Dagblaðið - 02.12.1977, Page 1

Dagblaðið - 02.12.1977, Page 1
 3. ARG. — FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977 — 269. TBL. RÍTSTJÖRJV SÍÐyMULA 12. AUGLÝSINGAR ÞyERHOLTI 11. AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2. — AÐALSÍMI 27022. Frá Ragnari Th. Sigurðssyni íGautaborg: „MAMMA, MAMMA, HUSIÐ VIÐ HUÐINA HREYFIST!” — lýsingar íbúa í Tuve í Gautaborg á hamförunum þar í fyrradag „Við sátum heima þegar sonur minn hrópaði allt í einu: Mamma, mamma, húsið við hliðina hreyfist! Ég trúði honum að sjálfsögðu ekki en fór samt út í glugga. Þá sá óg húsin við hliðina renna af stað og hrynja síðan eins og spila- borg hvert af öðru." Svo lýsti kona ein, íbúi í borgarhverfinu Tuve á Hissing- en í Gautaborg, atburðunum á miðvikudaginn fyrir frétta- manni DB í Gautaborg í gær- kvöld. Hún sat ein heima með börn sin þegar jörðin seig þar undan húsunum og dró þau með sér niður í Kvilledalen. „Mér brá náttúrlega óskap- lega," hélt konan áfram, „ég þreif börnin og hljóp út. Þetta var í ljósaskiptunum en öll ljós fóru af hverfinu þannig að úti var heldur drungalegt. Við heyrðum skelfingarópin allt i kringum okkur og hálfkæfð hróp um hjálp í húsunum næst okkur. Það liðu ekki nema nokkrar sekúndur þar til fyrsti sjúkrabíllinn kom á staðinn, en hann hafði verið í vitjun skammt frá. Sjúkraliðsmenn- irnir voru furðu lostnir — allt í einu var hálft hverfið horfið! Þeir kölluðu þegar á hjálp — og það var fyrsta og eina hjálpar- kallið sem kom frá hverfinu. Síðan fóru þeir strax að reyna að hjálpa fólki, sem illa hafði orðið úti, og voru tveir einir við það þar til hjálparsveitir komu eftir 20-30 mínútur." Hús annarrar konu, sem fréttamaður DB ræddi við, var sokkið í Ieireðjuna með öllum innanstokksmunum og stóð aðeins þakið upp úr. Konunni tókst ekki einu sinni að ná peningaveskinu sinu með sér þegar hún hljóp út. „Ég var ein heima þegar þetta gerðist," sagði hún. „Börnin mín tvö voru í næsta Kjallarar nær allra húsanna í Tuve hafa fyllzt af leir, en ekkert þeirra stóð á steyptum grunni, sem náði niður á fast. Þau brotnuðu því í tvennt — að minnsta kosti — þegar jarðvegurinn tók að renna niður i Kvilledalen. húsi. Allt i einu fóru ljósin að blikka og síóan fóru þau alveg. Um leið fannst mér eins og jarðskjálfti hristi húsið og skæki. Ég hljóp út eins og flestir aðrir og sá þá húsin allt í kring renna af stað og niður brúnina. Þau hafa runnið um 50 metra áfram og að minnsta kosti 30 metra niður brekkuna. En þetta stóð ekki nema í mesta lagi tvær mínútur. Mín fyrsta hugsun var að finna börnin — en þá var hús nágrannans hrunið til grunna. Til allrar hamingju sá ég í þeim svifum hvar nágranninn stóð með fjöl- skyldu sína og börnin min heil á húfi. Okkur var síðan hjálpað upp á jafnsléttu aftur, en sumir í kringum okkur voru fastir í leðjunni upp fyrir axlir. Sumir hafa kannski sokkið enn dýpra. Um það.veit maður ekki." Fórnardýr þessara óhugnan- legu hamfara voru síðan flutt í barnaskólann í nágrenninu, þar sem sett var upp, neyðarhjálpar- stöð. Það var þar fyrir utan, sem fréttamaður DB ræddi við konuna í gær. Á meðan viðtalið fór fram bar að foreldra kon- unnar og aðra ættingja í tveimur bílum. Urðu fagnaðar- fundir með þeim þegar ættingjarnir stukku út úr bílunum á miðri götu og féllust grátandi í faðma við konuna og börnin, sem heimt höfðu verið úr helju. ÓV/RThS, Gautaborg. — Sjá nánar á bls. 8 Fannst meðvitundar- laus að húsabaki — hafði fallið i náttmyrkri Á þriðjudagsmorguninn fundu sorphreinsunarmenn sem voru að störfum í Mjóstræti meðvitundar- lausan mann að húsabaki. Gerðu þeir lögreglu þegar viðvart og kom í ljós að maðurinn var með áverka á höfði. Var hann fluttur i Borgarspítalann og þar kom hann til meðvitundar í gær, rúmum tvei.mur sólarhringum eftir að hann fannst. Málið hefur verið gaumgæfi- lega rannsakað því grunur lék á um hugsanlegt árásarmál. í ljós hefur komið að þessi ungi maður hugðist stytta sér leið frá Aðalstræti upp í Garðastræti. 1 myrkrinu að húsabaki gekk hann fram af garði eða stalli og hlaut mikið höfuðhögg. Var hann orðinn kaldur mjög er sorp- hreinsunarmennina bar að árla næsta morguns. Maðurinn var með alla sína fjármuni á sér þá er hann fannst og þykir fullvíst að þarna hafi aðeins verið um slys að ræða. ASt. Framsókn á Norðurlandi vestra: 0LAFUR 0G PALL EFSTIR — en úrslit próf kjörsins ekki bindandi Talningu atkvæða í skoðana- könnun Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra lauk ekki fyrr en rúmlega hálftíu í morgun og hafði þá staðið í rúmar tuttugu klukkustundir. AIls voru 2262 atkvæði dæmd gild og féllu þau þannig að Ólafur Jóhannesson ráðherra fékk 2136 atkvæði eða 94.4% og var því langefstur. Næstur honum var Páll Péturs- son alþingismaður með 1864 at- kvæði. Þriðji var Stefán Guð- mundsson, framkvæmdastjóri, 1662 atkvæði, 4. Guðrún Bene- diktsdóttir 1554, 5. Bogi Sigur- björnsson, 1524, 6. Mágnús Olafs- son, 1009 og 7. Brvnjólfur Svein- bergsson 998. „Þessi úrslit eru ekki bind- andi," sagði Grímur Gíslason, rit- ari kjördæmisráðs i viðtali við DB i morgun. „Það er»jafnvel fyrir- hugað að halda kjördæmisþing í þessum mánuði, þar sem niður- stöðurnar verða ræddar og fram- boð ákveðið. ' - HP Tíu daga þorskveiðibann á vetrarvertíð: „Óframkvæmanlegt” — segja sjómenn — baksíða IATA flugfélög: Hugleiða aðgerðir gegn Lakerfélagi Mútur ekki æskilegar í milliríkjavið- skiptum — sjá erl. fréttir á bls. 6 og 7 Verður Ali sviptur titlinum? — sjá íþróttiríopnu Rússnesk rúlletta í um- ferðinni — sjá kjallaragrein Leós M. Jónssonar á bls. 10 og 11 Bændur samþykkja að greiða skatt sem renni til landbúnaöarins — sjá bls. 5

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.