Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ' FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977'. Bílamir aka yfir leiksvæði bamanna en hver á að höggva á hnútinn? Borgararnir geta það ekki. Borgaryf irvöld geta það ekki. Lögreglan getur það ekki—hver? Hver á að grlpa í taumana þegar borgarar geta ekki komið sér saman um framkvæmdir? Borgaryfirvöld? Lögregla? Við Vesturberg í Breiðholti hefur risið upp sérkennilegt deilumál. íbúar einbýlishúsa við Vestur- berg 129-149 hafa ekki getað komið sér saman um hver eigi að fiarlægja moldarbing þar sem bíl- skúrar þeirra, svo og bílastæði, eru fyrirhuguð. Ef til vill ekki svo merkilegt — og þó, ,iú, í stað þess að leggja bílum sínum á fyrir- huguð bílastæði aka eigendur nokkurra einbýlishúsa yfir leik- svæði barna, samkvæmt' skipu- lagi. Þetta hefur í för með sér slvsa- hættu, raunar lá við stórslysi í haust. Sem oftar ók bíll yfir leik- svæðið, bakkaði yfir hjól. Fyrir guðs mildi var barnið, er átti hiólið, ekki á því, hafði yfirgefið það augnabliki áður. Slys varð ekki — ekki vegna forsjálni — forsjónin kom í veg fyrir slys. Aðdragandi er að þessu eins og öllu. í upphafi höfðu bíleigendur. ekið yfir malbikaðan gangstíg. Ibúar nokkurra húsa báðu gatna- málastióra ásjár, Ingi U. Magnússon kom og hann lét setja hindranir á gangstíginn svo bíl- eigendur gátu ekki ekið þar um. Þá brugðu bíleigendur á það ráð að aka yfir leiksvæði barnanna. Þau undu því eðlilega illa og settu steina fyrir en þeir voru fjaP lægðir. ,,Við getum ekki gengið frá leiksvæði barnanna fyrr en búið er að ganga frá bílskúrunum. Það iarðrask, er byggingu bílskúr- anna fylgir, mundi óhiákvæmi- lega eyðileggja leiksvæðið. Því verðum við að bíða með það,“ sagði Ingi U. Magnússon gatna- málastjóri í viðtali vað DB. Málið var því í s.iálfheldu og þess vegna Ieituðu nokkriríbúðar- eigenda ásjár lögreglunnar en hún taldi sig ekkert geta gert í málinu. — Ibúarnir geta ekki komið sér saman um fram- kvæmdir. Yfirvöld treysta sér ekki að blanda sér í málið — og á meðan leika börnin sér á leik- svæði, skipúlögðu af yfirvöldum, en bilarnir aka þar um meðal þeirra þar sem þau sparka bolta ■ eða leika sér í sandkassa. „Við höfum leitað til þeirra „EG STAL EKKIBILNUM...” „Ökunnugir menn eru að víkja sér að mér og spvrja hvort búið sé að finna þennan bíl eða. hvort ég sé þiófurinn, sagði ungurmaðurer kom að máli við Dagblaðið. Bíl bróður hans var stolið, grænsanseruðum Ford Mercury Montego árg. ’71, og var Iýst eftir honum í DB. Bíll- inn fannst uppi í Breiðholti og hefur maðurinn nú bílinn í vörzlu sinni fyrir bróðurinn sem er f jarverandi. „Ég vildi bara fá að taka það fram að búið er að skila bílnum' til réttra eigenda en þakka samt fyrir árvekni þeirra sem komið hafa að máli við mig,“ sagði ungi maðurinn að lokum. HP Bílar aka yfir leikskvæðið — það hefur verið sléttað, komið fyrir mörkum og börn geta leikið sér í sandkassa. En ekki eru þau óhult fyrir bíiaumferð eins og sjá má. DB-mynd Sveinn Þormóðsson. aðila er við teljum hugsanlega geta leyst vanda okkar en enga leið fundið út úr ógöngunum. Nánast er eins og gamía sagan eigi að endurtaka sig: slys þurfi til að kalla á úrbætur," sagði •Guðmundur Þórðarson íbúðar- eigandi að Vesturbergi 125, Raðhús hans á hluta í leikvellin- um en ekki sjálfu deilumálinu, nefnilega moldarbingnum. Samkvæmt skipulagi eiga borgaryfirvöld að ganga frá leik- svæðinu malbikuðu en íbúar út- vega leiktæki. Þarna er vissulega slysahætta...en hvér á að höggva á hnútinn? h.halls. Sportvöruverziun Ingólfs úskarssonar smi Ji

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.