Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 1
Einkaaðstaðan í kjötsölu frá landinu rofin:
Nálega 50% hærra verð er
einkaf ramtakið komst að
Kjötið nú selt gegn staðgreiðslu og allri umboðsmennsku haf nað
Einkaaöstaðan sem verið
hefur á allri sölu á jslenzku
kindakjöti til Danmerkur hefur
nú verið rofin. Um Ieið og það
gerðist hækkaði verð á íslenzku
kindakjöti til Danmerkur úr
6—6,50 kr. danskar fyrir kílóið
í 9 krónur danskar fyrir hvert
kíló eða fast að þvi'um 50%.
Það er útflutningsfirmað
Triton, sem Örn Erlendsson
veitir forstöðu sem einkaað-
stöðuna á kjötsölunni rauf.
Eftir ítrekaðar beiðnir fékk
hann tilskilin leyfi yfirvalda
sölusamtaka landbúnaðarvara
til útflutningsins. Fóru 100
tonn af islenzku lambakjöti
utan fyrir fáum dögum. Það er
fyrsti farmurinn sem einok-
unaraðstöðuna rýfur.
_Hið nýja verð sem örn hjá
Triton fékk fyrir kjötið er enn
liagstæðara en áðurnefndur
verðmismunur sýnir, því nýi
danski innflytjandinn greiðir
farminn gegn staðgreiðslu en
hinn eldri gerði upp eftir að
hann hafði selt allt sitt kjöt.
Fram til þessa hefur allt ís-
lenzkt lambakjöt sem selt hefur
verið til Danmerkur farið um
hendur. K. Klausen í Ködbyen.
Hann var að sögn Sveins
Tryggvasonar framkvæmda-
stjóri Framreiðsluráðs umboðs-
sali og hafði Heimild til að
draga frá söluverðinu héðan
uppskipunarkostnað, tolla og
fleira og gefa reikning
:yrir þessum kostnaði og öðrum
áður en endanlegt uppgjör fór
fram.
Hið nýja sölufyrirkomulag
sleppir slíkri umboðssölu. Er
um hreina staðgreiðslusölu að
ræða og öll söluábyrgð síðan í
höndum hins danska kaupanda.
- ASt.
Jólasnjór — eða hvað?
Rúta valt niður
Mánaskriður
—tveir menn sluppu naumlega
Tveir menn sluppu naumlega
er langferðabifreið fór út af
veginum í . Mánaskriðum,
skammt frá Siglufirði í gær-
kvöldi. Bílstjórinn Bjarni Árna-
son sagði í viðtalj við DB í
morgun að hann hefði gert
margítrekaðar tilraunir til þess
að komast upp skriðurnar og
verið kominn upp að efsta
skafli, sem var fremur lítill. Þá
snerist bíllinn skyndilega og
fór út af veginum og rann niðúr
skriðurnar á hliðinni og sneri
framendinn upp. Hægri fram-
rúðan brotnaði, er bíllinn fór
útaf og gat 15 ára piltur, sem
var með Bjarna í bílnum, hent
sér út um gluggann.
Bjarni var aftur á móti fastur
í sæti sínu, þar sem sætisbakið
þrengdi að honum upp að
stýrinu. Honum tókst þó að
brjóta sætið og komst út úr
bílnum við illan leik. Billinn
stöðvaðist er hann hafði runnið
um 500 metra niður skriðurnar
og voru þá aðeins um 50 metrar
fram á bjargbrúnina.
Mennirnir voru marðir og
Bjarni nokkuð skrámaður, en
ómeiddir að öðru leyti. Þeir
gátu síðan gengið upp á veginn
og í veg fyrir bíl frá Sauðanesi,
sem kom að vitja um þá.
Bjarni telur líkur á því að
lítil snjóskriða hafi komið á
framhorn bílsins, með þessum
afleiðingum, en mikið vár um
snjóskriður þarna í hlíðinni.
Billinn, 21 manns M. Benz, er
talinn ónýtur.
-JH.
Loksins er kominn jólasnjór í höfuðborginni, þó veit enginn hvort
snjór sem er að morgni dugar til kvöids eða ekki. En óneitanlega
komast menn frekar í jólaskap þegar jörð er aihvít og greinar trjánna
svigna undan snjónum. Þessi mynd var tekin í Skerjafirðinum í gær.
— Annars er spáin fyrir höfuðborgina og Vesturland suðvestan átt og
él en fyrir norðan verður léttskýjað.
- A.Bj. — DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
Þrýstingur á st jórnarþingmenn
Búizt við að kaup-
in á Víðishúsinu
verði samþykkt
Mikill þrýstingur „að ofan“
er á þingmenn stjórnarflokk-
anna til að fá þá til að .sam-
þykkja kaupin á Víðishúsinu.
Talið er sennilegast, að kaupin
verði samþykkt með öllum
þorra atkvæða S.íálfstæðisþing-
manna og atkvæðum flestra
Framsóknarþinganna.
Þetta var skoðun eins
stjórnarþingmanns, sem DB
ræddi við í morgun. Hann sagði
að talsverð óánægja væri meðal
Framsóknarþingmanna og ,,þó
nokkrir" Sjálfstæðisþingmenn
væru andvígir kaupunum. Hins
vegar hefði tekizt að fá alla
fulltrúa stjórnarflokkanna í
fjárveitinganefnd til að sam-
þykkja kaupin. Þriðja umræða
um fjárlög verður ekki fyrr en
á þriðjudag og enn væri nokkuð
óvíst hvernig málið færi en
gera mætti ráð fyrir samþykkt.
Sumir stjórnarlióar mundu þó
annaðhvort greiða atkvæði með
breytingartillögu Lúðvíks
Jósepssonar (AB) og fleiri um
að fella niður heimildarákvæði
um kaup á Víðishúsinu eða
sitja hjá við atkvæðagreiðslu
um þá tillögu.
Meðal þeirra sem eru and-
vígir kaupunum eru ráðherr-
arnir Gunnar Thoroddsen og
Halldór E. Sigurðsson. Einar
Agústsson hefur einnig látið
skína í óánægju. - HH
Bflarnir og
Teitur
Þórðarson
til Öster
Teitur Þórðarson, Skaga-
maðurinn kunni hefur nú
skipt um félag í Svíþjóð —
farið frá Jönköping er
leikur í 2. deild til Öster,
eins af kunnustu félögum
Svíþjóðar og leikur í
Allsvenskan, 1. deild.
Kaupverð Teits skiptir
tugum milljóna — raunar
var öster ekki eitt um að
sýna Teiti áhuga, fleiri félög’
vildu fá hann í sínar raðir.
„Teitur Þórðarson var
okkar bezti leikmaður, gott
að vinna með honum, skalla-
tækni hans góð. Kraftur
hans og hraði gerði að verk-
um að mörg félög sýndu hon-
um áhuga, sér í lagi 1. deild-
arlið öster og Atvidaberg,"
sagði Ove Lago, einn af for-
ráðamönnum Jönköping er
við ræddum vió hann í
morgun.
Sjá íþróttir í opnu.