Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977. Lesandi spyr: „Á GRUNDARFJÖRÐUR AÐ VERÐA EINS KONAR ÁSTRALÍA NÚTÍMANS? Grundfirðingur hringdi: „Fyrir um það bil mánuði var framið innbrot í verzlun á Grundarfirði og stolið þaðan töluverðu af armbandsúrum. Fyrir rúmri viku kom í ljós að hér höfðu verið að verki fangar á Kviabryggju. Þeir höfðu læðzt út um nótt, án þess að nokkur yrði var við, labbað ofan í Grundarfjörð, sem er 10 km leið, og síðan til baka aftur. Verknaðurinn komst ekki upp fyrr en lögreglan í Reykjavík fann hluta af úrunum í fórum eins fangans, sem þá var laus úr vistinni á Kvíabryggju og kominn suður. Fólk hér á Grundarfirði er uggandi, að vistmenn á Kvía- bryggju skuli ganga lausir um nætur. Þar sitja menn inni fyrir alls konar afbrot og geta verið til alls vísir. Fólk veltir því fyrir sér hvort sofið sé á verðinum á nóttunni og hvort Grundarfjörður eigi að vera eins konar Astralía nútímans?'- JOLAPLOTUR FALKANS BJÖRK - Björk Guðmundsdóttir Björk er aðeins ellefu ára. Hún syngur, spilar og semur lög. - Nú hefur hún sungið á plötu með aðstoð nokkurra af þekktustu popptón- listarmönnum landsins. Þetta er einstök plata fyrir æskufólk á öllum aldri. Fálkinn hefur sent frá sér jólaplöturnar í ár. Þar er að finna fjölbreytt úrval, tónlist fyriralla, unga sem aldna. Hljómplata frá Fálkanum er vegleg jólagjöf. í MORGUNSÁRIÐ - Ólafur Þórðarson Fyrsta sólóplata Óla i Rió. Á plötunni flytur Óli einungis frumsamda tónlist ásamt nokkrum þekktum tónlistarmönnum. LONLÍ BLÚ BOJS - Vinsælustu lögin Nú eru öll bestu lögin komin á eina plötu. Mörg þeirra eru ekki lengur fáanleg á öðrum plötum. Eignist þessa frábæru plötu. EINTAK - Bergþóra Arnadóttir Á þessari plötu syngur Bergþóra við undirleik nokkurra helstu hljómlistarmanna landsins, eigin lög við Ijóð ýmissa valinkunnra íslenskra skálda. KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR Þetta eru tvær hljómplötur sem gefnar hafa verið út í tilefni 60 ára afmælis kórsins. Plöturnar innihalda sýnishorn af söng kórsins allt frá árinu 1930 til ársins 1975. Þessar plötur þurfa allir unnendur karlakórssöngs að eignast. í GEGN UM TÍÐINA Mannakorn Enn betri plata en sú fyrri. Á plötunni eru tíu ný lög eftir Magnús Eiriksson og allir textar utan eins eru eftir hann. Spurning dagsins Hvaðætlarðu aðgera íjólafríinuþínu? Rrakkar í Grindavík spurðir. Hannibal Öskar Guðmundsson 9 ára: Ég <ætla bara að leika mér, jú kannski hjálpa ég mömmu. Kristinn Ingimundarson 9 ára’:' Ég fer kannski á 'sjóinn með pabba minum. Svoætlaðg að leika mér : fótbolta. Ölafur Magnússon 11 ára: Bara leika mér. Hver \eit nema ég sofi líka út á morgnanu. Guðmundur Kristinsson 11 ára: Bara leika mér, sofa út og svoleiðis. Hjalti Pálmason 11 ára: Veit það ekki. Líklega leika mér, hjóla og svoleiðis. Þórður Þ. Waldorff 11 óra: Ég ætla að hjálpa mömmu minni og kannski leik ég mér líka eitthvað.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.