Dagblaðið - 17.10.1977, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 17.10.1977, Blaðsíða 21
DAC.BLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. OKTÖBKR 1977. 21 Jean Marsh: RÓSA Jean í Ernlnum. Þar lelkur hún þýzkan njósnara og ferst það vel úr hendi. Eins og Jean er f rauninni, frjálsleg og eðlileg stúlka. hún fólki mjög a óvart. Það bjóst við að hún væri nokkurs konar nútímaútgáfa af Rósu vinnustúlku í Húsbændum og hjúum. En Jean reyndist vera algjör andstæða þess. Hún seg- ist sjaif vera ósköp frjálsleg stúlka sem til dæmis gengur aldrei 1 brjóstahöldurum eða öðrum undirfötum. Hún drekki, reyki og fari út með allt að þremur karlmönnum í einu, reyndar öllum samstarfsmönn- um sínum við kvikmyndir. „Ég akvað þegar ég hafði lokið við að leika í Húsbændum og hjúum að nú skyldi ég taka upp algerlega nýtt líf,“ segir hún. „Og það gerði ég. Þegar ég kom til Bandaríkjanna naut ég þess að klæða mig i skrýtin föt og fara mikið út að skemmta mér. Ég var eins og unglingur. Það er eitthvað við New York sem gerir fólk miklu glaðara en London gerir. Mér líður eins og kengúru í New York, ég hoppa og stekk í gleði minni." Jean hefur verið gift en skildi við mann sinn fyrir nokkrum arum. Hún viður- kennir að hún geti vel hugsað sér að giftast aftur en þar sem hún geti ekki eignazt börn séu líkurnar ekki miklar. Annir hennar við leikinn dragi líka úr henni kjarkinn með það því hún segir það sína skoðun að konur verði alltaf að einhverju leyti að laga sig að starfi manna sinna. Það þýði ekki að bjóða hvaða karlmanni sem er upp a það að hanga aftan I konum, sem ferðast um allar trissur. Helzt væru það rithöfundar, sem sættu slíkum afarkostum. -DS-þýddi. Eins og við þekkjum hana úr Húsbændum og hjúum. „Michael Caine sagði eitt sinn við mig fyrir löngu: í Englandi eru aðeins tvær stúlkur sem gætu orðið stjörnur. Julie Cristie og þú.“ Það var Jean Marsh sem sagði þessi orð í blaðaviðtali sem tekið var við hana í tilefni af leik hennar í myndinni Örninn er setztur sem verið er að sýna í Hafnarbíói. Þar lék Jean a móti Michael Caine. En aðallega er Jean þekkt hér a landi fyrir leik sinn í þattunum Húsbændur og hjú. Þeir þættir eru brezkir en stjarna Jean skín enn skærar í Bandaríkjunum en nokkru sinni í Bretlandi. Fyrir leik sinn í Erninum varð Jean eins fræg og Caine hafði spað. Það var fyrsta stóra hlutverkið hennar í kvikmynd. Þar lék hún þýzkan njósnara, Starling. En Jean lætur ekki við svo búið standa. Hún tekur nú á móti fólki í sjónvarpssal líkt og Dick Cavett og fleiri. I fyrsta sinn sem hún gerði það kom ÖÐRUVÍSIEN

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.