Dagblaðið - 02.11.1977, Qupperneq 6
Amfetamín bann-
að íWisconsin
Bann við notkun amfetamíns
gekk í gildi í gær í ríkinu Wis-
consin í Bandarikiunum.
Örvunarlyf þetta, sem
stundum hefur vaidið
neyzluávana er töluvert notað'
við harkalegar megrunar-
aðgerðir fólks en Wisconsinríki
er fyrsta ríki Bandaríkjanna,
sem ákveður bann við lyfinu.
Lyfjayfirvöld í ríkinu hafa
ákveðið áð eingöngu megi selja
eða vísa á lyfið í tilfellum eins
og svefnsýki á háu stigi, ofsa-
kæti og miklu þunglyndi.
Einn stjórnarmanna segir að
þeir hafi komizt að raun um að
lyfið gagni ekki við meðferð
offitusjúklinga. Það sé mjög
vanabindandi og auk þess gróf-
lega misnotað. Amfetamín-
getur valdið óbætanlegum
skaða á líkamsstarfseminni,
breytt persónuleika fólks og
valdið beinum geðtruflunum.
Stjórnin hefði haft miklar
áhyggjur af misnotkun lyfsins
sem þekkt væri meðal viss hóps
undir nafninu „speed“. Full
vissa væri fyrir því að það væri
meðal annars misnotað mjög af
ungu fólki, sem væri á höttun-
um eftir óeðlilegri örvun.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1977.
SONUR HITLERS:
Lifandi eftirmynd
Erlendar
fréttir
h________d
Werner Maser, þýzki
doktorinn sem fullyrðir að
hann hafi fundið launson Hitl-
ers, fyrrum þjóðarleiðtoga
Þýzkalands, segir hann bera
mjög mikinn svip af föður sin-
um heitnum.
Doktorinn segist geta sannað
það að Jean Loret, sem hann
segir franskan ríkisborgara, sé
sonur nasistaleiðtogans og
franskrar konu.
Maser vildi ekki upplýsa
nafn barnsmóðurinnar.
Hann sagði fréttamönnum í
gær að Jean Loret, sem er
fimmtíu og níu ára gamall og á
níu börn, sé lifandi eftirmynd
föður sins þegar hann beri
ekki gleraugun sem hann gerir
undir venjulegum kringum-
stæðum.
Aftur á móti skarti sonurinn
ekki hinu fræga yfirskeggi eins
og faðir hans gerði.
Að sögn doktors Maser hitt-
ust Hitler og hin ónefnda kona í
sveitaþorpi í Norður-
Frakklandi í apríl árið 1916,
þegar fyrri heimsstyrjöldin
stóð sem hæst.
Hafi ávöxtur kynna þeirra
orðið sonur sem konunni hafi
fæðzt í marzmánuði árið 1918.
REUTER
Sprengdu
Benzinn
BIADW
frfálst, úháð dagblað
Alltaf eykst hróður Soffíu
Loren og nýlega hlotnaðist
henni titillinn Bezti kven-
leikari ársins, sem banda-
rískir kvikmyndahúsaeig-
endur kusu. A myndinni sést
Soffía með verðlaunagripinn,
Annars berast
alltaf sögur af Soffiu Loren
sem virðist verða sífellt
vinsælli leikkona, með árun-
um. Fyrir nokkrum dögum
sást hún í fylgd með ungum og
mvndarleguin manni í New
York. Málið skýrðist þó fljót-
lega, þar var á ferð stjúpsonur
hennar, sonur Carlo Ponti
kvikmyndaframleiðanda af
fyrra hjónabandi.
Bensínsprengjum var
varpað að sýningargluggum
Mercedes Benz bifreiðaverk-
smiðjanna í Mílanó á ítaliu í
gær. Talið er að þar hafi
verið að verki öfgasinnaðir
vinstrimenn, sem með þessu
hafi verið að mótmæla
meintum morðum á félögun-
um þrem úr Baader Meinhof
samtökunum, sem yfirvöld f
V-Þýzkalandi segja að hafi
framið sjálfsmorð.
Rúður brotnuðu og smá-
eldur kviknaði í sýningarsöl-
um en fljótt tókst að
slökkva.
Nfunda kjama
sprengjan
Bandaríkjamenn
sprengdu í gær eina af sín-
um svokölluðu tilrauna-
kjarnasprengjum neðan-
jarðar í Nevada eyðimörk-
inni.
Sagt er að afl sprengjunn-
ar hafi verið minna en tutt-
ugu kílótonn sem samsvarar
minna en tuttugu þúsund
tonnum af TNT sprengiefni.
Sprengingin var sú ni-
unda sinnar tegundar sem
Bandarikjamenn fram-
kvæma á þessu ári.
Hundamirátu
líkin
Yfirvöld í borginni
Baringo i Vestur-Kenya hug-
leiða hvernig þau geti bezt
útrýmt um það bil þrjú
hundruð flökkuhundum
sem ráðskazt hafa heldur
óþyrmilega í kirkjugarði
borgarinnar að undanförnu.
Er talið að þeir hafi meðal
annars komizt i lík af fólki
sem látizt hefur úr smitandi
heilahimnubólgu.
sem notaður er þegar tignir gestir koma i
heimsókn kom i góðar þarfir á Sterling vínekrunni í Kaliforniu.
Þangað kom Charles Bretaprins i heimsókn á dögunum og
auðvitað var hann látinn ganga cftir dreglinum, einkum þó vegna
þess að rignt hafði hressilega um daginn.
Bílapartasalan
Bílapartasalan
Höfum úrval notaðra varahluta í ýmsar
tegundir bifreiða, til dœmis:
Rambler Classic V-8 Vauxhall Viva
Dodge Dart Skoda 1000
Fiat 125 Ford Fairlane.
Fiat 128 Land Rover
Hillman Hunter o.fl. o.fl.
Einnig höfum við úrval af kerruefni, til dœmis
undir vélsleða.
Sendum um land allt.
ERTU ASKRIFANDI ?
Þá átt þú möguleika á að eignast Chevrolet Nova Custom, í
þennan stórglæsilega, ameríska bíl: áskrifendaleik Dagblaðsins.
ERTU EKKI ÁSKRIFANDI ?
Pantir þú áskrift nú, fyrir Áskriftasími Dagblaðsins er 27022.
mánaðamót, átt þú jafn mikla
möguleika og þeir, sem eru áskrif- Gangi erfiðlega að ná samþandi,
endur nú þegar. þá reyndu 35320, 83006, eða 83764.