Dagblaðið - 15.12.1977, Page 3
.GBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977.
ENN ER HJÓLUNUM STOLIÐ
Alma Róberts, Flókagötu 56
Reykjavík, skrifar:
Nú verð ég að gera smáfyrir-
spurn. Eru til foreldrar sem
láta börn sín komast upp með
a‘ð stela hjólum og selja, svo að
þau þurfi ekki að skaffa þeim
vasapening?
Ef svo er, eru þau meðsek í
þjófnaði. Ég á afskaplega erfitt
með að trúa því, svo nú skora ég
á það foreldri, sem hefur séð
barn sitt með nýtt grænt SCO
kvenmannshjól, að láta vita í
stma 27827, eða koma því að
húsinu Flókagötu 56, en þaðan
var því stolið á þriðjudagsmorg-
uninn milli kl. 8.30 og 9.30.
Hjólið stóð á bak við hús og
þar undir svölum og var læst
með takkalás. Ég er með núm-
erið af hjólinu svo að ef ég sé
það þá tek ég það svo sá sem
kaupir hjólið tapar því, og sama
er með lögregluna, þar sem ég
er búin að kæra það. Þetta er í
annað sinn á þessu ári sem hjóli
er stolið frá sama barni svo það
Einar Pálsson hefur þegar
valdið þáttaskilum í ástundun
islenzkra miðaldafræða —
segir bréfritari.
Einar Pálsson
ogákvörðun
Þingvallar
I Trú og landnámi (Reykja-
vík 1970), öðru bindi ritverks
síns, Róta íslenskrar menn-
ingar, sem þegar hefur valdið
þáttaskilum í ástundun is-
lenskra miðaldafræða, segir
Einar Pálsson um ákvörðun
þingstaðar á upphafi þjóðveld-
isins:
„Þannig hníga öll rök að því,
að ginnheilög lína liggi milli
Álftaróss og Steinkross, milli
landnáms Skalla-Gríms og
Ketils. Þingstaðurinn við Flosa-
gjá er á miðju þeirrar línu.
Þingvellir ættu að vera Miðja
frá sjónarmiði þeirrar hugtaka-
fræði, sem hér er við miðað.“
(Bls. 42).
t Steinkrossi (Reykjavík
1976), fjórða bindi ritverks
síns, leggur Einar Pálsson
óbeinlínis, þótt ekki berum
orðum, drög að annarri
skýringu á ákvörðun Þingvall-
ar:
„Á dögum Tólfta konung-
dæmisin? var höfuðborg
Egyptalands færð til Þebu.
...Breiddarbaugurinn var val
inn af kostgæfni: hann var lína
,sú, sem afmarkaði nákvæmlega
'tvo sjöundu af vegalengdinni
frá miðbaug að norðurskauti
jarðar. Var hnattstaðan mörkuð
I Mið-herbergi þess hofs, sem
helgað var guðinum Amon.“
(Bls. 29)
„Griski sagnaritarinn
Heródótus greinir frá því, að
hin forna gríska véfrétt í
Dódóna hafi verið stofnsett af
egypskri konu, sem seld hafi
verið mansali til Grikklands af
Fönikíumönnum. Síðar er önn-
ur véfrétt sett upp, sú sem
frægust varð af sögum, í Delfi.
.. .Hér skal þess aðeins getið, að
setrið í Delfí virðist nákvæm-
lega miðað 3/7 af vegalengd-
inni frá miðbaug að pól. Sex
mínútna frávik leikur þarna
mikilvægt hlutverk vegna að-
stæðna, sem skiljast í egypsku
samhengi. Slík staðsetning
getur vart talist tilviljun, þegar
tekið er tillit til þess, að arf-
sögnin telur Delfi og Dódóna,
egypskar að stofni.“ (Bls. 183-
185)
Af þessu tilefni skal vakið
máls á, að suðurmörk Þing-
vallar eru sem næst 64 gráður
16 mínútur norðlægrar
breiddar. Markar Þingvöllur
þannig 5/7 hluta vegalengdar-
innar frá miðbaug að pól (sem
svarar nálega til 64 gráðna 17
mínútna). Þá skal þess getið, að
breiddarbaugur London, en þar
mun hafa verið byggð fyrir
komu Rómverja, mun marka
sem næst 4/7 hluta vega-
lengdarinnar frá miðbaug að
pól.
Hjá lögreglunni er heilmiklð af óskilahjólum. Ef þau eru ekki sótt
innan ákveðins tíma eru þau seld á uppboði. DB-mynd: Sveinn
Þorm.
lítur helzt út fyrir að hér sé um
skipulagðan þjófnað að ræða.
Svo að lokum, foreldrar sem f
hlut eiga, komið hjólinu til
skila, eða nágrannar sem sjá
hjól sem ekki á heima í næsta
húsi og er með þessari lýsingu:
Dökkgrænt SCO kvenmanns-
hjól. Hjálpumst að við að stöðva
þá sem í hlut eiga.
c&jörfo
■•£•$*& ■ '*JS ..
Björk Guðmundsdóttir er aðeins 11 ára Reykvíkingur.
Hún syngur, hún spilar og hún semur lög.
Nú hefur hún sungið
á plötu með aðstoð nokkurra af þekktustu
popptónlistarmönnum landsins.
Þetta er einstök plata sem á án efa eftir að veita
æskufólki á hvaða aldri sem er mikla ánægju.
GÓÐA SKEMMTUN!
Getur verið að foreldrar séu meðsekir?
Reykjavík, 5 dqsember 1977
Haraidur Jóhannsson
hagfræðingur
Ertubúinn
aðskrifa
jólapóstinn
(Síðustu forvöð að koma jólapóst-
inum til skila annað kvöid).
Jóna Jónsdóttir húsmóðir, 28
ára: Nei, ég er ekki búin að því.
Jú, ég verð að fara að drífa mig.
Ég sendi svona um tíu kort.
Einar Eggertsson verzlunar-
maöur, 56 ára: Já, ég er búinn að
því og búinn að koma honum i
póst. Ég sendi svona tutiugu til
þrjátiu kort.
Spurning
dagsins
Jenný Forberg húsmóðir, 32 ára:
Nei, ég er ckki búin. Ég sendi
svolítið af jólakortum en ekki
mjög mikið.
Fanney Hjaltadóttir heimavinn-
andi húsmóðir, 64 ára: Nei. þvi
miður er ég ekki búin að því. Eg
ætla að fækka eitthvað þeim
kortum sem ég sendi, ég held að
fólk sé eiginlega orðið dálítið
þrevtt á jólakortum.
Ragnheiður S. Einarsdóttir
afgreiðsluma*r í Gevsi, 16 ára:
Nei, ég er ekki búin að því. Hve
mörg kort ég sendi, ja. þau eru
allavega mörg, ég veit ekki hve
mörg.
Sr. Oskar J. Þorláksson, 71 árs:
Nei, ekki er ég alveg búinn að
ganga frá honum. -Vona að ég
verði búinn í tæka tíð. Ég er
búinn að koma töluverðu í póst.
Ætli jólakveðjurnar mínar séu
ekki upp undir hundrað talsins.