Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977. Nýkomnir bómullar- kjólar Stæröir 40-48 Hentugir tiljólagjafa Verð kr. 6.900.- Már Kristjónsson Glöpin grimnt Hliðstæða HAMSUNS GUÐMUNDUR G. HAGALÍN RITAR UM BÓKINA GLÖPIN GRIMM í MORGUN- BLAÐIÐ 6. Þ.M. OG KEMST M.A. SVO AO ORÐI: „Ég hafðf ekki lesið margar blaðsíður ( þessari skáldsögu, þegar ég þóttist sjá, að þarna væri á ferð höfundur, sem hefði það mikið tll brunns að vera, að hann þyrfti ekki að „gera kúnstir" — til dæmis misþyrma ísienzku máll eða reka upp popphljóð—til þess að eftlr honum væri tekið. Og þess lengur sem ég las jókst hvort tveggja: undrun mín og gleðin yfir því, að þarna væri ég kominn i kynni vlð veigamikið sagnaskáld. Og ég hugsaði með mér: Mundl hann virkilega reynast fær um að verða sjálfum sér samkvæm- ur allt til bókarloka? Stundum varð mér það fyrir að skella upp úr í einrúmi við lesturinn, og mér komu í hug orð Vídalíns um að skemmta um hinn óskemmtilegasta hlut. Stöku sinnum sagði ég við sjálfan mig: Get- urðu verið þekktur fyrir að hlæja að því arna? Svarið varð já ...“ >»* • • Mér flaug í hug við lesturinn, að þarna væri komin íslenzk hliðstæða bókar Hamsuns, Konerne ved vand- posten." • • • • Om&Orlygur Usturgötu 42$imi:25722 Galdra- og brandarabók Baldurs og Konna Baldur Georgs var einn kunn- bokaútgáfan Skjaldborg gefur út, asti skemmtikraftur okkar tslend- greinir Baldur frá frægustu inga um langt árabil og skemmti- galdrabrögðum sínum. Einnig er í þættir hans með dúkkunni Konna bókinni safn brandara sem þeir voru landsfrægir. Baldur og Konni fluttu á skemmt- Baldur var einnig kunnur fyrir unum sínum. galdra sfna og í litlu kveri, sem Bókin kostar 1980 krónur. wSgia: Ljóð tuttugustu aldarinnar Rétt er að vekja athygli á ljóða- Kristján Karlsson valdi ljóðin bók, sem Almenna bókaféiagið °g bjó til prentunar og ritar hann sendir frá sér fyrir þessi jól. formála fyrir ljóðasafninu. í því Bókin heitir íslenzkt ljóðasafn og eru einnig æviágrip höfundanna hefur að geyma ljóð 31 höfundar, og er bókin hin aðgengilegasta, sem allir hafa verið hvað virkastir 352 blaðsiður að stærð. á tuttugustu öldinni. Kraggur— Saga um fjallahrút „Kraggur" heitir ný bók sem Leiftur sendir á markað nú fyrir jólin. Þar segir höfundurinn, Ernest Thompson Seton, frá óvið- jafnanlegum fjallahrút og baráttu hans. Þýðandi bókarinnar er Helga Kristjánsdóttir. Bjarni Jónsson listmálari teiknaði myndir í bókina. Ernest Thompson Seton var kana- dískur náttúrufræðingur, rithöf- undur og skáld. Hann var fæddur í Englandi en bjó lengst af í Kanada. Hann skrifaði fjölda bóka um dýraveiðar og veiðidýr. Hann var einn stofnenda sam- bandsfélags veiðimanna í Banda- ríkjunum á sínum tíma. „Kraggur“ er 80 blaðsíður að stærð. Verð bókarinnar er kr. 990. Tvær nýjar i f lokknum umFrankogJóa Merkið á dyrunum og Hrað- lestin fljúgandi nefnast nýjustu bækurnar i flokknum um þá bræður Frank og Jóa. Flokkur þessi er nú orðinn nokkuð stór, því að nýjustu bækurnar eru númer átján og nitján. Utgefandi þeirra er Bókaútgáfan Leiftur. Frank og Jói eiga í stöðugum eltingaleik við alls kyns bófa og misindismenn. Þeir hossast um á mótorhjólum, aka í bílum, fljúga i flugvélum og þeysa um á hraðbát- um í baráttu sinni við bófaflokk- ana. Oftast eru þeir einir í þessari baráttu sinni, en stundum koma félagar þeirra þeim til hjálpar eða jafnvel faðir þeirra, sem er víð- kunnur leynilögreglumaður. Leiftur hefur gefið út nokkra aðra bókaflokka f svipuðum dúr og sögurnar af Frank og Jóa. Frægustu flokkarnir munu vafa- laust vera Kim og Bob Moran bækurnar. Merkið á dyrunum er 120 blaðsíður að stærð og Hraðlestin fljúgandi 169 bls. Verð hvorrar bókar um sig er kr. 1.680. Hindin góða Ellefta bók höf undarins Hindin góða nefnist nýút- komin bók eftir Kristján Jóhanns- son, sú ellefta sem höfundur sendir frá sér. Utgefandi bókar- innar er Leiftur. Á kápu bókarinnar segir: Hindin góða er að mörgu leyti einstætt verk í íslenzkum barna- bókmenntun. Verður því ekki nánar lýst hér, en eitt er víst: Engu barni verður rótt i brjósti, fyrr en það veit hvernig hindinni góðu reiðir af í þeim átökum og hættum, sem hún lagði á sig til að hjálpa öðrum í hlíðum Miklu- fjalla. Hindin góða er 111 blaðsíður að stærð, skreytt fjölda mynda eftir Hreiðar Sæmundsson. Verð bókarinnar er kr. 1.680. Enn f jölgar Nancy-bókunum — tvær nýjar bækur í þeim flokki eru komnar ámarkaðinn Nancy Drew nefnist stúlka sem sífellt er að flækjast inn í alls kyns dularfull mál. Hún lætur ekki þar við sitja heldur leysir úr málunum á skynsaman og far- sælan hátt. — Flestir unglingar þekkja nú orðið sögurnar um Nancy, því að þær eru orðnar 23 talsins sem komið hafa út á is- lenzku. Nýjustu bækurnar tvær nefnast Nancy og hlykkjótta handriðið og Nancy og glóandi augað. Höfundur bókanna er bandarísk kona, Carolyn Keene að nafni. Gunnar Sigurjónsson hefur þýtt þessar bækur á is- lenzku. Nýju Nancy-bækurnar eru 136 og 139 blaðsíður að stærð. Utgef- andi þeirra er Leiftur. Verð bók- anna út úr búð er kr. 1.680. Lukas og leyndar- mál f rúarinnar — fyrsta bókin f flokki spennandi leynilögreglusagna frá Æskunni Lukas og leyndarmál frúar- innar er fyrsta bókin í flokknum um Lukas leynilögreglumann, sem bókáútgáfa Æskunnar gefur út. Þar segir frá Luc Lukas leyni- lögreglumanni, sem hefur snúið sér að hestaræktun. En hann á mjög erfitt með að yfirgefa sitt fyrra starf. Það er eins og hin dularfullu mál elti hann. Hver eru hin vondu öfl er hræða gamla konu í þeim tilgangi að sölsa undir sig eigur hennar? Lukas glímir við gátuna í þessari bók, sem er 86 siður og kostar 1560 krónur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.