Dagblaðið - 15.12.1977, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977.
11
Belfast:
Hermaður
skotinn í
bakið
—tveir lögreglumenn særðir
Brezkur hermaður var skotinn
til bana í einu úthverfa Belfast á
írlandi í gær. Einnig særðust
tveir lögreglumenn þegar
sprengja sem leyndist í jólapakka
sprakk í miðborginni.
Hermaðurinn var að sinna
skyldustörfum en óeinkennis-
klæddur þegar hann var skotinn i
bakið og einnig mun skot hafa
farið í höfuð hans. Fannst hann á
götunni við bifreið en hún stóð í
Ijósum logum skömmu eftir að
sjúkrabifreið hafði farið með her-
Bretland:
PRINSESSUMAÐUR
FER ÚR HERNUM
OG í BÚSKAP
manninn áleiðis á sjúkrahús.
Lögreglumennirnir særðust,
þegar þeir voru að leiðbeina fólki
af hættusvæði í kringum sprengj-
una, sem fannst i blómabúð, en
einn afgreiðslumaðurinn hafði
borið jólapakkann með henni út á
gangstéttina. Pakkinn sprakk
áður en lögreglumennirnir gátu
leitað skjóls.
Aðra sprengju sem komið hafði
verið fyrir í fatahreinsun við
hliðina á blómaverzluninni tókst
að gera óvirka.
Nougat
mOHllll
rlOKKa
Mark Phillips eiginmaður Önnu
Bretaprinsessu hefur ákveðið að
hætta í brezka hernum á næsta
ári og snúa sér að búskap. Var
þetta tilkynnt í Buekingham höll í
fyrradag.
Eiginmaður prinsessunnar
sem verið hefur í brezka hernum í
tíu ár hefur starfað við brezka
varnarmálaráðuneytið siðan í
febrúar siðastliðnum.
Ætla þau hjónakorn að hefja
búskap á 242 hektara búgarði —
Gatcombe Park — en hann keypti
Elisabet Bretadrottning, móðir
Önnu prinsessu, fyrir einu og
hálfu ári.
Mark Phillips, sepi er tuttugu og
níu ára, ætlar aó k -nna sér
búskap verklega í no! kra mán.
en síðan fara ti náms \ið Hinn
konunglega brezka búnaðarskóla
í eitt ár.
Talsmaður brezku hirðarinnar
ságði að þó bæði Anna prinsessa
og eiginmaður hennar væru
miklir áhugamenn um hesta-
mennsku væru ekki uppi neinar
fyrirætlanir um að reka reiðskóla
á búgarðinum við Gatcombe Park.
Verzlunin Hamraborg
Vorum aö taka upp geysimikið
og fallegt úrval af dönskum
barnapeysum
Mjöghagstætt verð
HAMRABORG - FA TA VERZLUN
Hamraborg 14 — Kópavogi
Volur Faonnr
GULLSMIÐUR
viðLækjartorg —
Reykjavík — Símar 16488 & 40767
Uas/yi. rS/6 . A&?íí£/*!ssoa/
Bjóðum margs konar glæsilegan tískufatnað fyrir
dömur svo sem buxnadress, samfestinga, smekkbux-
ur, anorakka, kjóla, pils, flauelsbuxur, vesti og
margt fleira. Saumað og hannað í klæðagerðinni
Lorelei. Það er vel þess virði að líta inn og verðið er
hóflegt.
Tiskuverslunin GLAUMBÆR
HVERFISGÖTU 32 SÍMI 13880