstofurnar um nánari upplýsingar.
FLUCFÉLAC
ÍSLAJVDS
LOFTLEIÐIR