Dagblaðið - 04.07.1977, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. JÚLl 197V.
ÚTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir til-
boðutn í lögn olíumalarslitlags á eftir-
talda vegarkafla:
Hafnaveg, nýlögn.
Njarðvíkurveg, ----
Vogaveg, ---
Þingvallaveg, ---
Suðurlandsveg, ---
Eyrarbakkaveg, ---
Reykjanesbraut, yfirlögn.
Hafravatnsveg, ---
Suðurlandsveg, yfirlagnir.
Samtals er um að ræða um 72.000
ferm nýlögn og um 74.000 ferm
yfirlögn.
Útboðsgögn verða afhent gegn
10.000 kr. skilatryggingu á Vegamála-
skrifstofunni (hjá aðalgjaldkera),
Borgartúni 1, Reykjavík, frá og með
þriðjudeginum 5. júlí 1977.
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 14
fimmtudaginn 14. júlí nk.
29555-----------------------------------------
Opið alla daga
virka daga fró 9 til 21
um helgar fró 1 til 5.
Höfum fjársterkan kaupanda að 3-4 herb. sérhæð með
góðum stofum á 1. eða 2. hæð.
Hefur 6 inilljónir við undirritun kaupsamnings.
Seljendur athugið
Höfuin kaupendur að mörgum öðrum góðum eignum
víðsvegar um borgina.
Eignanaust
Laugavegi 96 (við Stjörnubió')
Síini 29555
Hjörtur Gunnarsson
Bogi Ingimarsson
Svanur Þór Vilhjálinsson hdl.
Aöframan:
Ford Broneo
Datsun 220
Benz
Chevrolet
Buick
Opel Rekord
Plymouth
Vloskvitch
Volga
Lada
Cortina
Dodge
Range Rover
Volvo F 86
og fleiri
McPherson
fram-
höggdeyfar:
Cortina
Escort
Capri
og fleiri
Stýris-
höggdeyfar:
Land Rover
Volvo F88
Seania
og fleiri
Kiguin von á höggde.vfum í
ýinsa fleiri hila, |>ar á ineðan
Benz 309.
HOGGDEYFAR
fyrirliggfanúi
meðal annars í eftirtalda bila:
Aðaftan:
Ford Bronco
Benz
Opel Rekord
Moskvitch
Volga
Lada
Falcon
Ford Comet
Taunus
Rambler Ciassic
Ambassador
Vlatador
Fíat 124
Escort
Oldsmobile
Range Rover
og fleiri.
LOA D-A-JUSTERS:
höggdeyfar sem
erumeðutaná
liggjandi gormum.
Auka burðarþol
bílsins án þess að
gera hann hastan:
Dodge Coronet
Vlazda 929
Plvmouth Fury
og fleiri
Utveguin Koni höggde.vfa
í alla híla og einnig fíest
mótorh.jól.
Póstsendum um allt land.
ARMULA 7 - SIMI 84450
Tyrkland:
Stjórnarskipti
— Ecevit segir af sér
Ríkisstjórn Tyrklands varð
að segja af sér i gær vegna þess
að þingið felldi stuðningsyfir-
lýsingu við stjórnina. Forsætis-
ráðherrann" Bulent Ecevit
verður því að láta völdin af
höndum til fyrirrennara síns,
Suleyman Demirel, að því er
virðist. Flokkur hans vann
mikinn sigur fyrir um það bil
fjórum mánuðum, og.í kjölfar
þessara kosninga ber ósigur
Ecevit að.
Það var Ecevit sem stjórnaði
aðgerðum á Kýpur árið 1974.
Þá um sumarið sendi hann her-
menn þar á land.
Ecevit hóf ungur afskipti af
stjórnmálum. Hann leitaði fyrst
fanga í flokki Demirels, Lýð-
veldisflokknum. Þar hefur
hann starfað ötullega síðan og
hefur flokkurinn færzt mjög til
vinstri í tíð Ecevit.
Ecevit hefur alltaf viljað
vera látlaus og hefur gert sér
far um að lifa einföldu lífi.
Þegar hann tók við völdum í
Tyrklandi neitaði hann að búa í
forsætisráðherrabústaðnum og
valdi fremur lítið húsnæði.
Hann vildi heldur ekki nota
stóra bíla stjórnarinnar og ók í
litlum, ódýrum bílum. Ecevit er
löngu orðinn þekktur rithöf-
undur og skáld í Tyrklandi.
Hann komst á þing mjög ungur,
eða 32 ára, og hafði þá starfað
mikið að ritstörfum. Hann
talar ensku mjög vel og hefur
miklar mætur á mörgum
enskum rithöfundum. Hann
yrkir sjálfur mikið á moður-
máli sfnu, en einnig hefur hann
þýtt fjöldann allan af ljóðum
t.d. eftir T.S. Eliot og Ezra
Pound.
AMIN ER VILLIDÝR
— segir fyrrverandi dómsmálarádherra íUgMda
Fyrrverandi dómsmálaráð-
herra Úganda, sem hefur flúið
land og er í Bretlandi, sagði í
viðtali við brezka blaðið Daily
Mirror að forseti landsins, Idi
Amin, hefði tryllzt úr reiði þegar
árásin var gerð á Entebbe-
flugvöll. Hann hafi skipað svo
fyrir, eftir árásina að allir sem
væru að hlæja skyldu teknir
fastir vegna þess að fólki í land-
inu leyfðist ekki að hlæja að
óförum hans. Þeir sem voru
staðnir að þessu voðaverki, voru
umsvifalaust teknir og skotnir.
Fyrrverandi dómsmálaráðherr-
ann Godrey Lule sagði að Amin
hefði verið eins og villidýr eftir
árás ísraelsmanna á Entebbe-
flugvöllinn. Fólk í Úganda var
hins vegar ánægt með að forset-
inn hefði verið auðmýktur á
þennan hátt, sagði fyrrverandi
dómsmálaráðherrann. Hann var
ráðherra í fjögur ár.
Idi Amin hefði borizt það til
eyrna að fólk væri ekkert óánægt
með niðurlægingu hans. Þess
vegna skipaði hann hersveitum út
á strætin og fólk var handtekið
fyrir það eitt að brosa, svo þeir
sæju. Godrey Lule sagðist hafa
sjálfur séð það með eigin augum
að um fimmtíu manns hefðu verið
hgndteknir og leiddir í burtu.
Síðar hefði hann frétt að
fólkið hefði verið skotið, vegna
þess að það var að grínast og það
sást til þeirra af hermönnum
Amín.
Ráðherrann fyrrverandi segir
að tvö til þrjú hundruð manns
hafi verið skotin á þennan hátt í
Úganda.
Maðurinn sem var á vakt í flug-
turninum, þegar 'árásin var gerð,
lézt í henni. En Amín vildi hefna
sín. Hann tók þá menn sem voru
á vakt á daginn í turninum og lét
leiða þá fyrir aftökusveit.
Pakistan:
ÓSAMKOMULAG UM FRAM-
KVÆMD nVRRA K0SNINGA
- Forsætisráðherra Pakistan
Zulfikar Ali Bhutto hefur sak-
að stjórnarandstöðuna um að
hafa gengið á bak orða sinna
varðandi umræður um nýjar
kosningar og að þær skuli halda
nú í október.
Bhutto sagði á blaðamanna-
fundi í gær að stjórnarand-
stöðuflokkarnir stæðu ekki við
það sem um hefði verið samið
sl. laugardag. Nú hafi þeir köm-
ið fram með tíu atriði í viðbót
sem þeir segja að nauðsynlegt
sé að ræða áður en ákveðið
verður hvenær gengið skuli til
kosninga að nýju.
Talsmaður stjórnarandstöð-
unnar, Asghar Khan, sem var
yfirmaður í flugher landsins,
vildi ekki láta hafa neitt eftir
sér um þetta atriði. Hann sagði
að ennþá væru mörg atriði sem
þyrfti að ræða, til að réttmætar
kosningar fengjust í fram-
kvæmd.
Bhutto sagði að það væru
ekki allir á eitt sáttir í stjórn
hans um það að hlusta á allar
kröfur stjórnarandstöðunnar.
Asghar Khan, lét hafa það
eftir sér að allir stjórnarand-
stöðuflokkarnir, en þeir eru
níu talsins, yrðu að samþykkja
tillögur Bhutto um tilhögun
kosninganna.
Stofnandi Svörtu hlébarðanna:
Það átti að myrða mig
—til að binda endi á samtök Svörtu
hlébarðanna
Stofnandi Svörtu hlébarðanna,
Huey Newton kom í gær til
Kaliforníu. Þar var honum þegar
i stað stungið inn og ákærður um
morð og árás frá því árið 1974.
Newton, sem hefur verið í út-
legð á Kúbu í þrjú ár, kom til
Erlendar
fréttir
REUTER
Toronto í Kanada fyrir skömmu.
Þar var hann handtekinn og yfir-
völdin héldu honum nokkurn
tíma.
Þegar Newton kom frá Van-
coover í Kanada, beið hans hópur
fólks, nokkur hundruð - manns,
sem hyllti hann mjög.
Newton fékk tækifæri til þess
að láta frá sér fara nokkur orð.
Hann sagði að hann væri nú kom-
inn til Bandaríkjanna til þess að
vinna að miklum breytingum í
landinu. Hann sagði að þegar
hann hafi yfirgefið landið, hafi
hann komizt að raun um það að
skipulagt hafi verið að myrða
hann til að koma Svörtu hlébörð-
unum endanlega fyrir kattarnef.
Newton fullyrti að hann hefði
aldrei myrt neinn og hann sé
sannfærður um það að hann fái
réttlátan dóm. Hann segir að
bandarískt þjóðfélag hafi gjör-
breytzt síðan á árunum milli 1960
og ’70 og hann trúi þvi að hann
feigi eftir að fá réttlátan dóm og sé
kominn til að berjast á nýjan leik,
við þau öfl sem hann segir enn
vera í vegi fyrir þvi að Bandankin
séu eins og bezt verði á kosið.
Brasilía:
Sendiherra
myrtur
— leigumorðingjar
frömdu verknaðinn
Tveir menn sem skutu til
bana ambassador Haiti í
Brasilíu héldu því fram við
yfirheyrslur að þeir hefðu
tekizt þetta á hendur vegna
beiðni fyrsta sendiráðsritar-
ans. Hann hafi beðið þá um
að skjóta ambassadorinn og
borgað þeim fyrir verkið.
Sendiráðsritarinn neitar
öllum ásökunum mannanna
tveggja og segir að hann eigi
engan þátt i þessu ódæðis-
verki.
Ambassadorinn var skot-
inn í hnakkann, þegar hann
var að koma út úr hóteli
nokkru í borginni Salvador 1
gær.
Mennirnir sem handsam-
aðir voru fyrir verknaðinn
segja að fyrsti sendiráðsrit-
arinn hafi lofað að greiða
þeim um þrjú þúsund og
fimm hundruð dollara fyrir
vikið. Þeir hafi hins vegar
aðeins fengið rúmlega eitt
hundrað, eða fyrir ferðinni
til Salvador.